Morgunblaðið - 11.07.2015, Side 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2015
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
sagði í gær að hann teldi að vest-
urveldin og Íran næðu brátt sam-
komulagi um kjarnorkuáætlun Ír-
ana.
Viðræður hafa staðið yfir und-
anfarnar vikur í Vínarborg. Vonast
var til að niðurstaða fengist nú í
vikulokin en það tókst ekki.
„Okkur miðar áfram en afar
hægt. Það eru enn óafgreidd mál,“
sagði Philip Hammond, utanrík-
isráðherra Breta, í gær.
Íranar sökuðu vesturveldin í gær
um að draga lappirnar í viðræðun-
um.
Segir samkomulag
við Íran í sjónmáli
Samningar Utanríkisráðherra Írans ræðir
við fréttamenn af hótelsvölum í Vín.
Guðm. Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Evruhópurinn, sem skipaður er fjár-
málaráðherrum evruríkjanna, segir
að efnahagsáætlun sú, sem Grikkir
lögðu fram á fimmtudagskvöld, sé
ýtarleg.
Áætlunin er forsenda þess, að
Evrópusambandið fallist á að veita
Grikkjum ný neyðarlán. Jeroen
Dijsselbloem, forseti evruhópsins,
sagði að hægt yrði að taka mikil-
væga ákvörðun í málinu á fundi fjár-
málaráðherra evruríkjanna í dag.
Alexis Tsipras, forsætisráðherra
Grikklands, sendi áætlunina til
lánardrottna gríska ríkisins: Evr-
ópusambandsins, Seðlabanka Evr-
ópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í
henni er fallist á margar þeirra
krafna um niðurskurð og skatta-
hækkanir, sem gríska þjóðin hafnaði
í þjóðaratkvæðagreiðslu sl. sunnu-
dag.
Jean-Claude Juncker, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, Mario
Draghi, seðlabankastjóri Evrópu,
Christine Lagarde, framkvæmda-
stjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, og
Dijsselbloem héldu símafund í gær
um áætlun Grikkja.
Dijsselbloem sagði á blaðamanna-
fundi, að gríska áætlunin væri ýtar-
leg og yrði enn trúverðugri ef hún
hlyti staðfestingu gríska þingsins.
„En hvað sem því líður verðum við
að íhuga vandlega hvort tillögurnar
eru góðar og raunhæfar. Þetta er
stór ákvörðun, hver sem niðurstaðan
verður.“
Gríska þingið ræddi áætlunina í
gærkvöldi en niðurstaða umræðunn-
ar lá ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun.
Vonast eftir niðurstöðu í dag
Fjármálaráðherrar evruríkjanna
hittast í Brussel í dag til að fjalla um
málið. Þá ætla leiðtogar evruríkj-
anna að hittast eftir hádegi á sunnu-
dag og í kjölfarið verður leiðtoga-
fundur allra aðildarrríkja
Evrópusambandsins.
Matteo Renzi, fjármálaráðherra
Ítalíu, sagði í gær að hann væri
bjartsýnn og vonaði að niðurstaða
fengist strax í dag svo ekki yrði þörf
á að halda fundina á sunnudag.
François Hollande, forseti Frakk-
lands, sagði að tillögur Grikkja væru
raunhæfar og sannfærandi. „Grikkir
hafa sýnt fram á, að þeir vilja vera
áfram á evrusvæðinu,“ sagði hann.
Þýsk stjórnvöld vildu í gær lítið
tjá sig um áætlun Grikkja. Martin
Jäger, talsmaður þýska fjármála-
ráðuneytisins, sagði að Þjóðverjar
myndu ekki fallast á neina þá nið-
urfellingu grískra skulda sem leiddi
til enn meira útlánataps. „Niður-
staða fundar evruhópsins er alger-
lega opin,“ sagði hann.
Náist samkomulag á sunnudag
um að veita Grikkjum fjárhags-
aðstoð, er ljóst að þjóðþing að
minnsta kosti 8 evruríkja, þar á
meðal Þýskalands, þurfa að stað-
festa samkomulagið. Líklegt þykir,
að slíkt samkomulag yrði samþykkt
víðast hvar en andstaða hefur þó
verið í ýmsum ríkjum við frekari
niðurfellingu skulda Grikkja.
Fjármálamarkaðir beggja vegna
Atlantshafsins tóku fréttunum um
aðgerðaáætlun Grikkja vel og hækk-
uðu hlutabréfavísitölur bæði í Evr-
ópu og Bandaríkjunum í gær.
