Jón á Bægisá - 01.12.2001, Blaðsíða 63
Strange Fruit
upp brekkuna. Brattinn jókst. í suðri mátti sjá þokubelti, það lagðist yfir
eyjarnar sem næstar voru. Svo tók við stallur í hlíðinni og við komum á
grýtt svæði. Nágranninn þreif í handlegginn á mér.
- Það eru fjórar leiðir til að aflífa ketti, sagði hann.
- Það iiggur á, sagði ég. Hvað erum við að gera hérna?
Hann hlustaði ekki á mig.
- Lemja þá í hnakkann, eða á ennið. En maður veit aldrei. Er höggið
nógu fast?
Hann teymdi mig inn á örmjóan stíg milli lágvaxinna birkitrjáa, stíg-
urinn var varla sýnilegur.
- Svo má líka notast við rafmagnsvír. En það er ekki góð aðferð. Það
getur orðið skammhlaup, þá fer rafmagnið af byggðinni og allir verða
öskuillir.
Hann brosti og klappaði mér á herðarnar:
- Og svo eru það deyfilyf. Þau eru ótrygg. Dýrið getur vaknað aftur og
liðið jafnilla. Eða kannski ennþá djöfullegar.
Nágranni minn, sem heitir Einar, horfði á mig.
- Ertu ekki sammála?
Ég kinkaði kolli:
- En kötturinn kvelst. Við verðum að flýta okkur.
Við þurftum að klöngrast yfir læk. Það heyrðist garg í fugli í hlíðinni
fyrir ofan okkur. Nágranninn nam staðar.
- Hérna er það.
- Hérna? Hvað áttu við?
Hann litaðist um rólega og brosti svo:
- Það er ekki gott að skjóta milli augnanna. Þeir drepast þá ekki strax.
Þeir geta lifað lengi á eftir. Best er að skjóta þá ofanfrá, beint inn í heil-
ann. Og enn betra inn í eyrað. Ertu ekki sammála?
- Jú, svaraði ég. Við skulum ljúka þessu af.
Hann benti á stein við hliðina á stórri rótarhnyðju.
- Komdu, sagði nágranninn.
Nágranninn, Einar hét hann, gekk að steininum, velti honum við og
gáði undir hann. Ég varð að hjálpa honum. Ég hafði ekki hugmynd um
hversvegna hann var að þessu. Ég var með allan hugann við Simone,
köttinn, þar sem hann lá limlestur í blautu grasinu. Ég velti steininum
smáspöl meðan hann lá á fjórum fótum og leitaði að einhverju.
Þegar hann stóð loksins upp var eitthvað tryllingslegt í augnaráðinu.
- Hún er ekki hérna, hvíslaði hann.
- Hvað þá?
- Skammbyssan, auðvitað.
d - Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina
61