Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Blaðsíða 51
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 89. árg. 2013 47
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
o.fl., 2004). Kvíði í tengslum = (ýkt + óttablandin) – (traust +
losaraleg) og hliðrun í tengslum = (losaraleg + óttablandin) –
(traust + ýkt) (Sibley og Liu, 2006).
Gæði í samböndum (perceived relationship quality component
inventory). Þessi spurningalisti kannar gæði í rómantískum
samböndum (Fletcher o.fl., 2000). Rómantískt samband
einkennist af ástúðlegum tengslum milli maka eða þeirra sem
eru í traustu ástarsambandi og inniheldur flókið félagslegt og
tilfinningalegt ferli (Hazan og Shaver, 1987). Spurningalistinn
inniheldur sex spurningar sem skoða ánægju, skuldbindingu,
nánd, traust, ástríðu og ást. Þátttakendur merkja við á sjö
gilda Likert-kvarða sem nær frá 1 (alls ekki ánægð(ur)) til 7
(ákaflega ánægð(ur)). Dæmi um spurningu: „Hversu ánægð(ur)
ertu í sambandinu?“ Því fleiri stig sem þátttakandi fær því
meiri gæði telur hann að séu í sambandinu. Notaður var allur
kvarðinn í þessari rannsókn. Kannaður var innri áreiðanleiki
spurningalistans með Chronbach-alfa og var hann α=0,84,
sem samræmist öðrum rannsóknum (α=0,85–0,88) (Fletcher
o.fl., 2000).
Rannsóknarleyfi
Áður en gagnasöfnun hófst lá fyrir leyfi frá Vísindasiðanefnd
(VSNb2004020040/03-1) fyrir rannsókninni auk þess sem
rannsóknin var tilkynnt til Persónuverndar (S1872). Jafnframt
var aflað skriflegs leyfis frá deildarforsetum þeirra deilda í
Háskóla Íslands þar sem gögnum var safnað. Rannsóknin var
kynnt fyrir þátttakendum áður en könnunin var lögð fyrir og
fengu þeir afhent kynningarbréf um tilgang rannsóknarinnar og
rétt þeirra áður en hún var lögð fyrir á skólatíma.
Framkvæmd
Spurningalistarnir voru lagðir fyrir nemendur í lok kennslu-
stundar. Rannsóknin var kynnt fyrir þeim og fengu þátttakendur
í hendur kynningarbréf um rannsóknina og rétt sinn. Það tók
nemendur um 30 mínútur að svara spurningalistunum. Að
lokinni þátttöku fengu þeir blað með nánari upplýsingum um
rannsóknina frá ábyrgðarmanni alþjóðlegu rannsóknarinnar,
David P. Schmitt.
Gagnagreining
Gögnin voru skráð og greind með aðstoð tölfræðiforritsins SPSS
(14. útgáfu). Kannaður var innri áreiðanleiki þriggja spurningalista
með Chronbach-alfa. Stuðst var við fylgniútreikninga Pearson
við skoðun á hugsmíðarréttmæti líkansins og við gagnagreiningu
meginbreyta rannsóknarinnar (tengslagerðir, tengslavíddir,
sjálfsvirðing og gæði í rómantískum samböndum). Miðað er
við miðlungssterka fylgni þegar hún er á bilinu 0,30-0,60 (Levin
og Fox, 2003). Miðað var við marktæknimörk p<0,05. Kannað
var hugsmíðaréttmæti líkansins af sjálfinu og líkansins af öðrum
sem leitt er af tengslakvarðanum. Tilgangurinn var sá að fá
úr því skorið hvort spurningalistinn kannaði það sem honum
var ætlað að kanna en það var gert með því að skoða tengsl
skyldra eða svipaðra hugtaka en einnig með því að skoða
tengsl andstæðra hugtaka. Í þessu sambandi var kannað hvort
líkanið af sjálfinu tengdist sjálfsvirðingarkvarðanum og leiddu
niðurstöður í ljós marktæka jákvæða fylgni, p<0,001. Einnig var
kannað hvort líkanið af öðrum tengdist vingjarnleikakvarðanum
og kom þar í ljós marktæk jákvæð fylgni, p<0,005. Í sambandi
við gæði í rómantískum samböndum var annars vegar
notað heildarhugtakið gæði, sem er breyta búin til úr sex
gæðaþáttum, og hins vegar voru skoðaðir einstakir þættir
gæða, þ.e. ánægja, skuldbinding, nánd, traust, ástríða og ást.
