Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Page 170
Múlaþing
Héraðsskjalasafn Austfirðinga
Enn berast til safnsins ómetanleg bréfasöfn auk annarra gagna úr einkaeigu. Þá skila sveitarfélögin og
stofnanir þeirra inn gögnum, en mættu þó gera það á skipulagðari hátt en raun hefur orðið á.
Meðal þess sem borist hefur til safnsins er bréfasafn Guttorms alþingismanns Vigfússonar Geitagerði,
veðurdagbækur Páls Guttormssonar á Hallormsstað, dagbækur Ingimars bónda Jónssonar á Skriðufelli.
Hér eru aðeins nefnd þrjú dæmi en að öðru leyti vísast til yfirlits yfir innkomið efni til safnsins.
Tölvuskráningu miðar frarn þótt nokkuð verk sé enn óunnið.
Eins og kom fram í síðustu ársskýrslu þá hefur safnið á leigu geymsluhúsnæði. Þetta húsnæði er
óhentugt til að vinna við flokkun þess efnis sem berst. Leitað hefur verið til Austur-Héraðs um aðgang að
húsnæði á Eiðum. Það mál er í athugun. A hitt ber svo að líta að hentugast væri að fá leigt nær safninu,
þannig að vinna við flokkun og frágang félli betur að daglegu starfi á safninu.
Ljósmyndasafn Austurlands
Arndís Þorvaldsdóttir hefur sem fyrr unnið við flokkun og tölvuskráningu ljósmynda. Það verk er
komið vel á veg og hafa nú verið tölvuskráðar tæplega 5000 myndir.
Ég ítreka hér þá skoðun mína að önnur ljósmyndasöfn á Austurlandi verði skráð á sama hátt og er hjá
Héraðsskjalasafninu og í raun verði myndað eitt safn.
Bókasafn
títgjöld til Bókasafns voru innan fjárhagsáætlunar og þannig var reynt að mæta framúrkeyrslu á
síðasta ári. Áfram verður reynt að byggja upp gott safn fræðibóka og tímarita. Þá er lögð áhersla á
austfirskt efni eins og áður, loks eru uppi áform um að byggja upp safn af bókum tímaritum og blöðum
gefnum út í Vesturheimi.
Safnahús
Starf safnahússins var í venjubundnum farvegi. Samstarf var um rekstur hússins, þá var samvinna á
milli stofnana í húsinu um bókavöku í desembermánuði og dagskrá einu sinni í mánuði yfir
vetrarmánuðina.
Lokið var við setja upp loftræsti- og hitakerfi í húsinu. Reynslan af því er góð, þótt ekki sé enn komin
næg reynsla á orkunotkun.
Skilaskylda á gögnum sveitarfélaga
Hér skal enn ítrekuð krafa til sveitarfélaga um skil á skilaskyldum skjölum til safnsins.
Sveitarstjórnarmenn verða að skilja að hér er um lagaskyldu að ræða. Þessi mál verða að komast á hreint
og fullnægja lagaákvæði.
Skrá yfir gögn afhent Héraðsskjalasafni Austfírðinga 1998
Guðrún Magnúsdóttir Egilsstöðum: Ljósmyndir.
Fjóla Kristjánsdóttir frá Skriðufelli: Dagbækur í 52 bókum frá 8. okt. 1941 til 29. nóvember 1999.
Forðagæslubók úr Hlíðarhreppi 1914-1939. Gjörðabók mjólkurdeildar Hlíðarhrepps frá 27.11.
1960-10.11.1976.
Landsbókasafn fslands/Ögmundur Helgason: 11 verslunarbækur, líklega frá Hinum sameinuðu íslensku
verslunum Borgarfirði eystra og Pöntunarfélagi Borgarfjarðar.
168