Morgunblaðið - 11.07.2015, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
• Fargjaldið veitir ekki vildarpunkta
• Flug, gisting og skoðunarferðir er ekki
endurgreitt nema veður hamli flugi
• Lágmarksfjöldi er 15 manns
• Greiða verður með 4 vikna fyrirvara
ÍSAFJÖRÐUR AÐ HAUSTI
FERÐ FYRIR ELDRI BORGARA
DAGANA 25. – 26. ÁGÚST 2015
Bókanlegt hjá hópadeild Flugfélags
Íslands í síma 570 3075 virka daga milli
kl. 09:00 og 16:00 eða með tölvupósti
hopadeild@flugfelag.is
68.900 kr. 75.600 kr.
Verð á mann í tveggja manna herbergi Verð á mann í eins manns herbergi
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST
• Brottför frá Reykjavíkurflugvelli kl. 08:00 og
lent á Ísafirði kl. 08:40.
• Dagsferð:
Þingeyri – Vélsmiðja – Víkingasvæði –
Reiðhöllin.
Boðið upp á ýmsar uppákomur og veitingar.
• Þriggja rétta kvöldverður á Hótel Ísafirði.
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST
• Perlan í Djúpinu, dagsferð í Vigur.
Farið er með farþegabát inn um Djúp og siglt
nærri landi.
Gönguferð um eyjuna & fuglaskoðun.
• Frjáls tími fram að brottför frá hóteli kl. 19:00.
• Brottför frá Ísafirði kl. 19:50.
INNIFALIÐ:
• Flug til og frá Ísafirði.
• Gisting á hótel Ísafirði í eina nótt með morgunmat.
• Rúta til og frá flugvelli.
• Skoðunarferðir ásamt leiðsögn 25. og 26. ágúst.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra segir að forvígis-
menn Evrópusambandsins virði að
fullu ákvörðun íslenskra stjórn-
valda um að afturkalla aðildar-
umsókn Íslands að sambandinu.
Þeir hafi góðan skilning á þeirri
afstöðu. „Ríki Evrópusambandsins
eru okkar mikilvægustu viðskipta-
aðilar og nánar vinaþjóðir. Að Ís-
land sé ekki lengur umsóknarríki
breytir engu þar um,“ sagði hann
eftir fund sinn með Donald Tusk,
forseta leiðtogaráðs Evrópusam-
bandsins, í Brussel í gær.
„Við vorum sammála um að
horfa til framtíðar og leggja
áherslu á framkvæmd EES-
samningsins, sem reynst hefur
samningsaðilum farsællega í rúm
tuttugu ár,“ sagði hann. Samskipti
Íslands og ESB væru mjög góð og
stæðu á traustum grunni.
Virða
ákvörðun
stjórnvalda
Forsætisráðherra
fundaði í Brussel
Ljósmynd/ESB
Funda Sigmundur Davíð og Donald
Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB.
Síldarvinnslan hf. hefur keypt
frystitogarann Frera RE-73 af
Ögurvík hf. og gerir hann nú út
undir nafninu Blængur NK-125.
Skipið hefur legið í Reykjavíkur-
höfn síðustu ár eftir að Ögurvík
lagði honum, að eigin sögn vegna
hárra veiðigjalda. Nú heldur það
aftur á miðin frá Neskaupstað.
Stefnt var að því að fara fyrsta
túrinn frá Neskaupstað í gær, undir
skipstjórn Sigtryggs Gíslasonar.
Tuttugu og fjögurra manna áhöfn
er um borð og verður hann gerður
út á ufsa, grálúðu og annan botn-
fisk að sögn Gunnþórs Ingvasonar,
framkvæmdastjóra Síldarvinnsl-
unnar.
Skipið keypt nýtt 1974
Freri RE var smíðaður í Astilla-
ros Luzuriaga-skipasmíðastöðinni á
Spáni og keyptur nýr til landsins
árið 1974 af Bæjarútgerð Reykja-
víkur en hét þá Ingólfur Arnarson.
Ögurvík keypti hann árið 1985 og
var hann gerður út frá Reykjavík
þann tíma. Skipið er hið þriðja í röð
svokallaðra Spánartogara sem
keyptir voru á áttunda áratugnum.
Þeir þóttu viðbrigði fyrir það að
þeir voru stærri en tíðkast hafði áð-
ur.
Blængur NK er 79 metra langur
og búinn 5.000 hestafla vél. Honum
var breytt árið 2000 og lengdur um
tíu metra í núverandi stærð og bún-
aður hans endurnýjaður.
Síldarvinnslan hf rekur starfs-
stöðvar í Neskaupstað, Helguvík og
Seyðisfirði og stundar bæði útgerð
og fiskvinnslu. Þegar gerir félagið
út skipin Barða, Bjart, Börk, Beiti
og Birting NK. Að hlutdeildar-
félögum meðtöldum er félagið með
starfsstöðvar á 13 stöðum á land-
inu. Makríl- og síldarvertíð félags-
ins er að hefjast og hefur það ráðið
50 manns í sumarstörf í Neskaup-
stað. bso@mbl.is
Freri fékk nafnið Blængur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Farinn til veiða Togarinn Freri siglir úr Reykjavíkurhöfn.
Síldarvinnslan hf. hefur keypt togarann af Ögurvík
Hafnarlestin verður í fyrsta sinn í
sumar í ferðum fyrir almenning um
Reykjavíkurhöfn um helgina.
Lestin mun fara á heila tímanum
frá klukkan 13 og tekur hver ferð
um 30 mínútur, þar sem ekið er frá
Ægisgarði, að Hvalasafninu úti á
Granda og til baka. Lestin tekur um
50 manns í sæti, fer ekki hratt yfir
og ætti því að henta fólki á öllum
aldri. „Tilvalið er fyrir fjölskyldufólk
að skella sér í ferð og njóta þess sem
hafnarsvæðið hefur upp á að bjóða
en umhverfi hafnarinnar hefur tekið
miklum stakkaskiptum undanfarin
misseri,“ segir m.a. í tilkynningu.
Hafnarlestin
af stað í dag
Reykjavíkurhöfn Hafnarlestin fer
af stað í dag, í fyrsta sinn í sumar.