Jökull - 01.10.1998, Blaðsíða 66
1902 ? Daniel Bruun og Ögmundur Sigurðsson
fóru ríðandi upp úr Staðardalnum, um drög Skálafells-
og Heinabergsjökla, í átt að Breiðubungu. Markmiðið
var tvíþætt, vörðuhleðsla vegna fyrirhugaðra land-
mælinga og svo frekari könnun á áhugaefni Bruuns
um ferðir yfir jökulinn fyrr á öldum.78
1903 ? í æfisögu sinni getur Þorleifur Jónsson í
Hólum þess að J.P. Koch og Gunnar Jónsson frá
Þinganesi hafi lagt „uppá jökla frá Heinabergi og
höfðu með sér meri gráa undir farangur. Ætluðu þeir að
skreppa á jökli suður í Suðursveit. En þegar þeir voru
skammt komnir áleiðis gerði snjóbil mikinn og hríð
harða. Tóku þeir til ráðs að tjalda þar yfir sig og far-
angurinn. Bundu þeir þá gráu við tjaldhæl og gáfu
henni heytuggu. Næsta dag var komið gott veður, og
fóru þeir þá, sem leið lá, eftir jökli niður í Staðardalinn
í Suðursveit." 113
1903 ?/8 J.P. Koch, tveir Danir og einn íslend-
ingur fóru á hestum með sleða upp Heinabergsjökul,
norður 2/3 hluta leiðarinnar að Snæfellshálsi og til
baka niður Staðardal (u.þ.b. 4 mílur = 30 km). Var
þetta hluti af landmælingum Danska herforingjaráðs-
ins er hófust í Austur-Skaftafellssýslu árið 1902.78
1904 21/6 J.P. Koch, Þorsteinn Guðmundsson, J.
Leisted og Jens Pedersen lögðu af stað upp Skeiðarár-
jökul til að mæla Öræfajökul, ásamt allmikilli birgða-
lest. Vegna slæms færis komust þeir ekki lengra með
birgðalestina en urn 2 km norður af Fæmesi. Daginn
eftir byrjuðu mælingamenn og Þorsteinn að selflytja
birgðir austur að Hermannaskarði og náðu í Tjaldskarð
kl. 11 um kvöldið. Höfðu þar síðan aðalbækistöðvar
lengst af meðan þeir dvöldu á Öræfajökli. Næstu daga
var oftast slæmt skyggni til mælinga en 27. gerði
bjartviðri og mældu þeir þá Hvannadalshnúk og
austurbrún jökulsins. Gerði síðan þoku og snjókomu
og voru þeir að mestu veðurtepptir næstu daga, þar til
6. júlí er þeir luku mælingum á Öræfajökli og héldu
til byggða og komu að Svínafelli daginn eftir.6478
1904 10/7 Héldu Koch og Mikkelsen upp Skeiðar-
árjökul áleiðis norður fyrir Skaftafellsfjöll og Öræfa-
jökul til mælinga nokkru innar. Hinn 13. júlí fóru þeir
alllangt norðvestur á Vatnajökul og þann 17. fór
Mikkelsen til byggða en Buchwaldt hélt til móts við
Koch. Hinn 18. júlí vom þeir komnir urn 14 km inn á
Vatnajökul norður af Miðfelli. Dagana 22-24. júlí vom
þeir nokkuð vestur af Esjufjöllum. Komu þeir til
byggða þann 26. Um sama leyti mun einnig hafa verið
lokið mælingum á Breiðamerkurjökli og austanverðum
Öræfajökli. Þar mældi Leisted. Bækistöðvar hans voru
í Breiðamerkurfjalli 20-24. júlí og mun hann einnig
hafa farið inn á Breiðamerkurjökul.64'78
1904 ?/7 Páll Jónsson, Svínafelli, gekk á Öræfa-
jökul í erindum mælingamanna, líklega í júlí. Var
hann einn, fór upp frá Bleikafjalli og niður vestan við
Stórhöfða. Sagður hafa gengið á Hnappinn. Mun hafa
verið fremur hlýtt og víst markað fyrir spomm. 19 39
1904 8/8 J.H. Wigner og T.S. Muir, enskir félag-
ar, fóru af Maríutungum á Brúarjökul og þaðan norð-
anvert við Esjufjöll að Grænalóni og síðan af jökli
skammt vestan þess.109•
1909 ?/6 Gekk dr. Max Ebeling (frá Berlín) á
Hvannadalshnúk. Fylgdarmenn hans voru þeir Jón
Pálsson, Svínafelli, og Ögmundur Sigurðsson. Gengu
þeir á jökulinn frá Sandfelli og sömu leið þar niður. 19 39
1910 26/7 Hans Spethmann hélt ásamt Edward
Erkes með Sigurð Sumarliðason og Tryggva Þórðarson
sem leiðsögumenn, frá Svartárkoti suður með Skjálf-
andafljóti á Dyngjuháls. Erindi þeirra var að halda
áfram rannsóknum þeim er svo skyndilegan endi
fengu við slysið á Öskjuvatni árið 1907. Aætlun þeirra
var að fara að Kistufelli og hafa þar bækistöð en þoka
og skakkur áttaviti villti um fyrir þeim svo að þeir
áttuðu sig ekki fyrr en við sjálfa jökulbrúnina. Létu
þeir þar fyrirberast um nóttina en með morgni kom í
ljós að tjaldstaðurinn var við jökulinn vestur undir
Gæsavötnum. Tryggvi hélt þann dag til byggða með
hestana en hinir þrír gengu alllangt inn á jökulinn og
síðan austur á Kistufell. Næstu daga em þeir á þessum
slóðum, bæði á jökli og utan, en aðfaranótt 2. ágúst
kom Tryggvi aftur með hestana og um hádegi þann
dag héldu þeir norður í Öxnadal.71
64
JÖKULL, No. 45, 1998