Morgunblaðið - 11.07.2015, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Landsbankinn hefur hafnað mörg-
um ódýrari lóðakostum en lóðinni við
hliðina á Hörpunni sem bankinn
hyggst reisa höfuðstöðvar sínar á.
Þetta herma heimildir Morgunblaðs-
ins. Mannverk var eitt þeirra fyrir-
tækja sem buðu bankanum lóð en
var hafnað.
Hjalti Gylfason, framkvæmda-
stjóri Mannverks, segist ekki sjá
nein rök sem mæla með því að rík-
isbanki byggi á svo dýrum stað sem
lóðin við Hörpuna er. Mannverk
bauð bankanum Fiskislóð 33-37 á
Granda í 101 Reykjavík. Samkvæmt
Mannverki er heildarkostnaður
byggingar á Fiskislóð að sömu stærð
og fyrirhugað að reisa við Hörpuna
5-6 milljarðar með lóðinni, en áætlað
er að höfuðstöðvar bankans í Aust-
urhöfn muni kosta 8 milljarða króna.
Eftirspurn eftir lóðum
Hjalti telur að Landsbankinn geti
líklega selt lóðina fyrir 500 milljón-
um meira en þeir keyptu lóðina á fyr-
ir nokkrum árum. Væri þá heildar-
sparnaður fyrir bankann, sem er í
ríkiseigu, 2,5 - 3,5 milljarðar króna.
„Þeir keyptu lóðina áður en upp-
bygging hófst aftur fyrir alvöru í
Reykjavík og fengu hana á mjög
góðu verði. Ef þeir færðu sig annað
og keyptu þar húsnæði með ódýrara
lóðaverði gætu þeir selt þessa lóð
aftur, en það er gríðarleg eftirspurn
eftir lóðum á þessi svæði. Ein rökin
hjá þeim er að þeir hafi fengið þessa
lóð ódýrt en hún er samt mjög mikils
virði, þannig ef þeir selja hana og
færa sig þá verður umtalsverður
sparnaður fyrir vikið,“ segir Hjalti.
Að mati Hjalta hefur lóðin á Fiski-
slóð þá kosti, fyrir utan sparnaðinn
fyrir ríkið, að aðkoma er betri fyrir
viðskiptavini og starfsmenn, nóg er
af bílastæðum og það er útsýni yfir
sjóinn. Þá væri einnig hægt að nýta
lóðina við hliðina á Hörpu undir aðra
starfsemi en „risavaxnar höfuð-
stöðvar ríkisbanka“.
Þá segir hann Landsbankann ef-
laust hafa fengið margar kynningar
á öðrum möguleikum en Austurhöfn
og að Mannverk hafi haft einn slíkan
valkost. „Þannig að þetta snýst ekki
bara um Fiskislóðina heldur líka
aðra möguleika heilt yfir,“ segir
Hjalti og bætir við að lokum: „Hvað
gæti t.d. Landspítalinn keypt mörg
ný tæki fyrir þrjá milljarða?“
Gætu sparað sér milljarða
Landsbankinn hafnaði tilboði Mannverks um lóð á Granda undir höfuðstöðvar
Framkvæmdastjóri Mannverks segir bankann geta sparað allt að 3,5 milljarða
Hafnað Tillaga Mannverks að mögulegri uppbyggingu við Fiskislóð.
Tillaga að byggingu
Fiskislóð 33-37
Fiskislóð á Granda
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Lóð undir
væntanlegar
höfuð-
stöðvar
Landsbank-
ans við
Austurhöfn
var keypt á
tæplega
einn milljarð
króna. Krist-
ján Krist-
jánsson, upplýsingafulltrúi
bankans, segir staðsetningu
lóðarinnar henta mjög vel undir
alla starfsemi bankans. „Við
vorum búnir að skoða margar
lóðir en það er nú ekki svo að
bankinn geti staðsett sig hvar
sem er,“ segir Kristján um til-
boð Mannverks og bendir á að
Landsbankinn vilji hér eftir sem
hingað til vera í miðborginni.
Hafa höfuðstöðvar hans t.a.m.
verið við Austurstræti síðan fyr-
ir aldamótin 1900. „Við skil-
greinum okkur sem miðborgar-
fyrirtæki og sækjumst því eftir
að vera þar.“
Á heimasíðu Landsbankans
kemur m.a. fram að Austurhöfn
sé „besti kosturinn“. Eru þar
nefnd dæmi um lóðaverð fyrir
skrifstofuhúsnæði í Reykjavík.
Fermetraverð í miðborginni er
75.000-100.000 kr., í Borg-
artúni/Höfðatúni 60.000-
70.000 kr. og 40.000-45.000
kr. við Suðurlandsbraut/
Grensás/Skeifu. Lóð Lands-
bankans kostaði 957 milljónir
eða sem nemur 58.000 kr. á fer-
metrann.
58.000 kr. á
fermetrann
HÖFUÐSTÖÐVARNAR
Kristján
Kristjánsson
Íþróttafélagið Magni á Grenivík
varð 100 ára í gær og hélt upp á
daginn með 4:0 sigri á Berserkjum í
3. deildinni í fótbolta á heimavelli.
Margt var um manninn á vell-
inum og stemningin góð, eins og
nærri má geta, en Magni er lang-
efstur í deildinni.
Lars Óli Jessen gerði fyrsta
markið eftir 50 sekúndur, Andrés
Vilhjálmsson, Andri Jens Alberts-
son og Orri Freyr Hjaltalín (víti)
gerðu hin mörkin. Sumir líktu því
við 100 ára afmæli félagsins að Atli
Jens skyldi skora; varnarmaðurinn
stóri sem lék með Þór árum saman
en gekk til liðs við Magna í vetur
hefur nefnilega aldrei skorað áður í
leik; ekki einu sinni í yngri flokk-
unum!
Þorsteinn Þormóðsson, formaður
Magna, er himinlifandi með áfang-
ann. „Magni er gríðarlega mikil-
vægur fyrir sveitarfélagið og hefur
verið lengi. Við sinnum miklu
krakkastarfi og félagið nýtur mikils
stuðnings bæði fólks og fyrirtækja.“
Boðið var upp á afmælistertu eftir
leik en formlega verður haldið upp
á afmælið á Grenivíkurgleðinni um
miðjan ágúst. skapti@mbl.is
Vinna Strákarnir sem sáu um markatöfluna höfðu nóg að gera
í fyrri hálfleik en þurftu hvorki að hreyfa legg né lið í seinni.
Magnamenn Oddgeir Ísaksson, fyrrverandi útgerðarmaður,
og Stefán Pálmason, sem lengi hefur starfað fyrir Magna.
Veitingar Áhorfendum var boðið upp á grillaðar pylsur og
drykki í leikhléinu. Heimir Ásgeirsson í hlutverki vertsins.
„Magni gríðarlega mikilvægur í samfélaginu“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Strax af stað Magnamenn fagna fyrsta marki gærkvöldsins, sem Lars Óli Jessen skoraði með skalla fimmtíu sekúndum eftir að dómarinn flautaði til leiks.