Jón á Bægisá - 01.12.2001, Blaðsíða 13
Sigurður A. Magnússon
Fróöleiksmolar um Georgíu
I greininni hér að framan gefur Irma Matsjavariani stutt og fróðlegt yfir-
lit yfir georgískar bókmenntir. Mig langar að bæta nokkrum dráttum í
myndina, sem hún dregur upp, og þá einkanlega rifja upp fleiri söguleg-
ar staðreyndir.
Alltað 800 þúsund ára gamlar mannvistarleifar hafa fundist í Georgíu.
Farið var að vinna eir í landinu kringum 3500 f. Kr. og hann blandaður
öðrum málmum eftir árið 3000. Auðlegð Kolkis, einsog Vestur-Georgía
var nefnd til forna, varð Grikkjum hugstæð og kemur meðal annars fram
í goðsögninni um Jason, Medeu og gullreyfið. Sögnin um Prómeþeif
fjötraðan er líka tengd Georgíu. Grikkir frá borginni Miletos hófu að
stofna nýlendur í Georgíu uppúr aldamótum 600 f. Kr. í Gamla testa-
mentinu nefnir Esekíel spámaður (32,26) tvo þjóðflokka í Georgíu, Mesek
og Túbal, sem versluðu með brons og þræla.
Georgía er afbökun fyrri tíðar Itala á persnesku, axabísku og tyrknesku
nafni landsins, Gúrdjistan [Gúrdjí: georgískur maður). Sama nafn hafa
Rússar afbakað í orðinu Grúsía. Sjálfir nefna Georgíumenn sig Kartvelní
eða Kartvelebí, og land sitt kalla þeir Sakartvelo. Tunga þeirra er hvorki
skyld indóevrópska né tyrkneska málaflokknum. Hún er ein af
Kákasustungum og ákaflega flókin: fjölpersónulegar sagnir (sögnin bæði
hneigð eftir frumlagi og andlögum), tvítug talning (fjörtíu eru tvisvar
sinnum tuttugu o.s.frv.) og gerandafall [ergativus, haft sem frumlag með
áhrifssögnum). Masúdí, arabískur höfundur á lOndu öld, nefnir Kákasus
„tungnafjall" og segir þar ganga 72 tungumál. Samtímamaður hans, Ibn
Khaukal, telur þau vera 370 talsins! Gríski sagnfræðingurinn Strabon,
sem uppi var á tímum Sesars og Ágústusar, greinir frá því, að á torginu
í Díoskúrías, skammt frá núverandi Súkúmí, megi heyra 70 tungur. Og
rómverski fjölfræðingurinn Plinius eldri (21-79) upplýsir, að í sama bæ
þurfi eina 130 túlka til að kaup og sölur gangi sem greiðlegast.
Áætlað er að íbúatala Georgíu sé ríflega 5 milljónir, og eru Kartvelir
tveir þriðjungar landsmanna. Meðal minni þjóðarbrota eru Rússar,
á dföœýrkúá — Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina
11