Jökull - 01.10.1998, Blaðsíða 65
1875 24/6 William L. Watts, Páll Pálsson
„Jökuir, Eyjólfur Bjarnason frá Hörgsdal á Síðu,
Kristófer Þorvarðarson frá Fossi á Síðu, Olgeir Þor-
steinsson frá Króki í Meðallandi og Sigurfinnur
Ketilsson frá Bólstað í Mýrdal lögðu upp frá Núpsstað
að Síðujökli ásamt fjómm mönnum er fylgdu þeim að
Pálsfjalli. Það vom þeir Bjami ?son, sem verið hafði
með Watts árið áður, Gísli Magnússon frá Rauðabergi,
Vigfús ?son og „mállaus og heyrnarlaus maður.“
Sexmenningamir héldu frá Pálsfjalli, norðaustur eftir
jöklinum og af honum við Kistufell.79112
1880 12/8 Jón Þorkelsson frá Víðikeri, Jón Stef-
ánsson frá Syðri-Neslöndum, Helgi Jónsson frá Geit-
eyjarströnd og Pétur Pétursson frá Stóru-Laugum,
kallaðir „landaleitarmenn" því þeir áttu að leita
óþekktra haglenda í Odáðahrauni, fóm suð-austanvert
við Gæsahnúk á jökul, suður og austur fyrir Kistufell
og þar niður á Dyngjujökulsaurinn.70
1884 17/8 Þorvaldur Thoroddsen, Ögmundur
Sigurðsson og Jón Þorkelsson frá Víðikeri fóm á jökul
á svipuðum slóðum og „landaleitarmennirnir“ en
vegna slæmrar reynslu Jóns úr þeirri ferð af sprungu-
svæði austan Kistufells fóru þeir nú af jöklinum
vestan fellsins.117-
1890 12/8 Frederick W.W. Howell, Páll Jónsson,
Þorlákur Þorláksson og Jón Sigurðsson, þrír síðast
nefndu frá Svínafelli, freistuðu göngu á Hvannadals-
hnúk. Þeir fóru yfir tungu Virkisjökuls, upp Hvanna-
dal og Hvannadalshrygg á jökul. Þar sneru þeir við
vegna veðurs og héldu sömu leið til baka.24
1891 ?/6 Bjöm Pálsson, bóndi á Kvískerjum,
greinir frá því í bréfi til Jóns Eyþórssonar sem birt var
í janúarhefti tímaritsins Heima er best árið 1953 að
hann hafi ásamt föður sínum og afa farið frá Svínafelli
í Öræfum í kaupstaðarferð á Papós. Þegar þeir komu að
Jökulsá á Breiðamerkursandi var hún ófær svo fara
varð jökul. „Við fómm yfir jökulinn austur, og var þar
heldur góður vegur og ekki langur, nálægt 1 klt. ferð.
En til baka fórum við Jökulsá, sem var í mörgum
kvíslum og ekki mjög djúp. /—/ Fram með Fells-
öldunum urðum við að fara eftir fjömnni því að jökull-
inn var þá fremst á öldunum, og Stemma rann fyrir
vestan þær - eða vestarlega úr þeim -, og var farið þar
yfir hana.“ í bréfinu skýrir Björn frá fleiri ferðum
sínum fyrir Jökulsá og er það merk og greinargóð
heimild um slík ferðalög.10
1891 17/8 Frederick W.W. Howell, Mr. Coult-
hard, Páll Jónsson, Þorlákur Þorláksson og Jón Sig-
urðsson héldu aftur á Öræfajökul en nú upp frá Sand-
felli. Þegar þeir vom um það bil að komast að jökul-
rönd varð Mr. Coulthard ómótt og fylgdi Jón Sigurðs-
son honum til byggða. Hinir héldu áfram göngunni og
stefndu á vestari Hnappinn sem Howell kleif en sá þá
að tindur á norðvesturbrúninni (Hvannadalshnúkur)
var hærri. Hann var einnig klifinn og síðan haldið niður
að Sandfelli. Ef Frisak og félagar hans hafa ekki
gengið á Hvannadalshnúk fyrstir manna árið 1813
fellur sá heiður í hlut Howells og förunauta hans
tveggja því engar heimildir hef ég (JEI) fundið um
ferðir annarra á hnúkinn á þessu árabili.24
1899 30/6 Christian Schierbeck læknir gekk þá á
Hvannadalshnúk ásamt Páli Jónssyni og Jóni Sigurðs-
syni, Svínafelli. Fóru þeir vestur frá Sandfelli og síðan
upp með Hvannadalshrygg á Hvannadalshnúk og
sömu leið til baka. Fengu þeir hríðarveður á jöklinum.
Schierbeck hafði dvalið eitthvað veturinn áður hjá Otto
Tuliníus á Höfn. Hann útskrifaðist úr læknaskólanum
hér 28. júní árið 1900 og fór síðan til Noregs.11
1901 3/8 Daniel Bruun og Elías Jónsson bóndi á
Aðalbóli í Hrafnkelsdal fóm á hestum um austanverð-
an Brúarjökul til þess, eins og Bruun segir, aðreynaað
átta sig á sannleiksgildi gamalla sagna um ferðir yfir
jökulinn til og frá Homafirði.1213
1902 ±? Flosi Bjömsson skrifar 27, ágúst 1992,
„Fyrst ég minnist á Esjufjöllin, kemur mér til hugar að
faðir minn [Bjöm Pálsson, bóndi á Kvískerjum] lagði
einhverju sinni upp í Esjufjallaför skömmu eftir alda-
mótin og var einn. En þegar hann var kominn talsvert
upp eftir Esjufjallarönd eða jöklinum þar, tók að draga
upp bliku og gerði brátt rigningu. Sneri því við heim á
leið. Varð ekki af því að hann færi þangað nokkru
sinni.“ '9-
JÖKULL, No. 45, 1998
63