Jökull - 01.10.1998, Blaðsíða 3
JOKULL
lceland journal of Earth Sciences
45. Ár 1998 No. 45
Jöklarannsóknafélag íslands • Jarðfræöafélag íslands
Aldarminning
Jón Eyþórsson 1895-1968
Hinn 27. janúar 1995 minntumst við aldarafmælis
Jóns Eyþórssonar, brautryðjanda í jökla- og veður-
fræðirannsóknum hér á landi. Jón var Húnvetningur,
bóndasonur frá Þingeyrum, og einn þeirra aldamóta-
manna sem af kappi og ósérhlífni lögðu grundvöll að
íslensku nútímaþjóðlífi. Hann var veðurfræðingur og
jöklafræðingur og vann geysimikið starf við að fræða
þjóðina um land sitt og náttúru, bæði í útvarpi og sem
rithöfundur og þýðandi. Hann starfaði við Veðurstofu
íslands í fjóra áratugi að veðurspám og rannsóknum á
sögu loftslagsbreytinga, einkum á hitafari og á hafís-
komum til landsins. Áður starfaði hann í fimm ár við
Veðurstofuna í Bergen, sem þá var heimsmiðstöð
veðurfræðirannsókna, en meistaraprófi lauk hann frá
Oslóarháskóla 1923. Á Noregsárunum kynntist hann
jöklarannsóknum og hóf samstarf við sænska jökla-
fræðinginn Hans Wilhelntson Ahlmann að jökla- og
veðurathugunum í Jötunheimum. Saman reistu þeir
fyrstu háfjallaveðurstöð á Norðurlöndum, á Fana-
ráken, í 2070 m y. s. Samhliða miklu starfi á Veður-
stofunni vann Jón að fjölmörgum öðrum verkefnum.
Hann vann að stofnun Ríkisútvarpsins, var um skeið
formaður útvarpsráðs og þættir hans um Daginn og
veginn öfluðu honum vinsælda um allt land. Hann sat
JÖKULL, No. 45, 1998
1