Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Side 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Side 21
að nokkrir þeirra væru sárir. Þeir náðu að brjótast út um vegg aftan á hlöðunni og komast undan í skjóli eldsins og reyksins. Eftir því sem eldurinn dreifðist um bæinn þurftu þeir að færa sig um set en þeim tókst að fela sig fyrir Þjóðverj- unum. Á sama tíma komu hermenn með kistu inn í kirkjuna, þangað sem þeir höfðu rekið konur og börn. Þeir kveiktu á kveikjuþráðum á kistunni. Í henni voru eldsprengjur. Eldur og svartur þykkur reykur fyllti kirkjuna. Öskrandi reyndu konur og börn að finna staði í yfir- fullri kirkjunni þar sem enn var hægt að finna loft til að anda. Hóp- ur náði að brjótast inn í skrúðhúsið, þeirra á meðal Marguerite Rouff- anche. Þegar þýsku hermennirnir urðu þess varir skutu þeir inn í skrúðhúsið. Dóttir Marguerite var ein þeirra sem dóu þar. Marguerite komst út um glugga aftan við alt- arið og kona fylgdi á eftir henni með barni sínu. SS-hermennirnir fyrir utan urðu þeirra varir og skutu þau. Aðeins Marguerite komst lifandi frá því. Hún var sú eina sem komst lifandi úr kirkjunni. Lítill eldsmatur var í steinkirkj- unni og þrátt fyrir að hermennirnir hefðu kastað inn heyi og öðrum eldsmat dugði það ekki til þess að drepa allar konurnar og börnin úr eldi og reyk. Að lokum stilltu her- mennirnir upp byssum sínum og skutu á líkamana sem lágu í kirkj- unni. Um klukkan fimm var drápunum að mestu lokið. Hermennirnir rændu þá verðmætum úr húsunum og kveiktu svo í þeim. Fólk í ná- grenni Oradour hafði séð reyk og kom þar að en hermennirnir skutu á þá sem komu of nærri. Á meðal fólksins sem bar að voru foreldrar barna sem höfðu verið í skólunum. Í örvæntingu reyndu sum þeirra að kanna afdrif barna sinna en allir sem komu of nærri voru drepnir. Þrjú börn Pinède-fjölskyldunnar höfðu falið sig á hóteli bæjarins. Þau þurftu nú að flýja eldinn og hlupu í flasið á SS-hermanni. Hann leyfði þeim að sleppa. Annars stað- ar reyndi SS-hermaður að vísa tveimur mæðrum frá þorpinu en áður en þær gátu farið bar aðra SS-hermenn að. Þeir tóku þær inn í hlöðu og skutu. Um klukkan sjö kom sporvagn- inn frá Limoges og nam staðar fyrir utan þorpið. Farþegunum var skipað út og íbúar Oradour sem komu með vagninum voru teknir til hliðar. Þeim var síðan sleppt en sagt að halda sig fjarri bænum. SS- hermennirnir fóru skömmu síðar og skildu aðeins eftir nokkra verði sem dvöldu í húsi Dupic. Það var síðasta húsið sem kveikt var í. Á örfáum klukkustundum hafði heilu þorpi verið eytt. Alls höfðu 190 karlmenn, 247 konur og 205 börn verið drepin. Þetta hroðaverk varð fljótt al- ræmt og gekk hegðun SS- hersveitarinnar fram af mörgum öðrum Þjóðverjum. Hinn virti þýski hershöfðingi Erwin Rommel sendi formleg mótmæli til yfirstjórnar hersins. En það var ákveðinn tví- skinnungur í mótmælum Þjóðverja. Das Reich hafði lengi barist á austurvígstöðvunum og þar voru slík voðaverk tíð. Svo virtist sem önnur lögmál giltu í Vestur-Evrópu. Þýski herinn hóf rannsókn á þess- um atburði en Diekmann, sem stýrði SS-herdeildinni í Oradour, og margir í sveit hans dóu í orrust- unum í Normandí skömmu síðar og rannsókninni var sjálfhætt. Löngu síðar þurftu sumir hermenn að svara til saka vegna fjöldamorð- anna. Rústirnar skyldu óhreyfðar Þann 4. mars 1945 kom leiðtogi Frakka, Charles de Gaulle, til Oradour-sur-Glane. Hann fyrirskip- aði að bærinn Oradour skyldi aldrei verða endurbyggður. Rústir bæjar- ins ættu að fá að standa sem minn- isvarði um þennan og aðra stríðs- glæpi. Að koma til Oradour var djúp- stæð reynsla. Að ganga um vel varðveittar rústir bæjarins hreyfir óneitanlega við manni. Að standa inni í kirkjunni er yfirþyrmandi. Í safni sem tengt er við bæinn er sýning sem segir sögu hernámsins og lýsir þessum degi í Oradour auk fjölda annarra stríðsglæpa. Þar er líka hliðarsalur sem geymir þær myndir sem til eru af fórnarlömb- unum og myndir frá því þegar Oradour var ennþá lifandi bær. Í salnum hljómar upptaka þar sem nöfn og aldur þeirra sem voru myrt eru lesin yfir hátalarakerfi. Það eru ekki nema rétt rúm 70 ár liðin frá fjöldamorðunum í Oradour-sur- Glane. Sum barnanna í bænum væru enn á lífi í dag hefðu þau ekki verið myrt þennan örlagaríka dag. Að standa inni í kirkjunni er yfirþyrmandi reynsla. * Að koma til Oradour er djúpstæðreynsla. Í safni sem tengt er við bæinner sýning sem segir sögu hernámsins og lýsir þessum degi í Oradour auk fjölda annarra stríðsglæpa. Inngangurinn að þorpstorginu þar sem fólkinu var safnað saman. Kona leggur blóm að minnisvarða í kirkjugarði Oradour-sur-Glane þar sem nasistar frömdu hryllilegt voðaverk 1944. Ferðamenn virða fyrir sér heillegar rústir þorpsins og minnast þeirra sem létust. Hægt er að fá leiðsögn um svæðið. AFP AFP Rústir Oradour-sur-Glane standa sem minnisvarði um fólkið sem dó og stríðsglæpi almennt. 5.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.