Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2009, Síða 32
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 6. tbl. 85. árg. 200928
Afmælisþing var haldið undir yfir skriftinni
HJÚKRUN – þekking í þína þágu.
Þingið var fyrsta formlega samvinnu
verkefni fagsviðs Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og fagdeilda þess og
var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Alls
tóku 13 fagdeildir þátt í afmælisþinginu
og sá hver fagdeild um 3 klst. dagskrá, en
skipulagið var þannig að þinggestir gátu
farið á milli sala og hlustað á þá fyrirlestra
sem þeir höfðu áhuga á. Alls voru fluttir
67 fyrirlestrar á vegum fagdeilda auk
ávarpa og fyrirlestra sem ætlaðir voru
öllum þátttakendum við upphaf og lok
þingsins. Auk þessa var boðið upp á
vinnusmiðjur af mismunandi toga.
AFMÆLISÞING Í TILEFNI 90 ÁRA AFMÆLIS FÉLAGS
ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Þann 18. nóvember 1919 komu sex hjúkrunarkonur
saman í Aðalstræti 8, í herbergi sem Lestrarfélag
kvenna í Reykjavík leigði í þessu fræga húsi, og
stofnuðu félag sem þær nefndu Félag íslenskra
hjúkrunarkvenna. Í ár eru því liðin 90 ár frá stofnun
þess félags og af því tilefni hélt Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga upp á tímamótin með ýmsum
hætti. Má þar nefna að samið var við Mosfellsbakarí
um að baka sérstaka afmælistertu sem
hjúkrunarfræðingar gátu keypt á afmælisdaginn 18.
nóvember, afmælisþing var haldið dagana 20.21.
nóvember og að lokum afmælisboð 20. nóvember
þar sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga bauð
félagsmönnum sínum til móttöku.
Aðalbjörg Finnbogadóttir, adalbjorg@hjukrun.is
Undirbúningsnefnd ákvað strax í upphafi
að afmælisþingið skyldi vera hátíð
hjúkrunarfræðinga þar sem lögð yrði
áhersla á jákvæðni og gleði og öllu
krepputali sleppt. Það er samdóma álit
þeirra sem þingið sóttu að það hafi
heppnast einstaklega vel og þingið hafi
verið bæði skemmtilegt og fróðlegt.
Afmælisþingið sýndi svo ekki verður
um villst að þekking og fagmennska í
hjúkrun er gífurlega verðmæt þessari
þjóð og mikilvægt að hennar njóti við á
heilbrigðisstofnunum um allt land.
Ekki verða einstaka fyrirlestrum gerð skil
hér en vonandi eiga eftir að birtast greinar
í Tímariti hjúkrunarfræðinga byggðar á
fyrirlestrum afmælisþingsins. Á vefsvæði
afmælisþingsins á www.hjukrun.is er að
finna dagskrár þingsins í heild svo og
dagskrár allra fagdeilda.
Sameiginleg dagskrá við setningu
og slit afmælisþingsins
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga, setti
afmælisþingið. Í ávarpi sínu sagði hún
meðal annars: „Það að stofna sjálfstætt
fag og stéttarfélag kvennastéttar var síður
en svo sjálfgefið fyrir 90 árum. En þessar
sex kjarkmiklu konur gerðu sér grein fyrir
mikilvægi þess að starfa saman og standa
saman í því mikla umbótastarfi sem fram
undan var í heilbrigðismálum þjóðarinnar.
Þær gerðu sér grein fyrir mikilvægi fjölgunar
fullmenntaðra hjúkrunarkvenna og þess
að efla skilning stjórnvalda og almennings
á mikilvægi menntunar. Einnig var eitt
meginmarkmiðið með stofnun félagsins
að gæta hagsmuna hjúkrunarkvenna í
hvívetna.
Segja má að öll þessi markmið, þessi
verkefni félagsins við stofnun þess,
séu enn í fullu gildi. Nú þegar við
stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum
í heilbrigðiskerfinu, verkefnum sem við
höfum aldrei staðið frammi fyrir áður,
þegar á okkar fjölmennu stétt standa