Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Qupperneq 9
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 89. árg. 2013 5
Ef hjúkrunarfræðingar, geislafræðingar, læknar og hugsanlega fleiri stéttir yfirgefa
spítalann í stórum hópum, eins og lítur nú út fyrir, má gera ráð fyrir að það muni taka
mörg ár að koma honum í gott horf aftur þó að stjórnvöld breyti forgangsröðun sinni og
leggi til marga milljarða í haust. Uppsagnir hafa margföldunaráhrif því enginn vill verða
fyrir því álagi sem skapast þegar hann er einn eftir á vinnustaðnum. Þá er traustið milli
stjórnar spítalans og starfsmanna hrunið og það tekur mörg ár að byggja það upp aftur.
Stjórnvöldum finnst eflaust hjúkrunarfræðingar vera óþægir og óþakklátir. Ef skoðuð
er saga hjúkrunar á Íslandi má sjá að hjúkrunarfræðingar hafa verið til skiptis bæði
mjög þægir og mjög óþægir. Oft hafa þeir verið til friðs og látið nægja að sinna
sjúklingum sínum þrátt fyrir erfið skilyrði en þeir hafa líka farið í verkfall og gengið út úr
heildarsamtökum launþega. Það er staðreynd að ef mönnum finnst vera komið illa fram
við þá verða þeir gjarnan óþægir og uppreisnargjarnir.
Nú blasir við að Landspítali verður óstarfhæfur í vor og í sumar ef ekkert verður að
gert. Hvert eiga sjúklingar að fara? Hingað til hefur lítið heyrst frá sjúklingasamtökum
og líklega trúir því enginn að þetta fari svona langt. Það er von mín að þessi pistill sé
orðinn úreltur þegar þetta tölublað kemur úr prentsmiðjunni en ég er mjög áhyggjufullur.
Í október sl. var undirritað samkomulag milli velferðarráðuneytisins og fjármála- og
efnahagsráðuneytisins annars vegar og nokkurra stéttarfélaga og heildarsamtaka hins
vegar um samstarfs- og samráðsvettvang um launajafnrétti kynjanna. FÍH var fyrst
boðið að taka þátt en svo var það dregið til baka á hæpnum forsendum. Skipað var svo
í aðgerðahóp 20. desember sl. þannig að hann hefur væntanlega lítið gert hingað til.
Það er dálítið fyndið að eini starfshópurinn, sem ríkisstjórnin hefur hingað til
boðið einhverja leiðréttingu á kynjabundnum launamismun, komi úr stéttinni sem
velferðarráðuneytið útilokaði frá samkomulaginu. FÍH hefur reyndar lagt sig fram um
að þoka þessu máli áfram. Á sama tíma og menn veltu fyrir sér hverjir ættu að taka
sæti í aðgerðarhópi um launajafnrétti gengu fulltrúar FÍH á fund velferðarráðherra,
embættismanna fjármálaráðuneytisins og flestra þingflokka Alþingis og lögðu fram
tölfræði um launamismun innan ríkisins.
Málið er nú komið rækilega á dagskrá í samfélagsumræðunni og verður áhugavert að
fylgjast með framvindunni. 2019 verður hjúkrunarfélagið 100 ára. Skyldi þá loksins vera
hægt að segja að baráttunni fyrir launajafnrétti kynjanna sé lokið?
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Christer Magnusson
Ritstjórnarfulltrúi
Sunna K. Símonardóttir
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu- og fræðigreina er
að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Árún K. Sigurðardóttir
Ásta Thoroddsen
Brynja Örlygsdóttir
Dóróthea Bergs
Kolbrún Albertsdóttir
Oddný S. Gunnarsdóttir
Þorsteinn Jónsson
Fréttaefni:
Aðalbjörg Finnbogadóttir,
Christer Magnusson o.fl.
Ljósmyndir:
Anna Gyða Gunnlaugsdóttir,
Christer Magnusson o.fl.
Próförk og yfirlestur:
Ragnar Hauksson
Auglýsingar:
Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855
Hönnun:
Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4000 eintök
Pökkun og dreifing: Póstdreifing
LANDSPÍTALI Í ORRAHRÍÐ
Undanfarið hafa æ fleiri starfsmenn
Landspítalans lýst því yfir að ekki
verði við unað að vinna þar lengur.
Þetta er mjög alvarleg staða sem
stjórnvöld verða að takast á við af
krafti.
Christer Magnusson.
Ritstjóraspjall