Frakkar segja efnahags-
áætlun Grikkja raunhæfa
Áætlunin forsenda þess að Evrópusambandið fallist á að veita nýtt neyðarlán
Söluskattur
Almennur virðisaukaskattur
(VSK) sameinaður í 23% þrepi
Grunnþættir (matur, vatn, orka)
fest í 13%
Lyf, bækur og leikhús
fest í 6%
Skattaafslættir til eyja
30% VSK-afsláttur til grísku
eyjanna numinn af í skrefum
Fyrirtækjaskattur hækkaður
úr 26% í 28%
Aðrir skattar
Aðgerðir til að stemma
stigu við skattsvikum,
skattgreiðslukerfin
einfölduð
Skattsvik
Umbætur í skattamálum
Síðustu tilboð Grikkja til lánardrottna sinna á evrusvæðinu á fimmtudag
Photo:
Aris Messinis
Grikkland: Skuldasamningar
Niðurskurður í hernum
Lykilatriði
Umbætur á stjórnkerfi
Markmið í ríkisrekstri
Opinberar
skuldir
Eftirlaunaaldur hækkaður í 67 ár, eða 62 ár fyrir
fólk sem hefur verið 40 ár á vinnumarkaði til
ársins 2022
Fjárhagsáætlun hersins árið 2015
skorin niður um 100 milljón evrur,
og 200 milljón evrur árið 2016
Ráðgjafar munumeta
opinbera starfsmenn,
áætlað að nútímavæða
opinbera geirann
Markmið sem búið var að
samþykkja af lánardrottnum
endurskoðuð í ljósi bágrar
fjárhagsstöðu.
Heimild: ríkisstjórn Grikklands
Einkavæðing
Útistandandi hlutir ríkisins í
fjarskiptarisanum OTE seldir,
hafnirnar í Píreus og Þessalóníku
seldar ekki síðar en í október
Reynt að grynnka
á opinberum
skuldum, sem núna
standa í 180% af
þjóðarframleiðslu.
Heimild: ríkisstjórn
Grikklands
Umbætur á ellilífeyri
Skattar settir á
sjónvarpsauglýsingar
Karlmaður á fimmtugsaldri var
handtekinn í Bæjaralandi í suður-
hluta Þýskalands í gærmorgun eftir
að hann skaut 82 ára gamla konu og
72 ára gamlan karlmann til bana.
Maðurinn skaut fólkið út um
glugga á Mercedes-bíl sem hann ók
gegnum þorpið Leutershausen-
Tiefenthal. Hann skaut einnig á
bónda sem ók á dráttarvél framhjá
en bóndinn slapp að mestu ómeidd-
ur.
Maðurinn ók síðan um 30 km að
bensínstöð. Þar ógnaði hann tveimur
starfsmönnum en þeim tókst að yfir-
buga hann og binda þar til lögreglan
kom. Joachim Herrmann,
innanríkisráðherra Þýskalands,
sagði að starfsmennirnir hefðu sýnt
mikið hugrekki.
Ekki er vitað hvað manninum
gekk til og ekki er vitað til að hann
hafi haft nein tengsl við fólkið sem
hann skaut á. Gerhard Neuhof, sak-
sóknari í nágrannaborginni Ans-
bach, segir að maðurinn muni sæta
geðrannsókn.
Siegfried Hess, bæjarstjóri í
Leutershausen, sagði við þýsku
fréttastofuna DPA að hann væri
agndofa. „Hér búa 5.500 manns og
hafa alltaf lifað rólegu lífi. Við þekkj-
um svona mál aðeins úr sjónvarp-
inu.“
AFP
Skotárás Lögreglumenn í Tiefenthal-Leutershausen, þar sem karl og kona
voru skotin til bana. Ekki er vitað hvað árásarmanninum gekk til.
Maður skaut tvö til
bana í Þýskalandi
Dagblöðin The
Wall Street
Journal og The
Guardian birtu í
gær fyrsta kafla
bókarinnar Go
Set a Watchman,
eftir bandarísku
skáldkonuna
Harper Lee.
Bókin kemur
út á þriðjudag, 60 árum eftir að hún
var skrifuð,og ríkir mikil eftirvænt-
ing meðal bókmenntaunnenda.
Bókin er þegar orðin sú söluhæsta
hjá netsölunni Amazon. Fyrirtækið
vildi ekki veita upplýsingar um
fjölda pantana en útgefandinn Har-
perCollins sagði að fyrsta prentun í
Bandaríkjunum yrði tvær milljónir
eintaka.
Go Set a Watchman gerist 20 ár-
um eftir atburðina sem lýst er í To
Kill a Mockingbird sem Harper Lee
sendi frá sér 1960 og hefur síðan
selst í um 40 milljónum eintaka um
allan heim. Lee skrifaði Go Set a
Watchman samt fimm árum fyrr,
en útgefandi hennar hvatti hana til
að nýta endurlitskafla í sögunni til
að skrifa nýja skáldsögu.
Eftirvænting eftir
bók Harper Lee
Harper Lee