Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Page 139
Skákmolar frá Eskifirði
var. Þess skal
getið að ekki er
kunnugt hver orti
þessar vísur. Þama
er nefndur Asgeir
Júlíusson sem
áður var getið og
næst er talað um
Arnþór og mun
það vera Amþór
Jensen verslunar-
maður, faðir
Gauta læknis og
Vals heitins for-
stjóra KEA og
síðar Landsbanka-
stjóra. Eyfí mun vera Eyjólfur Eyjólfsson
bankastarfsmaður á Eskifírði. Eiki er líkJega
Eiríkur Bjarnason skrifstofumaður sonur
Bjarna Sigurðssonar fyrsta oddvita Eski-
fjarðarhrepps. Sjálfsagt lýtur hendingin um
hann að því að skákmönnunum hafi verið
bornar veitingar þegar leið á keppnina.
Hallgrímur var Guðnason, einhleypur maður.
Hann fékkst við sitt af hverju og var mikill
dansmaður og er líklega íað að því að hann
hafi liðkað sig við dans þegar leið á nóttina.
Vísunum lýkur svo með maklegum þökkum
til landsímans enda munu bláfátæk skákfélög-
in hafa fengið verulegan afslátt af gjaldskrá
símans. Þess má geta að til skamms tíma voru
í gildi ákvæði um að veita skyldi vemlegan
afslátt frá gjaldskrá vegna símskáka en þær
munu nú því miður alveg aflagðar.
Sveinn Guðnason ljósmyndari tók mikið
af myndum frá Eskifirði. A meðfylgjandi
mynd er taflborð úr glerplötu þar sem Sveinn
raðaði myndum af félögum í taflfélaginu á
svörtu reitina. Það vill svo heppilega til að
félagsmenn voru 32 um þær mundir svo
enginn reitur er auður og heldur engum
ofaukið. Á reitnum al er sjálfur Sveinn
Guðnason en vítt og dreift um borðið má sjá
Teflt með lifandi mönnum í Bleiksárgili á Eskifirði
17. júní 1925. Maðurínn lengst til vinstri með
hvítan hatt og staf mun vera Guðmundur
Jóhannesson verslunarmaður. Sá sem er hvíti
kóngurinn (nálœgt miðri myndinni) er Finnbogi
Erlendsson útgerðarmaður. (Sbr. Eskju V, bls.
130).
ýmsa sem drepið hefur verið á. Á c3 er Lárus
Stefánsson og á h3 Eiríkur Bjamason. Upp á
b4 er Ásgeir Júlíusson og á d4 Hannes Þórður
Hafstein. Á a5 er Amþór Jensen, á c5 Ingvar
Jóhannsson og á e5 Einar Ástráðsson læknir.
Eins og sjá má á myndunum em félagamir
flestir um tvítugt eða eldri en á áttundu
röðinni eru tveir ungir piltar, Guðni
Magnússon á d8 og á f8 er Ingólfur
Stefánsson sjómaður látinn fyrir fáum ámm.
Eins og sæmir í taflliði em tvær drottningar á
borðinu. Á g7 er Steinunn Pálsdóttir, kona
Eyjólfs Eyjólfssonar, og á g5 er Dadda
(Guðrún Guðmundsdóttir), kona Einars
læknis. Félagsmenn áttu yfirleitt ættir eða
heimkynni á Eskifírði. Eitt nafn vekur því
undrun á þessum stað. Það er Hannes Þórður
Hafstein skákmeistari. Foreldrar hans voru
Marinó Jakob Hafstein, sýslumaður í
Strandasýslu og síðar starfsmaður í stjómar-
137