Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Page 150
Múlaþing
það var ekki fyrr en eftir dauða hans sem
Margrét flutti í Eiða en þar bjó hún með
seinni manni sínum Magnúsi Arnasyni frá
Holti í Fljótum.
Þorsteinn Finnbogason var sýslumaður í
Þingeyjarþingi og einn helsti valdamaður
landins urn áratugabil. Sýsluvöld hafði
hann í á milli fjörtíu og fimmtíu ár. Kona
hans var Sesselja dóttir Torfa sýslumanns í
Klofa og voru þeir Brandur Guðmundsson á
Leirá svilar. Tengdasonur Þorsteins og
Sesselju var Bjarni sýslumaður Erlendsson
á Ketilsstöðum.
Bjarni Erlendsson á Ketilsstöðum
Bjarni var sonur Erlendar sýslumanns
Bjarnasonar á Ketilsstöðum og Vilborgar
Loftsdóttur. Foreldrar Bjarna koma lítið við
skjöl. Þó er vitað að Erlendur gaf kirkjunni
á Ketilsstöðum reka 23. ágúst 1500 en þá
gerir Stefán Skálholtsbiskup Jónsson bréf
um hálfkirkjuskyld á Ketilsstöðum.33
Ketilsstaðir höfðu verið í eigu Páls sýslu-
manns Brandssonar en hann gaf hinu ný-
stofnaða klaustri á Skriðu jörðina á dánar-
dægri.34 Testamentisbréf Páls er ódag- og
ársett en hann hefur dáið í síðari plágunni
og er bréfið talið frá 1494 í Fornbréfa-
safninu. Erlendur Bjarnason hefur keypt
Ketilsstaði af klaustrinu á Skriðu á árunum
1495-1500. Það eru nokkur líkindi fyrir því
að Erlendur hafi haft sýsluvöld um tíma og
eftir lát hans er Bjarni að gera upp skuldir
föður síns við kirkju.35 Þjóðsaga um
aldurtila Erlendar á að mínum dómi ekki
við hann heldur Erlend sýslumann Magnús-
son sem hélt Skriðuklaustur í lok 16 aldar.
Ég tel að Erlendur hafi lifað lengi við
vanheilsu eða örkuml og á þessum seinni
hluta æfi hans hafi konu hans Vilborgu hent
það að taka framhjá honum. Bjarni gerir
upp þessa sök móður sinnar 1527.36 Kona
Bjarna Erlendssonar var Guðríður dóttir
Þorsteins Finnbogasonar.
Björn Jónsson Eyvindará
Líklega er það Björn á Eyvindará sem er
staddur á Svalbarði 18. nóvember 1522.
Björns á Eyvindará getur fyrst á Austur-
landi 29. desember 1525, þá er hann á
Eiðum og vitnar um yfirreið Ögmundar
biskups Pálssonar um Austfjörðu árið
1523.37
Leikmennirnir sem viðstaddir eru
þennan gerning eru Loftur Eyjólfsson, og
Birnir tveir Jónssynir, annar er líklega
Björn „skafinn“ tengdasonur Þorvarðar á
Eiðum og hinn væntanlega bóndinn á
Eyvindará, þá rúmlega tvítugur og að
líkindum nýlega orðinn bóndi á Eyvindará.
Uppruni Björns á Eyvindará er í nokkurri
óvissu. Móðir hans var Þuríður Jónsdóttir,
dóttir Jóns langs Finnbogasonar bónda í
Hafrafellstungu.38
Þuríðar er getið í ómagadómi sem gekk
á Ljósavatni 17. júní 1564, þar er ómaginn
Ásmundur Þorvarðsson dæmdur á Arnfinn
Jónsson bónda í Austfjörðum. Þar er
Þuríður nefnd Þuríður Langsdóttir.39 Þetta
er örugglega sami Arnfinnur Jónsson og sá
sem 1551 gerir jarðakaup við bróður sinn
Björn Jónsson.40 Föðurætt Björns er
óþekkt, en ýmsar tilgátur eru uppi um hana.
Ég mun gera hér í stuttu máli grein fyrir
mínum hugmyndum. Björn býr á Eyvindará
1540 þegar hann kaupir Egilsstaði af
Sesselju Loftsdóttur.41 Eftir þetta getur
Bjöms alloft á Eyvindará og er líklegt að
hann hafi búið þar og átt jörðina.
Næsti eigandi að Eyvindará á undan
Birni var Þorvarður Bjarnason á Eiðum.
Þorvarður keypti Eyvindará og Mýnes í
Útmannasveit ásamt fleiri jörðum af
Þorvarði prior á Skriðuklaustri. Bréf um
148