Peningamál - 13.05.2015, Blaðsíða 30
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
5
•
2
30
INNLENT RAUNHAGKERFI
Íbúðafjárfesting jókst minna milli ára í fyrra en áður var talið
Frá því að íbúðafjárfesting náði lágmarki sem hlutfall af landsfram-
leiðslu eftir fjármálakreppuna hefur hún aukist um u.þ.b. helming
(mynd IV-9). Í fyrra jókst hún um 15% milli ára en það er nokkru
minna en spáð var í síðustu Peningamálum. Horfur eru einnig á
heldur hægari vexti í ár en spáð var í febrúar þótt áætlað sé að hann
verði meiri en í fyrra. Þannig bendir sementssala án stóriðju og inn-
flutningur byggingarefnis til minni fjárfestingar á fyrsta ársfjórðungi en
spáð var í febrúar. Mat Samtaka iðnaðarins er á sömu lund en sam-
kvæmt þeim var hafist handa við færri nýbyggingar á fyrstu þremur
mánuðum ársins en áður var áætlað vegna óhagstæðra veðurskilyrða
og skorts á iðnaðarmönnum. Nú er gert ráð fyrir að byrjað verði á um
1.700 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári sem er um 300 færri
íbúðir en áætlun Samtaka iðnaðarins í október sl. gerði ráð fyrir. Færri
byrjanir hafa einnig áhrif á fjárfestingarumsvif næsta árs og að öðru
óbreyttu verður lokið við færri íbúðir á því ári en áður var talið.
Fjárfesting einn af megindrifkröftum hagvaxtar á næstu árum
Á síðasta ári nam fjárfesting rúmlega 16½% af landsframleiðslu. Það
er um fjórum prósentum minna en nemur meðaltali síðustu þrjátíu ára.
Hins vegar er fjárfestingarþörfin meiri nú eftir að nýting fjármagns-
stofnsins og almenn eftirspurn hefur aukist (sjá umfjöllun um nýtingu
framleiðsluþátta síðar í þessum kafla). Spáð er að fjárfesting muni aukast
um tæplega 23% í ár, einkum fyrir tilstilli aukinnar atvinnuvegafjár-
festingar (mynd IV-10). Það er hátt í 10 prósentum meiri vöxtur en gert
var ráð fyrir í febrúar. Munurinn er hins vegar töluvert minni ef horft er
fram hjá fjárfestingu í skipum og flugvélum en án hennar er nú spáð um
17% vexti í ár en í febrúar var gert ráð fyrir tæplega 16% vexti.
Hið opinbera
Áframhaldandi sögulega hægur vöxtur samneyslu og fjárfestingar
hins opinbera
Samneysla jókst um 1,8% í fyrra samkvæmt nýjustu tölum Hag-
stof unnar en spá Peningamála í febrúar gerði ráð fyrir 0,9% vexti.
Skýringin á meiri vexti liggur í endurskoðun Hagstofunnar á hreinum
kaupum á vöru og þjónustu. Þannig voru t.d. kaup ríkissjóðs á óbeint
Breyting Breyting
20132014 (%) 20142015 (%)
(síðasta (síðasta
Upphæðir í ma.kr. 2013 2014 2015 könnun) könnun)
Sjávarútvegur (16) 8,9 5,9 8,9 -32,3 (-10,7) 50,5 (-16,9)
Iðnaður (18) 5,9 4,7 3,8 -18,8 (-11,5) -20,3 (-17,9)
Verslun (22) 5,1 5,0 5,9 -1,5 (-17,4) 17,1 (2,3)
Flutningar og ferðaþj. (8) 8,2 9,9 21,4 20,7 (45,3) 115,2 (43,0)
Fjármál/tryggingar (9) 4,4 5,1 5,6 16,0 (31,9) 8,7 (6,8)
Fjölmiðla- og upplýsingatækni (7) 6,1 7,3 7,0 20,1 (19,3) -4,5 (-17,7)
Þjónusta og annað (19) 8,1 13,1 10,3 61,7 (14,8 ) -21,2 (12,5)
Alls 99 (102) 46,5 51,1 62,9 9,9 (12,1) 22,8 (6,3)
1. Innan sviga er samanburður við síðustu könnun þegar spurt var um fjárfestingaráform 102 fyrirtækja fyrir
árin 2014-2015 (Peningamál 2014/4).
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Tafla IV-1 Könnun á fjárfestingaráformum fyrirtækja (án skipa og
flugvéla)1
1. Efri og neðri mörk þriggja vísbendinga um íbúðafjárfestingu. Vísbendingar
eru innflutningur steypustyrktarjárns, innflutningur annars byggingarefnis
og sementssala án sölu til stóriðjufyrirtækja. Við matið á bilinu eru stærðirnar
endurskalaðar þannig að þær hafi sama meðaltal og staðalfrávik og mæld
íbúðafjárfesting. Myndin sýnir hreyfanlegt meðaltal tveggja fjórðunga.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
% af VLF
Mynd IV-9
Vísbendingar um íbúðafjárfestingu1
1. ársfj. 2004 - 1. ársfj. 2015
Íbúðafjárfesting
Spá PM 2015/2
Miðgildi vísbendinga
Efri og neðri mörk vísbendinga um íbúðafjárfestingu
‘07 ‘08 ‘10 ‘12 ‘14‘09 ‘11 ‘13‘04 ‘05 ‘06
0
1
2
3
4
5
6
7
8
1. Efri og neðri mörk fimm vísbendinga um atvinnuvegafjárfestingu.
Vísbendingarnar eru innflutningur fjárfestingarvöru á föstu verði og svör
við fjórum spurningum úr könnun Gallup meðal 400 stærstu fyrirtækja
landsins. Þær spurningar snúa að mati stjórnenda á efnahagshorfum til
sex mánaða, hvernig þeir telja innlenda eftirspurn eftir vörum eða þjónustu
þeirra fyrirtækis muni þróast á næstu 6 mánuðum, hvort þeir telji fjárfestingu
þeirra fyrirtækis muni aukast á líðandi ári samanborið við fyrra ár og hvort
framlegð fyrirtækisins muni aukast milli ára. Við matið á bilinu eru allar
stærðirnar endurskalaðar þannig að þær hafi sama meðaltal og staðalfrávik
og fjárfestingin. Myndin sýnir tveggja fjórðunga hreyfanlegt meðaltal.
Vísbendingar fjárfestingar eru tafðar um tvo ársfjórðunga.
Heimildir: Gallup, Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
% af VLF
Mynd IV-8
Vísbendingar um atvinnuvegafjárfestingu1
1. ársfj. 2007 - 3. ársfj. 2015
Atvinnuvegafjárfesting
Spá PM 2015/2
Miðgildi vísbendinga
Efri og neðri mörk vísbendinga um atvinnuvegafjárfestingu
‘07 ‘08 ‘10 ‘12 ‘14 ‘15‘09 ‘11 ‘13
0
5
10
15
20
25