Jón á Bægisá - 01.12.2001, Blaðsíða 23

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Blaðsíða 23
Steinn Satans „Garmskarnið," andvarpaði önnur. „Aumkunarverður vesalingur," kvað við hvaðanæfa, og öllum þótti sem orðið ógæfumaður ætti best við Solo þar sem hann lá kjökrandi við brjóst hinnar látnu. Sopío greip í handlegginn á mér og hjúfraði sig upp að mér, hún nötr- aði öll og var nábleik í framan, neðri vörin titraði, hún stóð á öndinni, og stundum var eins og hún ætti bágt með að kyngja niður munnvatn- inu. Móðir Data fór enn að kjökra og grátbændi Sopío hvíslandi: „Kæra ungfrú, ég bið yður hjálpar, veitið mér liðsinni ...“ Sopío svaraði ekki og mælti engum huggunarorðum til hennar framar. „Sopío, við skulum fara,“ sagði ég. „Nei, dokaðu við,“ svaraði hún titrandi röddu og horfði enn á Solo og líkið. Solo grót og snökti þunglega við brjóst ekkjunnar, skalf og tók upp aft- ur og aftur sömu orðin sundurslitin: „Vei mér, mín ástkæra móðir, móð- ir mín ..." „Leysið af honum hlekkina, hundingjarnir ykkar!“ hrópaði einhver. Fimm menn hlupu til og leystu á honum hendurnar í skyndi. „Reisið hann á faetur," kallaði annar. Og enn hlupu þeir fimm til og reistu hann á fætur „Þú reynir það ekki í annað skipti," sagði gamall maður blíðlega, „ellegar áttu okkur á fæti ...“ „Nei, hann þorir ekki í annað skipti," var hrópað honum til málsbót- ar héðan og þaðan. Þessu andmælti enginn, enda fundu allir á sér að Solo höfðu verið gefnar upp sakir. Hann hypjaði sig því næst á brott og hvarf í mannfjöldann. Nú var röðin komin að Data. Einn af unglingunum kallaði: „Lítið á hann, úlfshvolpinn, hvernig hann horfir á okkur.“ „Er hann ekki líkastur úlfi í gildru?“ hrópaði annar. Og satt var það, Data var líkastur úlfi sem hefur verið veiddur í gildru, hann lét sem minnst á sér bera, fór saman í hnipur og engdist allur og lét höfuðið síga niður á milli axlanna. Einn úr mannþyrpingunni réð að honum: „Leggstu á kné, vargshvolp- ur!“ Mannfjöldinn varð enn ákafari: „Leggstu á kné, leggstu á kné!“ kvað við úr öllum áttum. En Data hrærði hvorki legg né lið. „Varpið honum á kné með valdi, kastið honum á kné!“ var hrópað hvaðanæfa. Múgurinn réðst að honum og lagði á hann hendur og ætlaði d JBœytóá - Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Jón á Bægisá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.