Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Side 30
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 201126
Þessi bók er samsafn nokkurra rannsókna
sem beinast að áhrifum ofbeldis á konur
þótt það komi reyndar því miður ekki fram
í titlinum á bókinni. Í fyrsta kafla fjallar Erla
Kolbrún Svavarsdóttir um „Áhrif ofbeldis
á heilsufar kvenna“ og í öðrum kafla um
„Áhrif margþætts og langvinns ofbeldis á
andlega líðan kvenna“. Þetta eru rýrustu
kaflar bókarinnar og hefði hugsanlega
verið betra að reyna að sameina þessa
tvo kafla. Fyrri rannsóknin byggist meðal
annars á spurningalistakönnun þar sem
aðeins 35% tóku þátt en lítið er gert
úr þeirri takmörkun og ekki nægilegrar
varkárni gætt í ályktunum með tilliti
til þessarar alvarlegu takmörkunar.
Til dæmis skrifar Erla Kolbrún um
meginniðurstöðu rannsóknarinnar: „Þótt
ofbeldi gegn konum sé að finna í öllum
þjóðfélagsstéttum virðist hlutfallslega
algengara að einstæðar/fráskildar konur
og konur með stutta skólagöngu að baki
upplifi ofbeldi en konur í hjónabandi/
sambúð eða með háskólamenntun“ (bls.
32). Þessi ályktun er dregin út frá 35%
svarhlutfalli. Að auki kemur fram í kafla
Sigríðar Síu Jónsdóttur síðar í bókinni að
rannsókn McFarlane o.fl. (1991) bendi
eindregið til þess að það hafi takmarkaða
þýðingu að spyrja konur um reynslu af
heimilisofbeldi með spurningalista. Í þeirri
rannsókn (477 tóku þátt í rannsókninni)
svöruðu um 7% kvennanna játandi með
spurningalista að þær hefðu verið beittar
ofbeldi en 29% sömu kvenna svöruðu
því játandi í persónulegu samtali við
hjúkrunarfræðing. Erla Kolbrún fjallar
ekki um notkun spurningalista sem
takmarkandi þátt.
Kafli þrjú er skrifaður af Kolbrúnu
Kristiansen og er um „Þolendur ofbeldis
sem leita til slysa og bráðadeildar
Landspítalans“. Vel er að rannsókninni
staðið aðferðafræðilega og vel er sagt
frá henni. Fram kemur að tekið var
viðtal við allar konurnar sem tóku þátt í
rannsókninni. Samkvæmt niðurstöðum
Kolbrúnar sagðist helmingur kvennanna,
sem tók þátt (af um hundrað konum
sem tóku þátt í rannsókninni), hafa verið
beittur ofbeldi einhvern tíma á lífsleiðinni,
um 19% skýrðu frá líkamlegu ofbeldi
síðustu 12 mánuði og 29% höfðu verið
beittar andlegu ofbeldi af maka stundum
eða oft og um 22% höfðu verið beittar
andlegu ofbeldi síðastliðna 12 mánuði,
flestar margsinnis.
Fjórði kaflinn er skrifaður af Sigríði Síu
Jónsdóttur og er um „Líðan barnshafandi
kvenna og reynslu þeirra af ofbeldi“.
Ofbeldi – margbreytileg birtingarmynd.
Höfundur: Erla Kolbrún Svavarsdóttir
(ritstj.). Útgefandi: Háskólaútgáfan,
Reykjavík, 2010. ISBN: 978997954
8942. Bókin er 185 bls.
Kaflinn er geysigóður og skrifaður af
greinilegri umhyggju og næmi fyrir
þolendum ofbeldis. Vel var staðið að
rann sókninni aðferðafræðilega, meðal
annars var tekið hálfstaðlað viðtal við
hverja konu sem tók þátt í rannsókninni.
Fram kemur að um 39% kvennanna (af
107 konum) höfðu einhvern tíma hlotið
áverka, verið meiddar eða haft hafði
verið í hótunum við þær og um 22%
sögðu að samband við maka einkenndist
af einhverri eða mikilli spennu. Sigríður
Sía ítrekar að af niðurstöðum könnunar
sinnar megi ljóst vera að mikilvægt sé fyrir
ljósmæður að spyrja konur kerfisbundið
um reynslu þeirra af ofbeldi á meðgöngu
og vera sérstaklega vakandi gagnvart
þeim konum sem hafa verið þolendur
ofbeldis og þeim sem segja heilsu sína
vera sæmilega eða slæma.
Í fimmta og síðasta kaflanum fjallar Brynja
Örlygsdóttir um „Ofbeldi gegn konum
með líkamlega fötlun“. Þetta er afar
mikilvægt og vanrækt rannsóknarefni
en Brynja gerir sömu mistök og Erla
Kolbrún og notar spurningalista þótt
vitað sé hversu takmarkandi þáttur
það er. Spurningalistarnir voru sendir
til tveggja hópa, í öðrum hópnum var
um 74% svörun (26 konur) en í hinum
um 26% (9 konur). Brynja tekur fram
hversu takmarkandi þáttur það sé að
nota spurningalista til að rannsaka
heimilisofbeldi. Samt segir Brynja í
lokaorðum: „Þó svo að engin kvennanna
hafi greint frá reynslu af kynferðislegu eða
fötlunar og umönnunartengdu ofbeldi,
er ofbeldi engu að síður staðreynd meðal
þessa hóps“ (bls. 133) en ein sagðist hafa
verið beitt líkamlegu ofbeldi á síðastliðnu
ári. Um það segir Brynja í lokaorðum:
„Rannsóknin sem hér hefur verið kynnt
BÓKARKYNNING
Sigríður Halldórsdóttir, sigridur@unak.is
MARGBREYTILEG BIRTINGARMYND OFBELDIS