Jökull - 01.10.1998, Blaðsíða 99
Jöklarannsóknafélag íslands
Skýrsla stjórnar Jörfi á aðalfundi 22. febrúar 1994
SKIPAN STJÓRNAR OG NEFNDA
Síðasti aðalfundur Jöklarannsóknafélags Islands
var haldinn 23. febrúar 1993. Fundarstjóri var Hjálmar
R. Bárðarson og Guttormur Sigbjarnarson ritari. A
fyrsta stjómarfundi eftir aðalfund, 1. mars, skipti stjóm
með sér verkum og dregið var um röð manna í
varastjóm. Stjómin var þannig skipuð:
Aðalstjórn:
Helgi Bjömsson formaður,
kosinn 1992 til þriggja ára.
Einar Gunnlaugsson varaformaður,
kosinn 1993 til tveggja ára
Oddur Sigurðsson ritari,
kosinn 1993 til tveggja ára.
Jón E. ísdal gjaldkeri,
kosinn 1992 til tveggja ára.
Stefán Bjamason meðstjómandi,
kosinn 1992 til tveggja ára.
Varastjórn:
Astvaldur Guðmundsson 1. varamaður,
kosinn 1993 til tveggja ára.
Jón Sveinsson 2. varamaður,
kosinn 1992 til tveggja ára.
Alexander Ingimarsson 3. varamaður,
kosinn 1993 til tveggja ára.
Hannes H. Haraldsson 4. varamaður,
kosinn 1992 til tveggja ára.
Valnefnd skipa Sigurjón Rist kosinn 1993 til þriggja
ára, Gunnar Guðmundsson, kosinn 1992 til þriggja ára
og Sveinbjörn Bjömssson kosinn 1992 til tveggja ára.
Oddur Sigurðsson, ritari félagsins, hafði umsjón
með fundagerðum og fréttabréfi, en Einar Gunnlaugs-
son sá um félagaskrá, dreifingu Jökuls innanlands og
utan, gíróseðla og samstarf um slík mál við gjaldkera.
Stjóm félagsins kaus formenn hinna ýmsu nefnda
og völdu þeir sér nefndarmenn. Nefndir voru þannig
skipaðar:
Rannsóknanefnd: Helgi Björnsson formaður og Jón
Sveinsson, Raunvísindastofnun, Hannes H. Har-
aldsson, Landsvirkjun, Oddur Sigurðsson, Orku-
stofnun og Magnús Már Magnússon, Veðurstofu.
Ritnefnd: Helgi Bjömsson og Bryndís Brandsdóttir til-
nefnd af Jörfi og Leó Kristjánsson, Karl Grönvold og
Kristján Sæmundsson tilnefndir af Jarðfræðafélagi.
Skálanefnd: Stefán Bjarnason formaður, Alexander
Ingimarsson, Ástvaldur Guðmundsson, Guðlaugur
Þórðarson, Jón E. ísdal, Pétur Þorleifsson og Sverrir
Hilmarsson.
Bílanefnd: Halldór Gíslason yngri formaður, Ámi Páll
Ámason, Garðar Briem, Hafliði Bárður Harðarson
og Þorsteinn Jónsson.
Ferðanefnd: Ástvaldur Guðmundsson formaður, Ámi
Páll Árnason, Hannes H. Haraldsson og Soffía
Vernharðsdóttir.
Um störf skemmtinefndar sáu Ástvaldur Guðmundsson,
Jórunn Garðarsdóttir og Halldór Gíslason, yngri.
Endurskoðendur félagsins voru Elías B. Elíasson og
Ámi Kjartansson.
Hinn 1. janúar 1994 voru félagar skráðir 554, 14
heiðursfélagar, 448 almennir félagar, 11 fjölskyldufél-
agar, 46 stofnanir og 35 bréfafélagar. Auk þess fengu 6
fjölmiðlar sendan Jökul og fréttabréfið. Erlendir
áskrifendur vom 61 og auk þess fékk Háskólabókasafn
15 eintök af Jökli til skiptiáskrifta.
FJÁRVEITING
Undanfarin ár hefur Jöklarannsóknafélags Islands
fengið styrk af fjárlögum til útgáfu tímaritsins Jökuls
og til rannsókna af fjárlagaliðnum „Vísindaleg starf-
semi, styrkir. Vísinda- og fræðistörf1. Á árinu 1992
nam þessi styrkur 450.000 kr. samkvæmt ákvörðun
Fjárlaganefndar. Hinn 21. september 1992 sótti félagið
um styrk til Fjárlaganefndar fyrir árið 1993. Mennta-
málaráðuneytið tjáði okkur hins vegar síðla árs 1993 að
Fjárlaganefnd hafi á árinu 1993 ekki tilgreint upphæð
styrks til félagsins í fyrrgreindum fjárlagalið og svo fór
að engin fjárveiting barst til félagsins frá mennta-
málaráðuneytinu á árinu 1993 og enn hafa ekki fengist
svör frá því hvort hún fáist. Við frágang fjárlaga fyrir
JÖKULL, No. 45,1998
97