Tímarit UNIFEM - 01.01.2008, Qupperneq 50
50
Svipmyndir af félögum í UNIFEM á Íslandi
Jónas Gunnar allansson
Hversu lengi hefur þú verið félagi?
Síðan árið 2006.
Af hverju gerðist þú félagi í UNIFEM?
Mér finnst mikilvægt að styrkja samtökin,
bæði til að vekja athygli almennings á stöðu
kvenna í þróunarlöndum og á átakasvæðum,
en ekki síður til að tryggja að stjórnvöld taki
mið af áherslum UNIFEM í sínu alþjóðastarfi.
Þá eru málefni kvenna alls ekki einkamál
kvenna heldur okkar allra.
Hvaða þýðingu hefur UNIFEM í þínum huga?
Starfsemi UNIFEM er smá í sniðum ef maður
horfir á aðrar stofnanir SÞ. Áherslur UNIFEM
eru hins vegar nauðsynlegar og ómissandi í
öllu alþjóðstarfi, og þá sérstaklega á stríðs-
hrjáðum svæðum, vegna þess að við eigum
ennþá mjög langt í land með að tekið sé í
reynd fullt mark á kynjasjónarmiðum í
mannúðarstarfi og við friðaruppbyggingu.
Það brennur alltof oft við að þessi málefni
kvenna séu afgreidd sem hluti af pólitískum
sparifötum þegar þau eru í reynd grafalvar-
leg forsenda fyrir uppbyggingu og þróun
allra samfélaga.
Af hverju finnst þér nauðsynlegt að styðja
sérstaklega við bakið á konum í þróun-
arlöndunum?
Konur í þróunarlöndum gegna veigamiklu
hlutverki við að viðhalda og endurskapa
samfélagið, bæði í gegnum fjölskylduna en
ekki síst með þátttöku sinni í efnahagslífinu.
Finnst þér vera jafnrétti á Íslandi?
Það væri sennilega hægt að halda því fram
að réttindin séu fyrir hendi en að við eigum
langt í land með að fylgja þeim eftir. Margt
af því sem ekki er í lagi snýr, held ég líka, að
okkar hugarfari og það er kannski það sem
er erfiðast að eiga við.
Helga Óskarsdóttir
Hversu lengi hefur þú verið félagi?
Í fimm ár.
Af hverju gerðist þú félagi í UNIFEM?
Það var fyrir hvatningu frá tengdadóttur
minni en hún er félagi í UNIFEM.
Hvaða þýðingu hefur UNIFEM í þínum huga?
UNIFEM hefur ómetanlega þýðingu hvað
varðar málefni kvenna. Samtökin eru magn-
að, áþreifanlegt afl sem hefur það markmið
að bæta stöðu kvenna í heiminum og um
leið auka skilning á mikilvægi kynjajafnréttis.
Vegna þessa getur samtakamáttur og bar-
átta UNIFEM skilað árangri fyrir réttlátari
heimi.
Af hverju finnst þér nauðsynlegt að styðja
sérstaklega við bakið á konum í þróunar-
löndunum?
Svo að réttlæti nái fram að ganga. Til þess
að það verði að veruleika þarf að efla
menntunarþáttinn. Þá þarf að styðja konur
til efnahagslegrar sjálfsbjargar. Jafnframt
þarf að þjálfa konur til þátttöku í stjórnmál-
um og öðrum forystustörfum.
Finnst þér vera jafnrétti á Íslandi?
Samkvæmt íslenskum lögum skal vera jafn-
rétti. Nokkuð hallar á í launamálum og
skilningur gagnvart jafnrétti í stjórnunar-
störfum, sérstaklega í stórum fyrirtækjum
og fjármálaheiminum, er ekki kominn í rétt-
an farveg. Ef til vill fer að verða aukinn
skilningur ásamt hugarfarsbreytingu í jafn-
ræðisátt í þessum málum á næstu misserum.
Guðrún agnarsdóttir
Hversu lengi hefur þú verið félagi?
Ég hef verið félagi næstum því frá stofnun
UNIFEM á Íslandi.
Af hverju gerðist þú félagi í UNIFEM?
Ég starfaði í Kvennalistanum þegar UNIFEM
var stofnað á Íslandi og það var og er ljóst að
mikilvægt er að bæta hlut kvenna en hann er
mun lakari í þróunarlöndum en hér heima.
Okkur Íslendingum ber, sem ríkri og aflögu-
færri þjóð, að sinna skyldum okkar í þróun-
arstarfi á alþjóðavettvangi. Þar höfum við ekki
staðið okkur sem skyldi gagnvart samningum
Sameinuðu þjóðanna. Við stofnun UNIFEM
hér á landi gafst gott tækifæri til að vekja
athygli þjóðarinnar á hlutskipti kvenna í þró-
unarlöndum og finna leiðir til að bæta það.
Hvaða þýðingu hefur UNIFEM í þínum huga?
Ég kynntist fyrst UNIFEM þegar ég sótti þing
SÞ árið 1986 og mér varð ljóst að þarna var
á ferðinni öflug og hnitmiðuð starfsemi í
þágu þeirra kvenna sem lökust hafa lífskjör í
heiminum. Ég tel að starf UNIFEM hafi vakið
athygli heimsins á hlutskipti kvenna um víða
veröld og skilað góðum árangri beint til
kvenna.
Af hverju finnst þér nauðsynlegt að styðja
sérstaklega við bakið á konum í þróunar-
löndunum?
Rannsóknir hafa sýnt að réttindi og hlut-
skipti þeirra eru oft lakari en annarra en sú
aðstoð sem konum í þróunarlöndum er veitt
hefur margfeldisáhrif í samfélagi þeirra. Hún
ávaxtar sig í styrk þeirra sjálfra og í velferð
barna þeirra og allrar fjölskyldu með þeim
hætti sem ekki sést við aðrar styrkveitingar.
Finnst þér vera jafnrétti á Íslandi?
Á sumum sviðum er það í orði en víðar er
það ekki á borði. Enn er mikið verk að
vinna.