Morgunblaðið - 11.07.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Engjateigi 5 • Sími 581 2141
Stórútsala!
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
· Opið kl. 10–15 í dag ·
ÚTSALAN
ER HAFIN
•30–50% afsláttur•
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Útsalan e
r hafin
40% afsláttur af ö
llum vör
um
Flott föt fyrir
öll tækifæri
GERRYWEBER – TAIFUN – BETTY BARCLAY
STÓRÚTSALA
NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR
40–50%
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Tollar af 1933 vörunúmerum verða
afnumdir á tímabilinu 1. janúar
2016 til 1. janúar 2017, samkvæmt
frétt á heimasíðu
fjármála- og
efnahagsráðu-
neytisins.
Stefnt er að af-
námi tolla á fatn-
að og skó 1. jan-
úar 2016, líkt og
fram hefur komið
í Morgunblaðinu
og afnám ann-
arra tolla, en
tolla á matvöru,
komi til framkvæmda 1. janúar
2017, eins og Bjarni Benediktsson
greindi frá hér í Morgunblaðinu sl.
miðvikudag. Almenn vörugjöld
höfðu áður verið afnumin um síð-
ustu áramót.
Í frétt fjármálaráðuneytisins seg-
ir m.a. orðrétt: „Hinn 17. mars 2015
skipaði fjármála- og efnahags-
ráðherra þriggja manna starfshóp
um endurskoðun tollskrár. Starfs-
hópurinn skilaði til ráðherra skila-
grein þann 15. maí sl. Í skilagrein-
inni kemur fram að gjaldfærðar
tekjur ríkissjóðs af tollum námu á
árinu 2014 um 5,7 milljörðum króna.
Hlutfall matvöru var 34,2%, hlutfall
fatnaðar 31,5% og hlutfall annarra
vara var 34,3%.“
Í skilagrein starfshópsins segir
um áhrif á virðisaukaskattstekjur
ríkissjóðs af lækkun tolla að tekjur
ríkissjóðs muni lækka og það hafi
óbein áhrif á virðisaukaskatt-
stekjur.
Þó beri að hafa í huga að lækkun
tolla ætti einnig að hafa einhver já-
kvæð áhrif á virðisaukaskattstekjur,
því með lækkandi vöruverði vegna
lækkunar tolla ættu ráðstöf-
unartekjur heimilanna að aukast og
í kjölfarið neysla þeirra með tilheyr-
andi tekjuauka af virðisaukaskatti.
Nálgast má skilagrein starfshóps-
ins í heild á heimasíðu fjár-
málaráðuneytisins. agnes@mbl.is
Tollar af
1933 vöru-
númerum
afnumdir
Tollar Fjár-
málaráðuneytið.
Sumarútsölum verslunarmið-
stöðvanna var hleypt af stokk-
unum fyrir stuttu og fara þær
vel af stað ef marka má aðsókn-
ina.
„Samanburður milli ára sýnir
okkur að aðsóknin hefur aukist.
Við erum komin upp um 3% nú
þegar,“ segir Sigurjón Örn Þórs-
son, framkvæmdastjóri Kringl-
unnar.
Óvíst er hverju það má þakka
en veðrið í höfuðborginni und-
anfarnar vikur hefur ekki stuðl-
að að frekari inniveru.
„Miðað við sumarið í fyrra sem
var mikið rigningasumar þá
kemur þetta okkur skemmtilega
á óvart,“ segir Sigurjón. Fjölgun
ferðamanna leikur ákveðið hlut-
verk en Sigurjón segir þá al-
mennt fjölmenna í Kringluna.
Í Smáralindinni var svipað upp
á teningnum. „Aðsóknin hefur
verið góð og svipuð því sem við
höfum áður séð,“ segir Sandra
Arnardóttir, verkefnastjóri
markaðsdeildar Smáralindar.
Útsölutímabil beggja versl-
unarmiðstöðva stendur út júlí-
mánuð og er punkturinn settur
aftan við i-ið með götumarkaði
um verslunarmannahelgina.
laufey@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Verslun Sumarútsölur eru nú í fullum gangi hjá kaupmönnum.
Aukin aðsókn
að útsölum
Nóg að gera í verslanamiðstöðvum
- með morgunkaffinu