Jökull


Jökull - 01.10.1998, Page 104

Jökull - 01.10.1998, Page 104
Fjárlaganefndar. Síðan tók menntamálaráðuneytið sjálft að ákveða styrkveitingar til félagsins. Þær urðu engar árið 1993 en 400.000 kr. árið 1994 eftir sífelldan eftirrekstur og vonaði ég að það sýndi skilning þeirra á starfi félagsins, m. a. mikilvægi þess að Jökull kæmi út. En nú hefur ráðuneytið tilkynnt félaginu, án eftirrekstrar í ársbyrjun, að á árinu 1995 verði styrkurinn 150.000 kr, svo að vissulega hefur það ekki gleymt okkur. Nú er orðið ljóst hver stefnan þess er en meðan Fjárlaganefnd ákvað framlag til félagsins voru hins vegar alltaf í henni nægilega margir þingmenn sem höfðu metnað til þess að styðja útgáfu Jökuls. RANNSÓKNIR Rannsóknir á vegum félagsins s.l. ár beindust eins og undanfarin ár að Grímsvötnum og mælingum á jöklabreytingum. Arleg rannsóknaferð Jöklarannsóknafélagsins var farin til Grímsvatna dagana 16.- 22. júní 1994. Helstu verkefni voru flutningur nýs geymslu- og snyrtihúss upp á Grímsfjall auk rannsókna. Þátttakendur voru 34. Fararstjórar voru Jón E. Isdal og Magnús Tumi Guðmundsson. Þessi Grímsvatnaleiðangur var með mesta móti vegna flutninga á húsi til Grímsfjalls. Snjóbílar í ferðinni voru frá Landsvirkjun, Hjálpar- sveit skáta í Reykjavík, Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og JÖRFI. Þá lögðu Gunnar Guðmundsson, hjálparsveitimar báðar og Landsvirkjun til vörubíla og Heirnir Lárusson stóran bílkrana til þess að koma skálanum á flutningabíl. Allt var þetta án gjaldtöku og þakkar stjórnin þann stuðning. Unnið var að eftirtöldum verkefnum: 1. Hæð vatnsborðs Grímsvatna var mæld í vök undir Vestari Svíahnúk. Hinn 20. júní s.l. mældist hún 1425 m y.s., sem var um 15 m hærra en á sama tíma árið áður. 2. Vetrarafkoma var mæld á miðri íshellunni og reyndist 5,08 m (af snjó), vatnsjafngilsi 2875 mm, sem er nokkru yfir meðallagi s. 1. 40 ár. Auk þess var unnið að því að greina öskulög með íssjá og þróa þannig aðferð til þess að meta afkomu jökla frá því þekkt öskulög féllu. 3. Unnið var að athugunum á hægfara breytingum stærð og rúmtaki Grímsvatna. Undanfama þrjá áratugi hefur bæði þrengt að Vötnunum og íshellan þykknað svo að rúmtak þeirra hefur minnkað og þar með vatnsmagn í Grímsvatna- hlaupum. Þykkt íshellunnar og hvar hún fer á flot var kannað með íssjármælingum og land- mælt var 4 km langt snið norðaustur úr Vötn- unum til þess að fá mat á ísskrið inn að þeim. 5. Unnið var að þyngdarmælingum á Bárðar- bungu, sem er ein mesta askja landsins, til þess að kanna innri gerð eldstöðvarinnar undir jökli. 6. Unnið var að afkomumælingum á Hvanna- dalshnúk og reyndist ársafkoma um 7500 mm af vatni. Er það annað árið í röð sem úrkoma mælist svo mikil á Öræfajökli og er úrkoma hvergi meiri hér á landi. 7. Unnið var að viðhaldi og endurbótum á sjálf- virku mælistöðinni á Grímsfjalli. 8. Sett var upp sjálfvirk veðurstöð Landsvirkj- unar á Brúarjökul í 1200 m hæð á miðjum jöklinum. Þar stóð hún um sumarið og mældi lofthita, rakastig, vindhraða og snjóbráðnun. Þar er um að ræða rannsóknir á tengslum veðurs og jökulleysingar. 9. Mælt var ísskrið í mælistikum á vestanverðum Vatnajökli, sem settar hafa verið upp af Lands- virkjun og Raunvísindastofnun til rannsókna á framhlaupum jökla. Mælingar á jökulsporðum Mælingar á stöðu jökulsporða voru með svipuðu sniði og áður undir stjóm Odds Sigurðssonar. A árinu unnu félagar að mælingum á jöklabreytingum með því að mæla hop og framskrið á um 45 jökulsporðum víðsvegar um land. Sú vinna er ólaunað sjálfboðastarf, en félagið greiðir styrk vegna eldsneytiskostnaðar. Könnun á afkomu og hreyfingu á Vatnajökli Á árinu unnu félagar á Raunvísindastofnun og Landsvirkjun áfram að mælingum á afkomu og hreyfingu á Síðujökli, Tungnaárjökli, Dyngjujökli, Brúarjökli auk Grímsvatnasvæðisins. Afkoma var rnæld með borunum og hreyfing með GPS-tækjum. Af niðurstöðum má nefna að Brúarjökull og Dyngju- jökull hreyfast svo hægt að á jökulárinu 1993-94 báru 102 JÖKULL, No. 45, 1998
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.