Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Page 43
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 89. árg. 2013 39
Landspítala til fé í svokallað jafnlaunaátak. Á
sama tíma viðurkenndi ríkisstjórnin að talsverður
launamunur væri milli ráðuneyta.
Samningstilboðið
Fram kom í fréttum að stjórnvöld voru tilbúin
til að veita 370 milljónum króna í endurskoðun
stofnanasamnings hjúkrunar f ræðinga á
Landspítala. Ekki myndi þó allt fara í laun
því launatengd gjöld eru um 25%. Eftir yrðu
tæplega 300 milljónir að skipta milli þeirra
um 1.350 hjúkrunar fræðinga sem starfa nú á
Landspítala.
Að kvöldi 4. febrúar sóttu nærri 600 hjúkrunar-
fræðingar fund þar sem fjallað var um tilboð
um endurskoðun stofnanasamnings á LSH.
Tilboðið var nokkuð flókið og með mörgum
skilyrðum um vinnuframlag en fól í sér
meðaltalshækkun um 18.200 krónur á mánuði.
Það samsvarar í grófum dráttum einum
launaflokki. Líta mátti á tilboð Landspítalans
sem úrslitakosti. Um frekari fjárveitingar væri
ekki að ræða og ef tilboðinu yrði hafnað myndi
Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga stóð í nóvember sl. fyrir
námskeiði um taugasjúkdóma. Undirbúningur fyrir námskeiðið
„Hjúkrun og meðferð taugasjúklinga“, með Lundbeck sem
styrktaraðila, hafði þá staðið yfir um nokkurt skeið. Hópurinn
var stórhuga í byrjun og ætlaði að fara akandi með eigin
rútu norður í land og halda námskeið bæði á Akureyri og
Egilsstöðum. Leggja átti af stað til Akureyrar 2. nóvember sl.
en þar sem veðrið var í verra lagi þann dag var ferðinni frestað
til 23. nóvember. Þá hélt fríður flokkur af stað fljúgandi með
fyrstu vél að morgni.
Þátttakendur á námskeiðinu voru um 30 manns og var
námskeiðið þeim að kostnaðarlausu. Í boði var 4 klukkustunda
námskeið um helstu taugasjúkdóma, að þekkja einkenni frá
taugakerfi, notkun viðeigandi gátlista og meðferð. Fyrirlesarar
voru sex hjúkrunarfræðingar og einn taugalæknir.
Námskeiðið tókst vel og þótti ná vel yfir hjúkrun sjúklinga
með hina mismunandi taugasjúkdóma, heilaslag,
innanskúmsblæðingu, MND og Parkinsonsveiki. Einnig var
fjallað um lyfjameðferð og um næringarvandamál þessara
skjólstæðinga. Þátttakendur sýndu efninu mikinn áhuga
og ljóst þykir að þörf er fyrir námskeið af þessu tagi til
að samræma meðferð og hvetja menn til að nota gátlista.
Markmið fagdeildarinnar með ferðinni voru að efla samvinnu
á milli hjúkrunarfræðinga, koma nýrri þekkingu á framfæri og
kynna fagdeildina. Þetta þótti takast og því er á stefnuskrá
fagdeildarinnar að halda „Taugarútunni“ gangandi og stefna
að fleiri ferðum um landið – það er að segja ef veður leyfir.
Fr
ét
ta
pu
nk
tu
r
Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga
fyllir tankinn á „Taugarútunni“