NIÐURSTÖÐUR
Í rannsókninni tóku 423 háskólastúdentar þátt, þar af voru 287
konur (67,9%) og 136 karlar (32,1%). Þetta er svipað kynjahlutfall
og var meðal þeirra 7749 nemenda sem stunduðu nám í
grunnnámi við Háskóla Íslands á vorönn 2005 þegar gögnunum
var safnað, það er 63,0% konur og 37,0% karlar. Stærð
úrtaksins í þessari rannsókn er því um 5,5% af heildarfjölda
nemenda í grunnnámi Háskóla Íslands á þessum tíma. Aldur
þátttakenda var á bilinu 19-36 ár og var meðalaldur þeirra 22,8
ár (SD=2,7). Meðalaldur kvenna var 22,9 ár en karla 22,6 ár.
Niðurstöður um hugsmíðarréttmæti sýndu að það var í
flestum tilfellum gott því marktæk miðlungssterk jákvæð
fylgni var á milli líkansins af sjálfinu og sjálfsvirðingarkvarðans
og marktæk veik jákvæð fylgni var á milli líkansins af öðrum
og vingjarnleikakvarðans. Einnig var marktæk miðlungssterk
neikvæð fylgni milli andstæðra tengslagerða. Þessar niðurstöður
eru í samræmi við það sem gert er ráð fyrir út frá líkani
Bartholomew um tengsl (Schmitt o.fl., 2004). Niðurstöðurnar
gefa því vísbendingar um að tengslakvarðinn gefi rétta mynd
af því sem hann á að skoða.
Þegar skoðað var samband traustrar tengslagerðar við sjálfs-
virðingu reyndist ekki vera marktækt samband milli þeirra en hins
vegar kom fram marktæk neikvæð fylgni á milli þeirra sem voru
með óttablandna (r=-0,18) eða ýkta tengslagerð (r=-0,18) ásamt
kvíða í tengslum (r=-0,22) við sjálfsvirðingu (tafla 3). Einnig var
skoðað (ekki sýnt í töflu) hvort samband væri á milli sjálfsvirðingar
og heildargæða í rómantískum samböndum og kom í ljós
að marktæk jákvæð fylgni var á milli þessara þátta (r=0,16).
Þegar athugað var samband tengslagerða og tengslavídda við
heildargæði í rómantískum samböndum og einstaka þætti þeirra
þá kom í ljós jákvæð fylgni (r=0,17) á milli einstaklinga með
trausta tengslagerð og heildargæða í rómantískum samböndum.
Þegar þetta var skoðað nánar út frá einstökum þáttum gæða
reyndist vera marktækt samband við tvö atriði, ánægju (r=0,15)
og ástríðu (r=0,25). Við skoðun á öðrum tengslagerðum kom
í ljós að aðeins þeir sem höfðu óttablandna tengslagerð voru
með marktækt neikvætt samband (r=-0,32) við heildargæði í
rómantískum samböndum og við nánari athugun voru það allir
gæðaþættirnir sex sem komu fram með marktæka neikvæða
fylgni (r=-0,17 til -0,29). Einstaklingar með kvíða (r=-0,23)
og hliðrun (r=-0,24) í tengslum voru einnig með marktæka
neikvæða fylgni við heildargæði. Við frekari athugun kom í
ljós að þeir sem sögðust vera með kvíða í tengslum höfðu
marktækt neikvætt samband við alla sex gæðaþættina (r=-0,13
til -0,25) nema skuldbindingu. Þeir sem síðan sögðust vera með
hliðrun í tengslum höfðu marktækt neikvætt samband við alla
gæðaþættina (r=-0,15 til -0,26) nema traust.