Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1987, Qupperneq 41
MULAÞING
39
um nokkur slys í sambandi við þá. Snemma var því farið að huga að
brúargerð á ána. Auk brúarinnar hjá Fossvöllum, sem fræðast má um
í þætti mínum um brýr á Jökulsá, var árið 1908 sett brú hjá Hákonar-
stöðum, smíðuð úr stáli úti í Englandi 1906 og flutt í pörtum á staðinn
og sett þar saman, það munu norskir menn hafa séð um. Helmingur
kostnaðar greiddur af sýslu og hreppi. Þorvaldur Guðjónsson hækkaði
brú þessa 1953 er hann byggði brúna hjá Brú. Þessi brú hjá Hákonar-
stöðum tengir bæina Klaustursel og Stuðlafoss veginum norðan ár.
Auk þess var hún nauðsynleg samgöngubót meðan fjölfarinn vegur
eða leið lá um Fljótsdalsheiði, svokallaður Bessastaðavegur. Þar mátti
sjá minjar um ævafornar vegabætur yfir keldur og flóa. Sumarið 1962
var gerður mjög ófullkominn ruðningsvegur frá Bessastöðum í Fljótsdal
yfir heiðina í Klaustursel. Vegur þessi er aðeins fær jeppum að sumri
til og tæplega það.
Það dróst að allir bæir á Austur-Dal kæmust í vegarsamband. Brú
á Jöklu var sett hjá Hjarðarhaga 1946 og tengdi hún nokkra bæi austan
ár vegakerfinu. Á Hneflu var fyrst byggð steinsteypt brú 1928 (kerru-
brú), kostuð að hálfu af sýslu og hreppi, því hún var á sýsluvegi,
endurbyggð 1947. Hafin var lagning akvegar af Austurlandsvegi á
Brúarhálsi um 1944 inn austurbyggðina og komst sá ruðningsvegur inn
í Merki um 1954. Síðar eða árið 1975 var byggð brú á Jöklu hjá Merki,
brúarsmiður Haukur Karlsson, þótti það heppilegra en að endurbyggja
og viðhalda löngum vegi austan árinnar. Vegurinn af Brúarhálsi inn í
Hnefilsdal hefir að mestu leyti verið endurbyggður og steyptar brýr á
allar þverárnar, sem eru á þeirri leið en þær eru margar. Árið 1959
brú á Hvammsá, árið 1960 brýr á Garðá hjá Giljum og Húsá innan
við Smáragrund, 1961 Garðá hjá Skeggjastöðum, 1963 Teigará hjá
Teigaseli og Sandá hjá Giljum. Um byggingu allra þessara brúa sá
Sigurður Jónsson á Sólbakka.
Nú hin síðari árin þykir það mikið sport að aka á bílum sem víðast
um öræfi landsins, og fara þá Brúaröræfi ekki varhluta af slíkum heim-
sóknum. Öræfi þessi tilheyra Jökuldal og eru kennd við bæinn Brú,
enda innan landamerkja þeirrar jarðar, sem á land allt vestur að Jök-
ulsá á Fjöllum. Þarna er margt að skoða, Laugavelli, Hvannalindir,
hitasvæðin í Kverkfjöllum og margt fleira. Bílfærar slóðir hafa víða
verið lagðar um þessi öræfi og aðallega verið notaðir til þess vegheflar.
því víða má rekja sig eftir melum og sandöldum. Brú var byggð á
Kreppu 1970, er hún fær öllum bílum, brúarsmiður var Sigurður
Jónsson. Áður var á ánni göngubrú í nokkur ár sem ferðafélög áttu.
L