Morgunblaðið - 11.07.2015, Síða 52
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 192. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Panta kannabis áður en þeir lenda
2. Hafa veðbankarnir rangt fyrir sér?
3. Fær engan frið á hótelinu
4. Gista á skólalóðum og bílastæðum
Sunna Gunnlaugs Trio er á tón-
leikaferðalagi í Evrópu um þessar
mundir og leikur í dag í Leipzig í
Þýskalandi. Í framhaldi af því heldur
tríóið til Tékklands og heldur þrenna
tónleika á vegum Bohemia Jazz Fest,
einnar stærstu djasshátíðar Tékk-
lands sem haldin er í nokkrum borg-
um á ári hverju. Sunna Gunnlaugs
Trio hefur nýlokið við hljóðritun nýs
disks sem verður gefinn út á Jazzhá-
tíð Reykjavíkur í ágúst.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tríó Sunnu leikur á
Bohemia Jazz Fest
Ólöf Arnalds og
Skúli Sverrisson
ætla að fagna
sumrinu með tón-
listar- og ljóða-
dagskrá í menn-
ingarhúsinu
Mengi í kvöld kl.
21, með aðstoð
vina og óvæntu
samspili gesta. Mengi er á Óðinsgötu
2 í Reykjavík.
Ólöf og Skúli fagna
sumri í Mengi
Tónlistarmennirnir KK, Þorleifur
Guðjónsson og Magnús R. Einarsson
halda tónleika á Café Rosenberg kl.
22 í kvöld. Þeir munu flytja lög úr
lagasafni KK auk lagasmíða annarra,
m.a. af plötunum
Lucky One, Bein
leið, Hótel Föröy-
ar og gömul blús-
lög eftir Robert
Johnson, Jimmy
Reed, J.J. Cale
o.fl.
Leika lög úr safni KK
og gömul blúslög
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-15 m/s, hvassast suðaustantil og á Vestfjörðum.
Víða rigning, einkum síðdegis, en úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti allt að 15 stig um
landið vestanvert en 4 til 8 stig austanlands.
Á sunnudag og mánudag Austan og norðaustan 3-10 m/s, hvassast norðvestantil.
Skýjað víðast hvar og væta með köflum í flestum landshlutum, síst þó á Vesturlandi.
Hiti 6 til 16 stig, svalast inn til landsins norðaustantil.
„Ég held að allir hérna geri sér fulla
grein fyrir því að KR verður erfiður and-
stæðingur. KR er nánast atvinnuklúbbur
í dag, með nokkra erlenda leikmenn
sem gera ekki annað en að spila fót-
bolta og marga íslenska leikmenn sem
eru með mestan hluta af sínum launum
í gegnum fótboltann,“ segir Hólmar Örn
Eyjólfsson, leikmaður Rosenborg, um
væntanlega Evrópuleiki gegn KR. »4
Vita vel að KR verður
erfiður andstæðingur
Valsmenn eru á gríðarlegri
siglingu undir stjórn Ólafs
Jóhannessonar. Valur gerði
góða ferð í Garðabæinn í
gærkvöld þegar liðið lagði
Íslandsmeistara Stjörn-
unnar að velli, 2:1. Með sigr-
inum komst Valur upp fyrir
KR í annað sæti deild-
arinnar en meistararnir eru
í sjötta sæti og hafa enn
ekki unnið heimaleik í deild-
inni á tímabilinu. »3
Valsmenn komnir
upp í annað sætið
Jón Margeir Sverrisson, Kolbrún Alda
Stefánsdóttir, Thelma Björg Björns-
dóttir og Sonja Sigurðardóttir eru
farin til Glasgow þar sem þau keppa á
heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi.
Kristín Guðmundsdóttir landsliðs-
þjálfari segir að
verkefni eins og
þetta sé gífur-
lega mikilvægt
fyrir íþrótta-
fólkið sem finni
oft að það sé
ekki eitt í
heim-
inum.
»1
Gífurlega mikilvægt
verkefni í Glasgow
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta hafa verið frábærir dagar á
fjöllum og sólin skinið allan tímann.
