Jökull


Jökull - 01.12.1972, Page 90

Jökull - 01.12.1972, Page 90
Mynd 8. Sunnan við Syðri-Hágöngu. Horft til austurs. Kaldakvísl og grjótstíflan. Fig. 8. South of Southern Háganga. Vieic to- tuards east on the Kaldakvisl-river and the na- tural rock dam. Photo S. Freysteinsson, Aug. 14, 1970. Ekki verður séð, hvort stíflan fyllir upp í djúpt gil, en klöppin er allavega ekki hátt yfir venju- legu vatnsborði. Þarna munar litlu, að Kalda- kvísl falli til Þjórsár, enda hefur hún vafalaust gert það, eftir að hraunið brann (og áður?), en síðar skorið sig gegnum áðurnefndan hraun- kamb. Vera má, að þetta hafi gerzt í einu stór- flóði. A. m. k. verður stíflan varla skýrð öðru vísi. Grjótdreif á hrauninu neðan við hraun- kambinn austan Köldukvíslar og á stallinum meðfram Hágöngunni bendir einnig til þessa. Þar sem áin hefur skorið sig gegnum hraun- kambinn, er farvegurinn aðeins urn 30 m breið- ur. Mikið fali er þar fyrir neðan, en samt sem áður getur verið, að hún flæði yfir stífluna í flóðum. VIÐAUKI Síðastliðið sumar, nánar tiltekið 1. til 3. ágúst 1972, varð jökulhlaup í Köldukvísl. Þetta hlaup var miklu meira en þau, sem sýnd eru á mynd 5, rúmtak hlaupvatnsins er talið hafa verið rúmlega 20 Gl. Könnun úr lofti sýndi, að hlaupið kom úr Hamarslóni. Ummerki um hreyfingu á jöklinum voru ekki sýnileg og hef- ur útrennsli lónsins væntanlega verið stíflað af snjó. Vatnsmagn í hlaupinu var það mikið, að álitamál var, að það hefði getað rúmast í Ham- arslóni, jafnvel þó að lónið sé sífellt að stækka til suðurs inn í Tungnárjökul. Getgátur um að hlaup þetta kæmi frá eldstöðvum eða jarðhita lengra inni í jökli eru þó taldar afsannaðar, því að samkvæmt rannsóknum Orkustofnunar (Haukur Tórnasson, munnlegar upplýsingar) var engin aukning á uppleystum efnum í flóð- vatninu, enda þótt aurburður væri mjög mikill. Flóðtoppurinn mældist urn 270 m3/s við Brúar- foss (skv. Vatnamælingum Orkustofnunar, vatns- hæðarmæli 125 skammt ofan Köldukvíslarbrúar). Vegna stíflugerðar Landsvirkjunar í Köldukvísl var henni veitt um hjáskurð utan farvegar síns við Sauðafell s.l. sumar. Ofan skurðarins varð allmikil uppistaða og mun flóðtoppur þar ofar hafa verið liærri. Vatnsrit hlaupsins frá vhm 125 var lieldur ekki dæmigert um jökulhlaup, sennilega vegna áhrifa uppistöðunnar. Við áður- nefnda flugkönnun sást, að þetta hlaup náði ekki að flæða yfir stífluna við Syðri-Hágöngu og vestur í Þjórsá, en verulegur leki gegnum stífluna var augljós. HEIMILDIR Freysteinsson, Sigmundur. 1968: Tungnárjökull. Jökull 18, 371-388. Hannesson, Pálmi. 1958: Frá óbyggðum, Menn- ingarsjóður, Reykjavík, 260. Landmælingar Islands: Loftmyndir af Hamars- krika teknar 1945 oð 1960 af U.S. AMS. — Uppdráttur íslands, 1:100.000, Blað 76, gef- ið út 1966. Matthiasson, Haraldur. 1963: Bárðargata, Ferða- félag íslands, Árbók MCMLXIII, Reykja- vík. Orkustofnun, Vatnamælingar: Vatnshæðarrit úr vhm 095 og 125. Lyklar fyrir sömu mæla. Thorarinsson, Sigurdur. 1964: Sudden advance of Vatnajökull outlet glaciers 1930—1964. Jökull 14, 76-89. Thorarinsson, S. and G. E. Sigvaldason. 1972: Tröllagígar og Tröllahraun. Jökull, this issue p. 12—26. U.S. Army Map Service, 1949: Iceland, 1:50000. Sheets 5820 I; 5920 III; 5920 IV. 88 JÖKULL 22. ÁR

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.