Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1987, Síða 59
MULAÞING
57
Sigurður Jónsson á Sólbakka í Borgarfirði, sem þá var að hefja starf
sitt sem brúarsmiður hjá vegagerðinni, en Jónas lét þá af því starfi.
Endurbyggð var brúin á Fjarðará 1982, þá brúarsmiður Einar Sigurðs-
son á Reyðarfirði.
Ofullkominn akvegur var kominn að Snotrunesi 1932, inn að Grund
1941, í Hvannstóð 1958, að Desjarmýri 1946 og að Höfn 1950. Steinn
Armannsson sá um vegabætur í Borgarfirði, undir umsjón Jóns ísleifs-
sonar og síðar Einars Jónssonar og fram á starfstíma Steinþórs Erlends-
sonar sem tók við því starfi um 1946. Endurbyggðir hafa verið vegir
í Borgarfirði, eins og víðar, og brýr byggðar á ár. Brú á Fjarðará hjá
Hólalandi 1957, Bakkaá neðri brú 1949, efri brú 1965. Njarðvíkurá,
innri brúin á þjóðveginum 1954, ytri brúin 1968, þar var áðurgöngubrú
úr timbri, byggð um 1928. Fleiri smábrýr má nefna, s. s. á Jökulsá og
Grjótá 1956. Hvannagilsár ytri og innri í Njarðvík 1964. Allar þessar
brýr lét Sigurður Jónsson byggja úr steinsteypu.
Fært var vel búnum bílum til Húsavíkur um Húsavíkurheiði eftir
ruðningsvegi 1958, síðar sá vegur endurbættur nokkuð og bvggð brú
á Þverá hjá Hvannstóði 1970,sá Sigurður Jónsson um þá brúarbyggingu.
Gerður var ruðningsvegur fær jeppum um Nesháls til Loðmundarfjarð-
ar 1961 og einnig inn með Loðmundarfirðinum að Stakkahlíð. Steinþór
Erlendsson sá um lagningu þessara fjallvega.
Það má segja að í Loðmundarfirði sé veglaust, þar grisjaðist byggðin
fljótt og var sveitin svo að segja öll komin í eyði 1967, þó voru þar fyrr á
árum lagaðar verstu torfærur fyrir hesta og síðar kerrur. Sigurður Jónsson
brúarsmiður bjó á Seljamýri í Loðmundarfirði 1925 - 1937. Hann lét vinna
fyrir það vegafé er til féll frá sýslu og hreppi, m. a. var það að bæta veg í
Prestaklifi, Klifstaðablá, setja rennu á Tjamarkíl og smíða brú á Stóm-
Hrauná 1937 en það ár flytur hann að Sólbakka í Borgarfirði. Frá Loðmund-
arfirði lá leiðin til Seyðisfjarðar um Hjálmárdalsheiði, þar hefir ekki verið
unnið að vegabótum öðmm en þeim að laga götumar fyrir fætur hestanna.
Endurbygging Úthéraðs- og Borgarfjarðarvega hófst um 1960, því
ófullkomnir voru þeir í fyrstu gerð. Teknir voru fyrir vissir kaflar
árlega, og vegarstæði víða breytt. Byrjað var á veginum út í Eiða,
enda elztur og í upphafi meira af vanefnum gerður, síðan haldið áfram
og er þessari endurbyggingu ekki lokið (1984) alla leið til Borgarfjarðar.
Steinþór Erlendsson sá um þessa endurbyggingu meðan hann var í
starfi, eða til 1966. Pá tók við af honum Ingólfur Steindórsson verkstjóri
til 1980, síðan er það Magnús Jóhannsson frá Breiðavaði sem sér um
þetta verk ásamt fleiri verkum hjá vegagerðinni.