Jökull


Jökull - 01.10.1998, Side 101

Jökull - 01.10.1998, Side 101
vestan- og norðanverðum Vatnajökli hafa til skamms tíma ekki hreyfst nægilega hratt til þess að bera fram þann snjó sem á þá safnast og því hefur stefnt í fram- hlaup þeirra. Sumarið 1992 hafði hreyfing Tungnaár- jökuls og Síðujökuls hins vegar aukist verulega og svo fór að Síðujökull hljóp fram í vetur. Sporður Tungna- árjökuls er enn flatur og ekki farinn að skríða fram þó að hraði jökulsins í um 1000 m hæð, í 6 km fjarlægð frá sporði, hafi sjöfaldast frá því sem var um 1986. Hér er því hafinn atburður sem einnig þarf að fylgjast með. Afkoma Hofsjökuls. Félagar á Orkustofnun unnu að mælingum á af- komu Hofsjökuls með svipuðu sniði og nokkur und- anfarin ár. FUNDIR Að loknum aðalfundarstörfum 23. febrúar sagði Snævarr Guðmundsson frá Öræfajökli. Vorfundur félagsins var síðan haldinn 20. apríl. Þar hélt Arný E. Sveinbjörnsdóttir erindi um niðurstöður borana í Grænlandsjökli, sem sýna breytingar í veðurfari og ýmsum umhverfisþáttum s.l. 200 til 300 þúsund ár. Að loknu kaffihléi sýndi Oddur Sigurðsson myndir sem hann hefur tekið úr flugvélum af jöklum landins, bæði af alfaraleiðum og fáfarnari slóðum. Á haustfundi 27. október flutti Oddur Sigurðsson erindi um jöklabreytingar hér á landi hin síðari ár og Ari Trausti Guðmundsson sagði frá fjallaklifri sínu og nokkurra félaga í Pakistan, en þar eru nokkur hæstu fjöll jarðarinnar. ÚTGÁFA JÖKULS Ritstjórar voru Helgi Björnsson og Leó Kristjáns- son, en Bryndís Brandsdóttir hafði umsjón með sam- antekt á íslensku efni. Á árinu kom út tveir árgangar, 41., sem brotinn var um í Háskólaforlaginu og 42. árgangi, sem Bryndís Brandsdóttir sá um. Frá miðju ári 1993 lagðist virðisaukaskattur að fullu á Jökul, eins og aðrar bækur og tímarit. FRÉTTABRÉF Oddur Sigurðsson, ritari félagsins, annaðist útgáfu Fréttabréfsins og kom það reglulega út. SKÁLAMÁL Skálanefnd vann á árinu mikið verk að viðhaldi allra skála nema að Breiðá. Skálarnir í Kirkjubóli, Kverkfjöllum, Goðahnúkum og Esjufjöllum eru í mjög góðu lagi. Kverkfjallaskálinn var málaður að utan, þveginn að innan og síðan veggir, loft og gólf lökkuð, heflað af hurðum, skrár lagfærðar, nýir hlerar settir fyrir útihurð, plexigler sett í gluggahlera. Mest verk var unnið í Jökulheimum. Lokið var við innrétt- ingar í gamla skálanum, sett í hann olíuvél til upphit- unar með tilheyrandi reykháfi, sem þykir fara vel. Seglagerðin Ægir gaf nýjar dýnur í allar kojur og gömlu dýnumar eru nú notaðar í flatsæng á loftinu. Þá var hafin smíði steinolíutanka utan á báða skálana. Öll þök og gluggar í Jökulheimum vom máluð og borið fúavarnarefni á húsin. Vatikanið var snyrt og úrkomu- mælirinn var málaður. Bókahillur voru settar í nýja skálann og þess má geta að skálanefnd hefur ljósritað allar gestabækur og mun ljóstimm verða komið í við- komandi skála ferðamönnum til afþreyingar. Húsnæðismál félagsins í Reykjavík eru nú í góðu lagi í húsi Ferðafélags Islands. Þar leigjum við fundar- herbergi á efstu hæð og geymslu í kjallara þar eru birgðir okkar af Jökli og ýmis gömul skjöl félagsins. Auk þess höfum við aðgang að 60 manna sal með eld- húsi í risi hússins. Alexander Ingimarsson er fulltrúi félagsins í húsnefnd og em félagar sem hafa áhuga á að nýta sér húsnæði þar hvattir til þess að hafa sam- band við hann. Samningur okkar við Ferðafélagið rennur úr í árslok 1994. Næsta stórátak skálanefndar verður nú að koma upp húsi á Grímsfjalli þar sem yrði salerni og afdrep til viðgerða á tækjum og geymsla. Framkvæmdir munu hefjast fljótlega og stefnt er að því að koma húsinu upp í næstu vorferð félagsins. BÍLAMÁL OG FARARTÆKI Miklar umræður hafa verið í stjóminni um bílmál félagsins. Ákvarðanir um þau mál tengjast fyrirhuguð- um verkefnum félagsins í rannsóknum, útgáfumálum, viðhaldi skála og nýbyggingum. Vegna kostnaðar við byggingar á Grímsfjalli og útgáfu Jökuls hefur félagið JÓKULL, No. 45, 1998 99
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.