Tímarit UNIFEM - 01.01.2008, Side 32
32
Stríðið gegn kon um í Austur-Kongó
austurkongó
Höfuðborg: Kinshasa
Mannfjöldi: 62,6 milljónir
lífslíkur: 48 ár (karlar), 45 ár (konur)
vlF á mann, jafnvirðisgildi (PPP): 740 USD
læsi (eldri en 15 ára): 54% (konur), 71% (karlar)
aðgangur að hreinu vatni: Innan við 50%
landsmanna
Fólksfjölgun: 3,2% – rúmlega 47% lands manna
eru yngri en 15 ára og aðeins 2,5% eru eldri
en 65 ára
Barn á hverja konu: 6,3
Barnadauði (undir fimm ára) 1 af hverjum 5
börnum sem fæðast deyja fyrir 5 ára aldur. Landið
er í sjöunda sæti yfir hæsta barnadauða í heimi.
HIv/aIDS: Áætlað að um 1 milljón manns sé
smituð, konur eru 57% smitaðra.
konur eiga 8,7% sæta á þingi
Í miðri Afríku liggur hitabeltislandið Kongó.
Kongó-áin hin mikla liðast í gegnum landið
og öflug og vatnsmikil skapar hún víðfeðmt
og gróðursælt vatnasvæði í hjarta afrísku
álfunnar. Í heitu og röku loftslaginu dafnar
hinn iðjagræni regnskógur og fóstrar fjöl-
breytt lífríki sem hýsir helming allra dýrateg-
unda í Afríku. Þar vappa fílar og flóðhestar,
gíraffar og górillur á jörðu niðri, litríkir fugl-
ar, páfagaukar og fiðrildi flögra og apar
sveifla sér milli greina í þéttriðnu neti trjá-
gróðurs. Í austri og norðri rís hálendið til
himins með tignarlegum fjöllum og virkum
eldfjöllum og í suðri, við minnkandi úrkomu,
tekur hin víðáttumikla hitabeltisgresja við.
Austur-Kongó er næststærsta landið í sunn-
anverðri Afríku (aðeins Súdan er stærra) og er
á stærð við alla Vestur-Evrópu. Þar búa nú um
60 milljónir manna við mikla náttúrufegurð,
en öll hverfur hún í skugga þess skelfilega
raunveruleika sem þjóðin býr við. Stríðsást-
and hefur ríkt í landinu í rúman áratug og
talið er að um 3,5 til rúmlega 5 milljónir
manna hafi látist frá 1998. Til samanburðar
má geta þess að íbúafjöldi í Danmörku er 5,4
milljónir. Um er að ræða flest dauðsföll í stríði
síðan seinni heimsstyrjöldinni lauk. Talið er að
enn sé um ein milljón manna á vergangi eða
í flóttamannabúðum eftir að hafa þurft að
yfirgefa heimili sín vegna ástandsins.
Enn er talið að um 40 þúsund manns deyi í
hverjum mánuði vegna stríðsástandsins, úr
hungri, næringarskorti og sjúkdómum. Dán-
artíðni í Austur-Kongó er 57% hærri en í
öðrum löndum sunnan Sahara; lífslíkur í dag
eru um 46 ár. Verst sett eru börnin, sem eru
berskjölduð, því þau eru mjög móttækileg
fyrir sjúkdómum svo sem malaríu, mislingum
og taugaveiki. Þetta eru sjúkdómar sem geta
leitt börn til dauða ef lyf eru ekki fáanleg.
Tuttugu prósent barna í Austur-Kongó deyja
áður en þau ná fimm ára aldri.
Pólitískur óstöðugleiki
og stríðsástand
Þegar einræðisherrann Mobutu flúði land
1997, eftir eins árs baráttu við stjórnarand-
stöðuherinn, hafði hann verið við völd í 32 ár
og mjólkað land og þjóð í eigin þágu. Áætl-
að er að 1984 hafi hann átt nærri fjóra millj-
arða dollara í bönkum erlendis, sem jafngilti
skuldastöðu þjóðarinnar á þeim tíma. Efna-
hagslífi landsins hnignaði mjög á þessu tíma-
bili og ólga og óánægja magnaðist meðal
fólksins undir harðstjórn hans.
Eftir að stjórnarandstöðuherinn rak Mobutu
frá völdum tók við pólitískur óstöðugleiki.
Aðeins ári seinna, árið 1998, hófust aftur stríðs-
átök milli sitjandi stjórnar (undir stjórn Kabila)
og nýrrar stjórnarandstöðu. Nú blönduðu
nágrannar sér í leikinn og studdu Rúanda og
Úganda stjórnarandstöðuna en Angóla,
Namibía og Simbabve studdu stjórnina. Með
stuðningi sínum voru löndin að vernda eigin
landamæri og hagsmuni, meðal annars í þeim
tilgangi að koma í veg fyrir að skæruliðar sem
börðust gegn þeirra eigin stjórnum fengju
griðland eða stuðning í Austur-Kongó. Að auki
er um að ræða átök skæruliða um yfirráð yfir
auðlindaríkum svæðum. Námur veita þeim
Kona leitar skjóls með barn sitt
í stríðsátökunum í Kongó.
©
E
d
d
y
Is
an
g
o
/IR
IN