Peningamál - 13.05.2015, Blaðsíða 16
ALÞJÓÐLEG EFNAHAGSMÁL OG VIÐSKIPTAKJÖR
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
5
•
2
16
Ólíkt evrusvæðinu hafa hagvísar í Bandaríkjunum valdið von-
brigðum undanfarið. Tímabundnir þættir, t.d. í tengslum við slæmt
veður, hafa haft áhrif á byggingariðnað og hækkun Bandaríkjadals
hefur dregið úr samkeppnishæfni útflutningsgreina. Landsframleiðslan
jókst þannig aðeins um 0,1% á fyrsta fjórðungi þessa árs frá fyrri
fjórðungi og vísbendingar fyrir framleiðslugreinar hafa enn sem komið
er ekki gefið til kynna að vöxturinn hafi færst í aukana á öðrum
fjórðungi (mynd II-3). Störfum hefur hins vegar haldið áfram að fjölga
og mældist atvinnuleysi 5,5% í marsmánuði sem er ríflega 1 prósentu
minna en fyrir ári.
Horfur um hagvöxt meðal helstu viðskiptalanda óbreyttar frá því
í febrúar
Í nýrri hagvaxtarspá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er gert ráð fyrir svip-
uðum heimshagvexti í ár og síðustu tvö ár eða 3,5%. Það er hátt í
½ prósentu minni vöxtur í heimsbúskapnum en að meðaltali síðustu
þrjátíu ár. Hafa hagvaxtarhorfur lítið breyst frá spá sjóðsins í janúar en
eru ögn lakari en sjóðurinn spáði í október sl. þrátt fyrir að hann telji
að hin mikla olíuverðslækkun auki heimshagvöxt um ½-1 prósentu í
ár. Aðrir þættir eins og aukin svartsýni um undirliggjandi hagvaxtar-
getu eru því taldir vega þyngra.
Þótt hagvöxtur í nýmarkaðs- og þróunarríkjum haldi áfram að bera
uppi drjúgan hluta heimshagvaxtarins telur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
að hagvöxtur meðal þeirra haldi áfram að minnka og verði 4,3% í ár.
Á sama tíma er talið að hagvöxtur aukist í þróuðum ríkjum og verði
2,4%, um ½ prósentu meiri en á árinu 2014. Eins og sjá má á mynd
II-4 er búist við að þeim iðnríkjum fjölgi ört þar sem hagvöxtur verður
yfir 1% og að í engu þeirra verði samdráttur í ár.
Hagvöxtur meðal helstu viðskiptalanda Íslands sækir einnig lítil-
lega í sig veðrið og verður 1,9% í ár sem er aukning um 0,2 prósentur
frá fyrra ári og ríflega 1 prósentu aukning frá árinu 2013. Horfur um
hagvöxt þessara landa á spátímanum hafa ekki breyst frá febrúarspá
Peningamála og er áfram gert ráð fyrir 2,2% vexti á ári á næstu
tveimur árum.
Óbreyttar horfur um alþjóðaviðskipti og eftirspurn helstu
viðskiptalanda
Horfur um alþjóðaviðskipti og eftirspurn helstu viðskiptalanda hafa að
sama skapi lítið breyst frá febrúarspá bankans. Gert er ráð fyrir að inn-
flutningur helstu viðskiptalanda aukist um 2,9% í ár sem er aukning
um ríflega ½ prósentu frá árinu 2014. Munar þar mest um aukin efna-
hagsumsvif á evrusvæðinu.
Verðbólga hefur hjaðnað nokkru meira en vænst var og víða
mælist verðhjöðnun
Verðbólga og verðbólguvæntingar í helstu viðskiptalöndum Íslands
hafa hjaðnað skarpt og eru undir verðbólgumarkmiði í mörgum þeirra.
Skýrist þróunin af lækkun olíu- og hrávöruverðs en einnig er talsverður
framleiðsluslaki víða. Áhyggjur af langvarandi verðhjöðnunarskeiði á
evrusvæðinu hafa minnkað með batnandi hagvísum í kjölfar þess að
Seðlabanki Evrópu (ECB) jók skuldabréfakaup sín verulega. Verðlag stóð
Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn.
Fjöldi ríkja
< -2%
-2% til -1%
-1% til 0%
0 5 10 15 20 25 30 35
2016
2015
2014
2013
0% til 1%
1% til 2%
> 2%
Mynd II-4
Dreifing hagvaxtar meðal 35 þróaðra ríkja
1 1
14 21
7 7 21
19563
3 4 4 6 117
Heimild: Macrobond.
12 mánaða breyting (%)
Mynd II-5
Verðbólga í nokkrum iðnríkjum
Janúar 2004 - apríl 2015
Bandaríkin
Evrusvæðið
Japan
Bretland
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
‘13 ‘14‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04