Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Page 153
Hamra-Setta
Guðrún
Finnbogadóttir
Guðrún gæti ver-
ið fædd um 1490 og
því um fimmtugt
þegar þeir atburðir
gerast sem hér er
fjallað um. Hún var
dóttir Finnboga Jóns-
sonar bónda og lög-
réttumanns á Grund í
Svarfaðardal og
Margrétar Halldórs-
dóttur lögréttumanns
á Barði í Fljótum Brandssonar. Guðrún var
því stórættuð og í náinni frændsemi við ýmsa
af helstu fyrirmönnum á Islandi. Auk
áðurgreindrar heimildar um Guðrúnu þegar
hún gaf Egilsstaði í próventu sína en þar er
hún talin Finnsdóttir, þá getur hennar á tveim
stöðum í skjölum Guðbrandar biskups
Þorlákssonar. í ritgerð Guðbrandar um
Barðsmál þar sem hann segir frá49 bömum
Finnboga á Grund, segir: „6. Guðrún giftist í
Austfjörðum og halda menn hún hafi ekki átt
erfingja, nema Jón bróður sinn Finnboga-
son.“ Guðrúnar getur í bréfabókum Guð-
brandar biskups Þorlákssonar þannig:
„Systir Jóns Finnbogasonar. I. Guðrún giftist
í Austfjörðum, bjó þar og gaf próventu sína í
Skálholt, deyði þar.“50
Bjarni Skeggjason
Bjarni Skeggjason er ósvikin ævintýra-
persóna í sögunni. Þjóðsagan51 segir að hann
hafi verið fósturbróðir sona Björns skafins í
Njarðvík, þeirra Þorvarðar og Jóna tveggja.
Þar segir að Bjami væri sonur Skeggja
Þorsteinssonar á Setbergi í Borgarfirði,
uppeldisbróðir þeirra Björnssona mikill að
atgerfi.
Sesseljuhamar, clökka opið hœgra megin er hellis-
munninn. Ljósm.: höjiindur.
Skeggjanafn er fátítt á þessum tíma, það
getur þó Skeggja nokkurs Þórólfssonar sem
á jarðakaup við Þorvarð Bjarnason. Myndi
þar vera kominn faðir Bjama Skeggjason-
ar?52
Jarðakaup þessi fara fram 4. júlí 1506 á
Hlíðarenda í Fljótshlíð. Þar selur Skeggi
honum með samþykki konu sinnar Ólafar
Magnúsdóttur „jordina alla halfa midbæle er
liggr under eyiafiollvm“ en jörðin hálf
Miðbæli hafði fallið Ólöfu í arf eftir föður
hennai' og móður. Vigfús Erlendsson galt
Skeggja og Ólöfu fyrir Miðbæli hálft. „xx
hundraða iord backa er liggr j austfiordum j
borgarfirde j myrastadar kirkiusokn med
ollum þeim gögnum og gædum rekum og
skogum sem greindre allre iordu fylger og
fylgt hefer at fornu og nyiu. Og opt nefndur
Vigfus vard fremst eigande at med logum.
Og honum fiell til erfda epter hustm gudride
þorvardzdottur modur sina. Og þar til sex
malnytu kugillde fiogur hundrud j nautum
og saudurn fimm hundrud j vaminge.“ Þessi
gerningur bendir til þess að Skeggi og Ólöf
hafi ætlað sér að setja saman bú á Bakka í
Borgarfirði. Tímans vegna væri líklegt að
151