Jökull - 01.12.1972, Blaðsíða 94
ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR
Haustið 1972 voru lengdarbreytingar mæld-
ar á 51 stað. Jökuljaðar hafði gengið fram á
13 stöðum, haldizt óbreyttur á 8, en hopað á
30 stöðum. Ef lagt er saman framskriðið við
alla mælistaðina reynist það 1277 m. Munar
þar mest um Hagafellsjökul vestari og Múlal
jökul,’ en í þeim var svonefnt f r a m h 1 a u p,
eða „gangur í þessum jöklum“, eins og Skaft-
fellingar orða það, er jökull, sem legið hefur
óhreyfður um árabil, tekur að ryðjast fram.
Auk þeirra jökla, sem mældir eru kerfisbund-
ið, hófst framhlaup í Eyjabakkajökli um 25.
ágúst ’72 og um líkt leyti í austanverðum Síðu-
jökli. Mánuðina september og október var
framskriðshraði Eyjabakkajökuls 26 metrar á
sólarhring.
Samanlagt hop við mælistaði í skýrslunni hér
á undan er aðeins 713 m. Jöklarýrnun þeirri,
sem staðiö hefar um drabil, eða allt frd þvi að
kerfisbundnar mælingar hófust um 1930, er lok-
ið a. rri. k. í bili.
Veturinn 1971/72 var mildur, á Suðurlandi
kom frost vart í jörð. Sumarið 1972 var sólar-
lítið á sunnanverðu og vestanverðu landinu.
Úrkomudagar margir, en úrkomur eklti stór-
felldar.
Sncefellsjökull
I bréfi með mælingaskýrslunni segir Harald-
ur Jónsson í Gröf: „I sumar hefur þiðnað
óvenjulítið af hájöklinum, ég hef ekki séð dökk-
an díl á Norðurþúfu í sumar, og man ég ekki
eftir því áður.“ Hinn 30. sept. var nýsnævi við
Jökulháls 11 cm, þar var hjarnskafl við jökul-
jaðar eins og verið hefur hin síðari ár.“
Kaldalónsjökull
í bréfi með mælingaskýrslunni segir Aðal-
steinn Jóhannsson bóndi á Skjaldfönn m. a.:
„Þegar ég mældi 1970, rann áin frani við norð-
urhlíð og með jökulrönd suður fyrir mælilínu
eins og nú.
Jökullinn er sléttur, allt snýsnævi frá undan-
gengnum harðindaárum er horfið af skriðjökuls-
tungunni, og það sama gildir einnig um sjálfan
Drangajökul svo langt sem séð verður héðan
að neðan. Jökultungan hefur þynnzt. Upp hafa
komið tvö smá sker síðan ég mældi 1970. Ann-
ar depillinn sást í fvrra heirnan frá Lóni. Það
92 JÖKULL 22. ÁR
er díll syðst og hæst á jöklinum. Engin sýnileg
merki eru um hreyfingu. Sett voru upp tvö
jöklamerki, nr. 102 og nr. 103.
Veturinn 1971/72 var mjög snjóléttur og vor-
aði með sumri. Komin var gróðurnál í liaga
eins og hér áður fyrr, þegar sauðburður hófst.
í maí voru gróðurskúrir í stað þurrka eða snjó-
hraglanda, sem hafa verið á þeim árstíma hin
siðari ár. Júní var óhemju votviðrasamur, lítið
sá til sólar, fé var gegndrepa nær allan mánuð-
inn. Hvassviðri og óhemju úrkoma var liðlega
tvo sólarhringa frá 2. og fram á 4. júní. Mun-
um við hér ekki eftir annarri eins úrkomu á
þessum árstíma. Allur berjavísir annaðhvort
sópaðist af eða eyðilagðist á annan hátt, og hef
ég þó sjaldan séð eins fallegt iitlit, t. d. með
aðalbláber, eins og það var daginn fyrir þetta
óveður. Sumarið var kalt og sólarlítið að undan-
skildum 12 fyrstu dögum ágústmánaðar.
I rigningum á undanförnum sumrum hafa
komið pollar í flestar dældir á láglendi, þar
sem er moldar- eða leirborinn jarðvegur, en nú
í öllum rigningunum í sumar sást varla pollur,
og finnst mér það benda til þess, að klaki hafi
verið í jörð öll þessi ár, líklega frá ’67.
Haustið 1971 gerði hríðarveður 20. sept., svo
að urðu af 2 m djúpir skaflar niður í brúnir,
en nú 1972 var haustið gott og sást ekki snjór
fyrr en með vetri.
í sumar, 1972, fór allur snór úr brúnunum
hér fyrir ofan bæinn Skjaldfönn, og var þar
um þriggja ára forða að ræða. Heldur sjald-
gæft er, að snjór fari úr brúninni, vart þriðja
hvert ár. Kemur fyrir að 6—7 ára snjór sé hér
samfleytt. Á fjallinu hurfu skaflar, sem oft
liggja árum eða jafnvel áratugum saman, en þó
voru hér eftir dílar á tveimur stöðum fyrir
neðan brúnir.“
Leirufjarðarjökull
„Þegar ég mældi 16. sept. ’72, var allur vetr-
arsnjór farinn af jöklinum, en fannir frá ’70 og
’71 þöktu um 60% af yfirborði jökulsins. Jökull-
inn hefur minnkað þó nokkuð, sérstaklega vest-
an við jökulsporð,“ segir Sólberg Jónsson í
bréfi með mælingaskýrslunni. „Vestan við jökul-
sporðinn, þar sem áin kemur út, eru 5 m há,
8—12 m breið og 100 m löng göng inn í jökul-
inn. Hliðargöng liggja úr þessurn göngum að
ánni inni í jöklinum. Svo virðist sem áin liafi
flutt sig um set. Grjót og möl ná um 260 m