Jón á Bægisá - 01.12.2001, Blaðsíða 5
Ritnefnd hefur oröiö
Þegar Jón á Bægisá, tímarit þýðenda, hóf göngu sína fyrir sjö árum
renndum við sem þá vorum í ritnefnd býsna blint í sjóinn hvernig okk-
ur reiddi af; þetta var tilraun. Okkur grunaði að margir þýðendur
geymdu margvíslegar þýðingar, stórar og smáar, í skrifborðsskúffunni og
hæpið að þær kæmu nokkru sinni út þótt þær verðskulduðu það fylli-
lega. Þessi grunur reyndist vissulega á rökum reistur. í ritnefndarpistli 2.
heftis (1995) var á það bent hve mörg íslensk skáld og rithöfundar hefðu
lagt stund á þýðingar; því er við að bæta að samkvæmt okkar reynslu eru
aldeilis ótrúlega margir fyrir utan þann hóp að dunda við að þýða skáld-
skap af fjölbreytilegu tagi. Og það sem meira er (það höfum við líka
sannreynt): allur þorri þessara þýðenda ástundar mikla vandvirkni og
leggur alúð í verk sín. Af því leiðir að það hefur ekki íþyngt okkur að
ráði að uppfylla þann ásetning að bjóða lesendum upp á metnaðarfullt
og vandað rit.
Með þessu sjötta hefti á sjö árum nálgast Jón á Bægisá það að geta
kallast ársrit; vissulega hefðum við óskað að ritið kæmi oftar og ekki síst
reglulegar út. Við ætlum þó ekki að þreyta lesendur með því að kvarta
um fjárskort, of fáa áskrifendur, erfiðleika við að halda úti tímaritum á
Islandi (ef þau neita sér um glansmyndir og kynlíf!) og svo framvegis.
Um leið og við þökkum þeim áskrifendum sem haldið hafa tryggð við
okkur (sem þeir auðvitað gætu undirstrikað enn frekar með því að út-
vega okkur fleiri áskrifendur!) viljum við þakka bókaútgáfunni Orms-
tungu og sér í lagi eiganda hennar, Gísla Má Gíslasyni, sem af velvilja,
fórnarlund og einstökum dugnaði hefur gert okkur kleift að gefa Jón á
Bægisá út.
Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, var einn af hvatamönnum
þess að þessu tímariti þýðenda var ýtt úr vör og sat í ritnefnd þess fyrstu
árin. Á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember síðastliðinn voru henni
veitt Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir stórkostleg afrek á sviði þýð-
inga. Okkur er það sérstakur heiður að birta ávarp Ingibjargar við verð-
— Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina
3