Jökull


Jökull - 01.10.1998, Side 105

Jökull - 01.10.1998, Side 105
þeir aðeins fram um 20-30 % af þeim ís sem á þá safnaðist og því er ljóst að þeir stefna í framhlaup. Arið áður fluttu þeir eingöngu um 7% af afkomunni. Tungnaárjökull hleypur fram af miklum krafti og er sporður hans nú kominn um 940 m frá því hann tók á rás s. 1. haust. Síðastliðið sumar varð vart við miklar breytingar á sporðinum. Kollar ýttust upp ofan við fell og mælingar á skriðhraða inni á jöklinum sýndu sífellt aukinn hraða. Úr flugvélum sást að talsverður hluti ákomsvæðis jökulsins (sem er ofan við 1100 m) var sprunginn í september og í október hófst framskrið á einum stað, um 1 km norðan Nýjafellslínu. Síðan hafa starfsmenn Landsvirkjunar og Raunvísindastofnunar mælt framskriðið á þremur stikulínum í Tungnaár- botnum með 2-3 vikna millibili. Framskrið á Nýja- fellslínunni hófst um mánaðamótin okt. nóv. og um miðjan nóvember voru tvö fell við sporðinn, sitt hvoru megin við Nýjafellslínu, komin á kaf og miklir sprungkollar yfir þeim. Skriðhraðinn var að jafnaði um 10 m á dag undir lok síðasta árs, en var orðinn um 6 m/dag í janúar og var um 5 m/dag í byrjun febrúar. Nú í lok febrúar er hraðinn orðinn um 4 m/dag, en miklir dynkir em í jöklinum og titringur kemur fram á jarð- skjálftamæli, sem er í Bláfjöllum um 5 km frá jökli. Nokkuð var misjafnt hvenær hinir ýmsu hlutar sporðs- ins fóru af stað og um 1 km langur kafli við vaðið á Tungnaá við jökul var ekki farinn að skríða fram um miðjan desember og enn er syðsti hlutinn kyrr þótt hann verði stöðugt brattari og sprungukollar séu teknir að skjótast upp í tungunni. Ofan við Langasjó er jökullinn enn kyrr, en sunnan við hann hefur Skaftár- jökull hins vegar ruðst fram. Varla er þess langt að bíða að allur jökullinn hlaupi fram á þessu svæði, allt að Síðujökli, sem hljóp á síðasta ári. Athyglisvert er að Tungnaárjökull sígur mun hægar fram en Síðujökull, sem náði hámarkshraða við sporð um 100 m/dag. Vatn hefur seytlað frá jöklinum allt frá því framskrið hófst, mjög gruggugt. Sylgjujökull er hins vegar kyrr, en efst á honum eru töluverðar sprungur. Afkoma Hofsjökuls Félagar á Orkustofnun unnu að mælingum á afkomu Hofsjökuls með svipuðu sniði og nokkur undanfarin ár. íssjármælingar Vorið 1994 lauk íssjármælingum á Skeiðarárjökli sem hófust árið áður í samvinnu Vegagerðar og Raunvísindastofnunar. Er nú lokið mælingum á öllum Vatnajökli nema skriðjöklunum sem falla austur frá Breiðubungu. Auk þess þarf að mæla Öræfajökul betur en gert hefur verið. FUNDIR Að loknum aðalfundarstörfum 22. febrúar sögðu Magnús Tumi Guðmundsson og Óskar Knudsen frá framhlaupi Síðujökuls. Á vorfundi 26. apríl sagði Helgi Björnsson frá niðurstöðum íssjármælinga á Mýrdalsjökli og Oddur Sigurðsson sýndi myndir af framhlaupi Síðujökuls. Á haustfundi 25. október flutti Sigfús Johnsen erindi um rannsóknir á nýjasta ískjarnanum frá Grænlandsjökli og óstöðugleika síðasta hlýskeiðs og Ástvaldur Guðmundsson sýndi ýmsar gamlar og nýjar myndir frá jöklaferðum. Á haustfundinum flutti Helgi Björnsson minningarorð um Sigurjón Rist, fyrrum formann félagsins, sem lést 15. október s. 1. ÚTGÁFA JÖKULS Ritstjórar voru Helgi Björnsson, Leó Kristjánsson og Bryndís Brandsdóttir. Nú hefur Áslaug Geirsdóttir tekið við störfum Leós og þökkum við honum feyki- legan dugnað við ritstjórastörfin um árabil. Ekki tókst að koma 43. árgangi út á árinu en hann bíður nú nær fullbúinn þess að fara í prentsmiðju. Til þess að koma skriði á útgáfu Jökuls hefur nú verið ákveðið að tilnefna nokkra ritstjóra að einstök- um heftum, sem fjalla um valin efni. Þannig safna rit- stjórar efni hver í sitt hefti og afhenda útgáfustjórum umbrotshæfu handriti. Ritnefnd, skipuð 6-10 mönn- um á mismunandi starfssviðum, mun aðstoða ritstjóra við yfirlestur greina. Ákveðið hefur verið að Freyr Þórarinsson ritstýri hefti um jarðskorpu Islands, Tómas Jóhannesson um jöklabreytingar og Bryndís Brandsdóttir um Kötlu. Um helmingur hvers heftis flytur hins vegar aðsent efni án þess að það tengist meginefni heftisins. JOKULL, No. 45, 1998 103
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.