Skólavarðan - 01.11.2010, Blaðsíða 11

Skólavarðan - 01.11.2010, Blaðsíða 11
11 Skólavarðan 5. tbl. 2010máLEfnI Í nóvembermánuði stóð KÍ fyrir tólf fræðslufundum víða um land fyrir skóla- stjórnendur undir yfirskriftinni Velferð í vinnunni. Sambandinu bárust mjög góðar umsagnir um fundina bréflega og símleiðis auk þess sem fólk lýsti yfir ánægju sinni á fundunum og á matsblöðum. Einnig var beðið um að efni fundanna yrði sett á vef KÍ. Það hefur nú verið gert og lesendur geta kynnt sér það á www.ki.is undir Vinnu- umhverfismál. Fundarefni var vinnuumhverfi, vinnuvernd, heilsuefling, veikindaréttur, rétt- indi í sjúkrasjóði og þjónusta Virk starfsendur- hæfingarsjóðs. Einnig var fjallað um forvarnir gegn fjarvistum og langtímaveikindum starfs- manna. KÍ hefur á undanförnum árum leitast við að auka starfsemi sína á sviði starfsumhverfis- mála og þjónustu í þágu einstakra félags- manna og vinnustaða þeirra. Á vegum KÍ starfa vinnuumhverfisnefnd, jafn réttisnefnd, siðaráð og Sjúkrasjóður. Ráðgjafi Virk starfs- endurhæfingarsjóðs bættist í hópinn fyrir ári síðan. Markviss umræða og fræðsla um rétt- indamál, starfsmannamál og vellíðan á vinnu- stöðum er mjög mikilvæg fyrir alla félags- menn og nauðsynlegt að efla þekkingu og færni skólastjórnenda til að vinna úr og leysa mál um kjör og réttindi starfsmanna. Fólkið sem sá um fræðslu á fundunum voru Hafdís Dögg Guðmundsdóttir, Ingibjörg Úlfarsdóttir, Kristín Stefánsdóttir, María Norðdahl, Margrét Gunnarsdóttir og Sesselja Guðrún Sigurðar- dóttir. Að sögn Hafdísar gengu fundirnir mjög vel. „Stjórnendur voru mjög áhugasamir og spurðu og ræddu mikið um til dæmis vinnu- vernd, veikindarétt og fjarvistir,“ segir Hafdís. „Það komu margir góðir punktar frá þeim sjálfum en áberandi var hversu mikil áhrif niðurskurður hefur haft á skólastarf. Nefndar voru margvíslegar afleiðingar, svo sem hvað varðar aðstöðu og fagleg störf, undirbúning og fleira. Einnig virðast sveitarfélögin hafa skorið niður ýmislegt jákvætt sem starfsfólk skóla gat nýtt sér, til dæmis voru nefndir líkamsræktar- styrkir og frír aðgangur að íþróttaaðstöðu og sundi.“ Frá þátttakanda á meðan á fundunum stóð: „Ég, ásamt fleiri skólastjórnendum á Suður- nesjum, sótti þennan fund í gær og mæli ein- dregið með því að stjórnendur mæti á þessa fundi KÍ. Þeir eru mjög gagnlegir og góðir!“ Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, skólastjóri Grunnskólans í Sandgerði. Vinnuumhverfisbólan Útdráttur úr síðustu bólu vinnuumhverfis- nefndar KÍ. Hún er í heild á www.ki.is Vissir þú að léleg stjórnun, lélegt vinnuskipu- lag og of mikið álag getur ýtt undir einelti og/ eða áreitni á vinnustað? Ýmsir þættir ýta undir að einelti/áreitni komi upp eða fái að þrífast eins og nefnt var í síðustu bólu (sjá á www.ki.is) um lélega stjórnun, til dæmis valdhroki, að illa sé staðið að breytingum, óraunsæ markmið eða tímaáætlanir og skortur á viðbrögðum og lausnum á vandamálum sem upp koma. Þættir í vinnuskipulagi geta einnig leitt til þess að einelti/áreitni komi upp, svo sem Velferð í vinnunni Markviss umræða og fræðsla um réttindamál, starfsmannamál og vellíðan á vinnustöðum er mjög mikilvæg fyrir alla félagsmenn og nauðsynlegt að efla þekkingu og færni skólastjórnenda til að vinna úr og leysa mál er snerta kjör og réttindi starfsmanna. skert upplýsingaflæði, óljósar starfslýsingar, misvísandi kröfur, lítið sjálfræði, tímaþröng, fagleg/félagsleg einangrun og skortur á umburðarlyndi og/eða stuðningi. Of mikið vinnuálag, streita, samdráttur og uppsagnir, slæm samskipti og skortur á umburðarlyndi geta einnig ýtt undir einelti/áreitni. Skoðana- ágreiningur, hagsmunaárekstur eða sam- skiptavandi eru ekki endilega einelti/áreitni en geta verið fyrstu vísbendingar um að það geti komið upp. Ef slíkur vandi er fyrir hendi er mikilvægt að taka á honum strax og snúa þróuninni við áður en hann verður enn alvarlegri. Ef þolandi telur sig knúinn til að yfirgefa vinnustað eða er látinn fara verður bata- ferli hans enn lengra og afleiðingar geta orðið þeim mun víðtækari og langvarandi. Einnig er óvíst að vandinn á vinnustaðnum sé leystur til frambúðar þar sem ekki er í raun og veru tekið á orsökum eineltisins/ áreitninnar. Auk þess er gerandinn ef til vill enn á vinnustaðnum og telur jafnvel að athafnir sínar hafi verið réttlættar með því að þolandinn fór.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.