Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Page 42

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Page 42
Jón Ma. Ásgeirsson Spinoza ekki sakaður um fordjarfishátt eða algyðistrú eins og oft hefir verið reyndin á enda þótt þetta samband sé hugsað öðru visi en á meðal skólaspekinga. Við dögun nýrrar aldar standa ekki einasta trúarbrögð heims á mótum áskorunar hins efnislega heims annars vegar og fádæma fáfræði og menntun- arleysis hins vegar. Þrífast trúarbrögðin best í fáffæði og einangrun? Hvar vex þeim í dag fiskur um hrygg nema í örbirgð hins illa menntaða heims (eins og Mið-Austurlöndum) eða þá þar sem trúarbrögðin sjálf eru boðuð í fávisku og engri hefð (eins og meðal sjónvarpsprédikara um víðan heim í dag)? Á sama tíma skreppur heimurinn saman og siðir og trúarbrögð sem áður öttu framandi þjóðum saman (og gera vissulega enn) eru nú oftar en ekki stunduð í sátt og samlyndi hvert við annars hlið. Þar sem friðurinn ríkir hefir þá um leið vaknað sú spurning hvort hugsanlegt sé að ekki sé þar einmitt um að ræða eitt og sama andlag mannlegrar tilbeiðslu. John Hick hefir þannig gert því skóna að hefðbundið trúboð hafi runnið sitt skeið. Nú sé hafin ný öld þar sem fjölbreytilegri trúarlegri reynslu fólks af ólíkum uppruna hljóti að vera sýnd tilhlýðileg virðing. Hann telur jafnframt óhugsandi að sú reynsla endurspegli annað en einn og sama guðdóminn að baki ólíkum hugmyndum um guð(i) og tilbeiðsluhætti!30 Og það er á þessum sömu tímamótum sem trúarbraðafræðin og trúarheimspekin eiga eftir að skilgreina og skilja fullkomlega nýjar kringumstæður ef maðurinn og trúin eiga eftir að eiga samleið um ókomna tíð. Spegillinn Spionoza kann að eiga þar stærra erindi en blasir við augum við fyrstu sýn eða þar sem hinsti veruleikinn getur aðeins verið einn en eiginleikar hans óendanlega margir. í hugrenningum sínum um William Ellery Channing segir Kurt Vonnegut: Þegar Channing hóf að prédika á nýstárlegan hátt í þessum bæ [Cambridge, Massachusetts], þ.e.a.s. prédikun sem við skilgreinum nú sem únítaríska, þá hvatti hann söfnuð sinn til að auðsýna fólki sem var ólíkt vinum þeirra og ættmennum mannlega virðingu á sama hátt og sínu eigin fólki. Sá tími var upprunninn að virða beri reisn utangarðsfólks, jafnvel þeldökkra.31 Hvort únítaríanismi verður svar framtíðarinnar við spurningum fólksins um trú og náungakærleik skal ósagt látið en söfhuður framtíðarinnar mun gera tilkall til mannréttinda á grundvelli alþjóðaréttar en ekki forherðingar og 30 ,,‘Whatever Path Men Choose Is Mine’,“ í John Hick & Brian Hebblethwaite ritstj., Chrístianity and Other Religions: Selected Readings (Glasgow: Collins, 1980), 171-190. 31 Palm Sunday: An Autobioraphical Collage (New York, NY: Delacorte, 1981), 213. 40
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.