Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2011, Page 47
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 87. árg. 2011 43
TÓLF VERKEFNI FENGU STYRK
ÚR VÍSINDASJÓÐI
Styrkir úr Bhluti vísindasjóðs Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga voru
afhentir styrkþegum í gær á alþjóða degi
hjúkrunarfræðinga 12. maí. Sjóðurinn
styrkir 12 rann sóknar verkefni í ár um
samtals tæpar 6 milljónir króna.
Að þessu sinni bárust 23 umsóknir um styrk úr sjóðnum. Eru
það helmingi færri umsóknir en undanfarin ár. Úthlutunarfé
sjóðsins hefur minnkað umtalsvert frá 2008 þar sem
vaxtatekjurnar hafa dregist verulega saman undanfarin ár.
Tekjur Bhluta sjóðsins eru 3% af tekjum vísindasjóðs Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga og vaxtatekjur hans.
Sjóðurinn styrkti 4 vísindarannsóknir, 5 meistara rannsóknir og
3 doktors rannsóknir. Helmingur styrk þega mætti á skrifstofu
félagsins til þess að taka við styrknum 12. maí sl. Stjórn
vísindasjóðs bauð í hádegismat og sagt var stuttlega frá
verkefnunum.
Rannsóknarverkefnin snerta mörg svið hjúkrunar fræðinnar
eins og sést í meðfylgjandi töflu.
Glatt á hjalla hjá styrkþegum. Fremst sitja Auðna Ágústsdóttir, formaður
vísindasjóðs, og Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala.
Frá vinstri sitja Brynja Ingadóttir, Berglind G. Chu, Stefanía B. Arnardóttir, Sólrún
Rúnarsdóttir, Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður FÍH, Ingibjörg Ásgeirsdóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur við heilsugæslustöðina Fjörð í Hafnarfirði, Aðalbjörg
Finnbogadóttir, starfsmaður vísindasjóðs, og Erla Kolbrún Svavarsdóttir.
Nafn Verkefni
Árún K. Sigurðardóttir Eflandi fræðsla til liðskiptasjúklinga: Mat og alþjóðlegur samanburður (EEPO 20092012).
Berglind G. Chu
Rannsókn á áhrifum Tea tree ilmkjarnaolíu á húðnetjubólgu fótleggs hjá fullorðnum einstaklingum sem
hafa húðnetjubólgu í flokki II samkvæmt flokkunarkerfi Eron/Dall.
Brynja Ingadóttir Sjúklingafræðsla sem leið til eflingar: Væntingar og reynsla hnéliðskiptasjúklinga á þremur Norðurlöndum.
Brynja Ingadóttir Eflandi fræðsla til bæklunarsjúklinga: Mat og alþjóðlegur samanburður.
Erla Kolbrún Svavarsdóttir Hvernig ná heilbrigðisstarfsmenn best til kvenna sem eru þolendur ofbeldis í nánum samböndum.
Gunnhildur Gunnlaugsdóttir Eflandi fræðsla til liðskiptasjúklinga: Samanburður á væntingum til fræðslu og fenginnar fræðslu.
Helga Atladóttir Aldraðir með einkenni heilabilunar á hjúkrunardeildum á Íslandi: Heilsufar og færni íbúa og gæði hjúkrunar.
Kristín Þórarinsdóttir Notagildi og þróun sjálfsmats í endurhæfingu.
Rannveig Björk Gylfadóttir
„Að takast á við lífið eftir krabbamein“: Fýsileiki ráðgjafameðferðar sem byggist á hugrænni atferlismeðferð
fyrir fólk með krabbameinstengda þreytu að lokinni meðferð.
Sólrún Rúnarsdóttir Virðisaukandi vinna hjúkrunarfræðinga á bráðasviði.
Stefanía B. Arnardóttir Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins: Geðheilsuvernd á meðgöngu og eftir fæðingu.
Þorbjörg Jónsdóttir Langvinnir verkir, notkun á heilbrigðisþjónustu og heilsutengd lífsgæði.