Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2015 Listaskáldin launalausu Sé úthlutunarsaga launasjóðsrithöfunda skoðuð má sjá aðá síðustu tíu árum hefur að meðaltali aðeins einn höfundur und- ir þrítugu hlotið starfslaun á ári. Árin 1995-2004 fengu níu mismun- andi rithöfundar undir þrítugu greidd út 216 mánaðarlaun, sem samsvarar tvennum árslaunum á hvern höfund, eða tuttugu prósent- um af úthlutunum í heildina. Þegar litið er til áranna 2005-2014 sést hins vegar að sex mismunandi höfundar fengu aðeins 39 mánaðar- laun, sem samsvarar um hálfum árslaunum á hvern höfund, eða fjór- um prósentum af heildarúthlut- unum. Samt hefur mánaðarlaunum til rithöfunda fjölgað um rúmt hundrað. Líti maður yfir nöfn þeirra sem voru á þrítugsaldri og fengu laun á tíunda áratugnum er greinilegt að þetta eru þeir höfundar, um fertugt, sem eru mest áberandi í bók- menntaflórunni í dag, m.a. Andri Snær Magnason, Gerður Kristný, Auður Jónsdóttir, Guðrún Eva Mín- ervudóttir og Steinar Bragi. Að sama skapi má sjá skilmerkilega þróun þar sem sést að þau sem hlutu starfslaun fyrir þrítugt hafa fengið þau nær sleitulaust áfram síðan. Úthlutun ræður úrslitum Aðspurður segir Andri Snær Magnason, sem fékk fyrst starfs- laun 24 ára gamall, það hafa skipt sköpum að hafa getað einbeitt sér að því að skrifa og ekki hafa þurft að byrja að vinna á auglýsingastofu eða við hellulagnir. Hann lofar enn fremur árangur sjóðsins og segir það sýnt að þeir sem fengu laun greidd á árunum milli 1990 og 2000 hafi skilað sjáanlegum árangri, sé litið til þýðinga íslenskra bók- menntaverka út á við. „Það hefur sýnt sig með þessar útgáfur erlendis að það eru stærstu bókmenntaþjóðirnar sem gefa okkar höfunda út. Þeir hafa jafnframt fengið verðlaun í samkeppni við er- lenda höfunda. Það ræður úrslitum að þessir höfundar fengu tíma til að skrifa bækur sínar af alvöru. Við er- um ekki bara í áhugabókmenntum,“ segir hann. Andri Snær telur þessi kynslóða- skil, eins og þau birtast í úthlut- unum til rithöfunda, varhugaverð og bendir á mikilvægi þess að end- urnýjun eigi sér stað. „Ef það koma ekki nýir höfundar sem hafa nýtt sjónarhorn missa bókmenntirnar tengslin við heilu kynslóðirnar. Það er mögulega einhver Einar Kárason þarna milli tvítugs og þrítugs, sem verður ekki Einar Kárason.“ Byrja á þakinu, enda á grunninum Ungir höfundar í dag upplifa sig sniðgengna og eru að missa trúna á sjóðinn, samkvæmt Valgerði Þór- oddsdóttur framkvæmdastýru Með- gönguljóða. Þá er algeng skoðun að helst þurfi að hafa gefið út stórverk áður en möguleiki sé á starfslaunum. Eiríkur Örn Norðdahl, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2012 og var jafnframt tilnefndur til Bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu sína Illsku, var til að mynda búinn að gefa út tvær skáldsögur og fjórar ljóðabækur, þýða um tíu bækur (starfslaun eru líka ætluð þýðendum), var marg- verðlaunaður; hafði stofnað og setið í stjórn Nýhils og sinnt aragrúa annarra starfa tengdra bók- menntum þegar hann fékk loks starfslaun, þá þrítugur, en hann hafði fyrst sótt um í sjóðinn 24 ára gamall. „Það munaði minnstu að ég bug- aðist bara og hætti þessu,“ segir hann. Eiríkur talar einnig um að „bjúrókratískar þumalputtareglur“ sem umsóknarferlið byggi á geti verið stirðar. Þriðjungs lækkun Faglegt mat á umsóknunum um starfslaun listamanna er byggt á verkreglum sem stjórn listamanna- launa hefur sniðið. Þær eiga upp- runa sinn í beiðni umboðsmanns Al- þingis árið 2003 þar sem bent var á að engar „sérstakar reglur eða við- miðanir fyrir úthlutanir listamanna- launa“ væru tiltækar. Síðustu fimm ár áður en verklagsreglur voru hafðar til hliðsjónar voru 16 úthlut- anir upp á 150 mánuði til höfunda undir þrítugu. Næstu fimm ár eftir að verklagsreglur voru settar voru hins vegar átta úthlutanir upp á 51 mánuð, einungis þriðjungur þess sem áður