Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Blaðsíða 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Blaðsíða 42
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 89. árg. 201338 ef túlkaðar sem hópuppsagnir, væru ólöglegar og brot á kjarasamningi. Búið var að skrifa undir samning í júní 2011 og því ríkti friðarskylda við endurskoðun stofnanasamnings. Svo fór að í lok nóvember 2012 sögðu 260 hjúkrunarfræðingar upp störfum og í lok desember bættust 20 við. Þetta eru um 20% af hjúkrunarfræðingunum á Landspítala. Að óbreyttu munu því flestir þeirra sem sagt hafa upp hætta störfum 28. febrúar. Ljóst var að upp var komin mjög alvarleg staða. Samkvæmt lögum getur heilbrigðisstofnun, þegar mikið liggur við, ákveðið einhliða að framlengja uppsagnarfrestinn um þrjá mánuði. Landspítali ákvað hins vegar að nýta sér ekki þennan möguleika. Launajafnrétti rætt Fulltrúar FÍH áttu í nóvember sl. fundi með fjármála- og efnahagsráðherra, velferðar- ráðherra og þingflokkum Framsóknar- flokksins, Hreyfingarinnar, Sam fylkingar- innar og Sjálfstæðis flokksins. Þingflokkur Vinstri grænna svaraði ekki óskum FÍH um fund. Tilgangur fundanna var að veita upplýsingar um kjör hjúkrunarfræðinga og fá skilning stjórnvalda á nauðsyn þess að fé verði veitt til stofnanasamninga. Á fundunum kynntu fulltrúar FÍH samanburð á þróun launa hjúkrunarfræðinga og viðmiðunarstétta frá hruni, með sérstakri áherslu á ráðuneytabundinn og kynjabundinn launamun. Í minnisblaði til velferðarráðherra, sem kynnt var á þessum fundum, kom meðal annars fram að dagvinnulaun hjúkrunar- fræðinga höfðu hækkað að meðaltali um tæp 22% 2007-2011. Á sama tíma hækkuðu meðalheildarlaun hins vegar aðeins um 13%. Til samanburðar hækkuðu meðalheildarlaun viðskipta- og hagfræðinga hjá ríkinu um 20% á sama tíma og meðalheildarlaun starfsmanna stjórnarráðsins hækkuðu um 21%. Þrátt fyrir að vera dagvinnustétt fá viðskipta- og hagfræðingar svipað hlutfall af heildarlaunum sínum fyrir annað en dagvinnu og vaktavinnustéttin hjúkrunarfræðingar. Lögreglumenn, sem vinna vaktavinnu á svipaðan hátt og hjúkrunarfræðingar, fá nærri tvöfalt meira greitt fyrir yfirvinnu en hjúkrunarfræðingar og að meðaltali nærri sex sinnum meiri „önnur laun“ en hjúkrunarfræðingar. Fram kom einnig að um helmingur starfandi hjúkrunarfræðinga hefur formlega viðbótarmenntun en sáralítil launahækkun fæst fyrir aukna menntun. Athygli vekur að fram til ársins 2020 munu um 950 hjúkrunarfræðingar fara á lífeyri en í besta falli einungis 900 hjúkrunarfræðingar koma til starfa. Mannekla í hjúkrun er því handan við hornið. Í kjölfarið voru laun hjúkrunarfræðinga og uppsagnir á Landspítala ræddar á Alþingi og velferðarráðherra krafinn svara. 22. janúar sl. ákvað ríkísstjórnin að leggja Hátt í 600 hjúkrunarfræðingar komu saman 4. febrúar sl. til þess að taka afstöðu til samningstilboðs Landspítalans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.