Nú erum við að ganga hér í gegnum
kjarrið í Þórsmörk og koma niður í
Langadal; notalega þreytt eftir
langa göngu,“ segir Friðrik Már
Baldursson, hagfræðingur og pró-
fessor. Þau Kristín Björnsdóttir
kona hans, sem er prófessor við Há-
skóla Íslands, brugðu undir sig betri
fætinum í vikunni og lögðu upp í
Laugavegsgöngu á miðvikudags-
morgun. Fyrsti áfanginn var rösk-
lega 20 kílómetra leið úr Laugum
suður að Álftavatni, þar sem þau
tjölduðu hjá skála Ferðafélags Ís-
lands. Á fimmtudag var gengið suð-
ur í Emstrubotna, sem eru 17 kíló-
metrar, og leið þaðan suður í
Þórsmörk sem þau gengu í gær var
ámóta löng.
Þau Friðrik Már og Kristín hafa
lengi stundað útivist og fara á sumri
hverju í nokkurra daga ferðir.
„Við höfum verið á Vestfjörðum,
Norðurlandi og raunar farið mjög
vítt og breitt um landið. Laugaveg-
urinn hefur verið á dagskrá og beðið.
En svo tókum við af skarið og þetta
er ekkert mál, því að inn í Laugar
eru reglulegar rútuferðir og aftur úr
Þórsmörkinni heim. Þetta gæti varla
verið þægilegra,“ segir Friðrik um
fjallaferðir þeirra hjóna.
Ætla á Eyjabakka
Þau taka sér nú pásu í fáeina daga
en innan skamms hyggjast þau fara
með góðum hópi sem ætlar að ganga
um Lónsöræfi frá Eyjabökkum suð-
ur í Smiðjunes, leið sem æ fleiri fara.
Mikil snjóalög hafa verið á hálend-
inu að undanförnu, sem hefur sett
strik í ýmsa reikninga. Á Laugaveg-
inum er enn talsverður snjór þegar
komið er upp fyrir Brennisteinsöldu
og í kringum Hrafntinnusker. „Ef
fólk er vel útbúið er samt ekkert mál
að ganga þarna yfir mjúkan snjóinn.
Náttúrufar á þessari leið er mjög
áhugavert og stórbrotið. Mér fannst
nánast upplifun að koma að Markar-
fljótsgljúfri, sem er nærri því 200
metra hátt þar sem hæst er.“
Friðsældin á undanhaldi
Þúsundir göngugarpa fara Lauga-
veginn á hverju ári. Þótt skammt sé
um liðið síðan leiðin opnaðist er um-
ferðin strax orðin þétt og margir á
ferðinni. „Stundum er þetta ein hala-
rófa göngufólks og sú friðsæld sem
einkennt hefur íslensku öræfin er
aðeins á undanhaldi. Þá er mikið
álag á ákveðnum svæðum á Lauga-
veginum og á nokkrum stöðum
þyrfti að fara í einhverjar fram-
kvæmdir,“ segir Friðrik Már, sem
er ánægður með þessa daga á fjöll-
um. Þeir séu góð hvíld og fjarlægð
frá viðfangsefnum líðandi stundar –
þó að við þessar aðstæður komi
líka oft upp í kollinn góðar hug-
myndir.
Halarófa um allan Laugaveginn
Sólin skein alla dagana á göngu-
garpana Friðrik Má og Kristínu
Ljósmynd/Páll Guðmundsson
Fjallafólk Kristín Björnsdóttir og Friðrik Már Baldursson á Laugaveginum í vikunni. Þau náðu í Þórsmörk í gær, notalega þreytt, eftir frábæra ferð.
Búið er að opna Ferðafélags-
skálann í Nýjadal á Sprengi-
sandsleið og vegurinn sá yfir
hálendið er að opnast, að sögn
Páls Guðmundssonar, fram-
kvæmdastjóra FÍ.
„Þetta er eiginlega allt að
opnast og komið í fullan gang,“
segir Páll sem sjálfur verður
víða á ferðinni í sumar, svo sem
norður á Ströndum
með ungum og
efnilegum ferða-
görpum sem fá
nú að kynnast
landinu okkar
góða.
Allar leiðir nú
að opnast
LANDIÐ OKKAR GÓÐA