var. Laxness hefði verið hafnað Kerfið sem úthlutunarnefndir fara eftir byggir á stöðlum þar sem ferill listamanns leikur veigamikið hlut- verk í mati á umsóknum. Í tilfelli rithöfunda byggir það nær alltaf á því hvort verk þeirra hafa fengið birtingu og einnig hvar þau hafa birst. Samkvæmt þessum verkferl- um hefði t.d. fyrstu skáldsögu Hall- dórs Laxness, Barni náttúrunnar, verið hafnað þar sem höfundur hennar hafði ekki hlotið útgáfu áð- ur. Þar að auki ríkir óneitanlega ákveðið stigveldi á útgáfumarki og skiptir þá máli hvort gefið er út hjá litlu forlagi eða stóru. Þessi innbyggða virkni sem tekur mið af ferli listamanns stuðlar þann- ig að vissri stöðlun fagurbókmennta þar sem stór forlög eru líklegri til þess að láta markaðslögmál ráða, veðja frekar á reynda höfunda og eru síður tilbúin að taka áhættu – eins og viðkvæði ungskálda hljómar. Í takt við tímann Á sama tíma og það stendur í menningarstefnu ríkisstjórnarinnar að „stuðningur stjórnvalda við menningar- og listalíf í landinu“ þurfi að „vera í takt við tímann“, hljóta sífellt og stöðugt færri rithöf- undar undir þrítugu ritlaun þrátt fyrir fleiri umsóknir og fleiri mán- aðarlaun. „Það eru um fjörutíu þúsund manns á milli tvítugs og þrítugs á Íslandi og það er forskastanlegt að við höfum ákveðið að enginn þeirra eigi að helga sig ritstörfum og skrifa um veruleika þessarar kyn- slóðar sem er að lifa þessa pólitísku og tæknilegu umbrotatíma. Þetta verður ekki lesið í gegnum ein- hverjar twitter-færslur, það hlýtur einhver stór skáldsaga að hafa farið forgörðum. Eitthvert stórvirki er ekki til í dag vegna þess að við höf- um ekki pólitískt, eða sem þjóð, eða af einhverri annarri ástæðu, leyft einhverjum að helga sig því að búa til þetta verk,“ segir Andri Snær. Morgunblaðið/Styrmir Kári UMSÓKNIR Í LAUNASJÓÐ RITHÖFUNDA HAFA ALDREI VERIÐ FLEIRI. VEITTUM MÁNAÐARLAUNUM FJÖLGAR EN SÍFELLT FÆRRI RITHÖFUNDAR UNDIR ÞRÍTUGU FÁ STARFSLAUN ÚR SJÓÐNUM. ERU UNGIR RITHÖFUNDAR HUGSANLEGA VERRI Í DAG EN FYRIR TÍU ÁRUM? Heimild: Vefsvæði Rannís 60 50 40 30 20 10 0 1995 2015 0 54 6 Úthlutanir til rithöfunda undir 30 ára úr launasjóði rithöfunda Fjöldi mánaðarlauna úthlutað á ári * Bókmenntasamfélag sem hlúir ekki að yngstu höfundumsínum, sinnir ekki menningarumfjöllun og þýðir ekki er-lendar fagurbókmenntir mun ekki lifa lengi, sama hversu vel það stendur í augnablikinu. - Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur Þjóðmál KJARTAN MÁR ÓMARSSON kmo@mbl.is Almennt er óskað eftir „upplýs- ingum um feril umsækjenda, list- rænt gildi verkefnisins og rök- studda tímaáætlun“. Þar að auki er óskað eftir hnitmiðaðri grein- argerð og eins upplýsingum um starfstíma, „um námsferil svo og verðlaun og viðurkenningar“ . Lagt er mat á þrjá þætti sem eru gefnir bókstafseinkunn, A, B, eða C. Fyrst er lagt mat á hversu „áhugaverð“ umsókn er og hve „mikið listrænt gildi“ hún hefur. Næst er lagt mat á feril lista- manns og honum gefin einkunn eftir því hvort hann hefur A) „hlotið afgerandi viðurkenningu fyrir verk sín“, B) „hvort þau hafi verið sýnd, flutt, eða birt op- inberlega“ og C) hvort verk „listamanns hafa sjaldan eða ekki verið sýnd, flutt eða birt op- inberlega“. Loks er lagt mat á verk- og tímaáætlun. Einungis umsóknir sem flokkaðar eru í A- og B-liði komast áfram og eru flokkaðar þar til eingöngu fram- úrskarandi umsóknir standa eft- ir. Af þessu ferli má sjá að hafi verk listamanns „sjaldan eða ekki verið sýnd, flutt eða birt opinberlega“, eins og það er orðað, þá er næsta víst að hann fær ekki starfslaun. Þannig er innbyggt í verkreglurnar ferli sem vinnur gegn nýliðun. FAGLEGT MAT Á UMSÓKNUNUM Mánaðarlaun greidd til rithöfunda undir 30 ára 4% 81% 96% 216 39 918 1.011 19% Mánaðarlaun til rithöfunda alls Heimild:Vefsvæði Rannís Starfslaun rithöfunda 1995-2004 2005-2014

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.