Skólavarðan - 01.11.2010, Qupperneq 4
4
Skólavarðan 5. tbl. 2010
Hvernig leggst í þig að taka við formennsku í þessu árferði?
Það leggst vel í mig að taka við formennsku SÍ. Tími og árferði eru
þættir sem skipta ekki meginmáli að mínu áliti heldur þau verkefni sem
maður er að fást við hverju sinni. Núna eru næg verkefni og það verður
áhugavert að takast á við þau.
Hvað hvílir helst á þínum félagsmönnum um þessar mundir?
Fyrir utan faglega uppbyggingu skólastarfsins, daglegan rekstur
og nemenda- og starfsmannamál þá stöndum við enn og aftur
frammi fyrir niðurskurði fjármagns til skóla. Verið er að vinna að
gerð fjárhagsáætlana í öllum sveitarfélögum landsins. Skólastjórar
koma mismikið að þeirri áætlanagerð en framundan er erfi tt ár
með töluverðum niðurskurði sem hefur mjög líklega í för með sér
skerðingu á grunnþjónustu skólanna og uppsagnir starfsmanna.
Þá eru sveitarfélög einnig að ræða um samrekstur leik-, grunn- og
tónlistarskóla og frístundaheimila eða sameiningu tveggja eða fl eiri
grunnskóla í eina starfsstöð. Því skapast órói og óvissa, bæði hjá
stjórnendum og starfsmönnum, um hvernig hægt verði að vinna af
metnaði að faglegu og uppbyggjandi skólastarfi .
Hvað vilt þú leggja áherslu á í þinni formennskutíð?
Vinnu- og starfsumhverfi skólastjórnenda. Huga þarf sérstaklega að
vinnuvernd og vinnuumhverfi þeirra í þeim verkefnum sem fram-
undan eru. Störf skólastjórnenda eru krefjandi og þeim fylgja oft álag
og togstreita þegar samþætta þarf óskir og þarfi r ólíkra hagsmunahópa.
Það er mikilvægt að stjórnandi einangrist ekki eða verði fyrir kulnun
í starfi þar sem hann þarf að vera bæði leiðtogi sem stýrir faglegri
skólaþróun sem og rekstrarstjórnandi yfi r afar fjölbreyttri stofnun.
Stjórn Skólastjórafélagsins og deildirnar úti um landið þurfa að virka
sem bakland fyrir skólastjórnendur og veita þeim nauðsynlegan stuðn-
ing og handleiðslu í fjölþættu starfi þeirra.
Hver telur þú að verði mest aðkallandi verkefni stjórnenda í
grunnskólum á næstu árum?
Ég tel að þau verði eftirfarandi: Fagleg innleiðing nýrrar aðalnám-
skrár. Aukin verkefni frá sveitarfélögum og menntamálaráðuneyti
hvað varðar meira eftirlit og mat á skólastarfi , skólanámskrár-,
starfsáætlunar-, fjárhags- og rekstraráætlanagerð. Starfsmannamál,
starfsþróun og símenntun. Nemendamál og mál er varða samskipti
við foreldra og aðra samfélagshópa.
Og loks niðurskurður eða ýmiss konar hagræðing jafnhliða fækkun
millistjórnenda og starfsfólks. Ef hugmyndir um stærri starfsstöðvar,
sameiningu grunnskóla, einn skólastjóra yfi r tveimur til þremur
skólum eða samrekstur leik-, grunn- og tónlistarskóla og frístunda-
heimila verða að veruleika þá er það stórt verkefni sem bætist við þau
sem fyrir eru.
Erfi tt ár framundan
segir nýr formaður Skólastjórafélags Íslands og mun leggja áherslu
á vinnuvernd og stuðning við félagsmenn í formennskutíð sinni.
Formaður: Svanhildur María Ólafsdóttir
Texti: keg
Mynd: Arnþór Birkisson
Formenn spurðir tíðindaspjÖRunum ÚR