Skólavarðan - 01.11.2010, Blaðsíða 29
29
Skólavarðan 5. tbl. 2010
„Þetta ofbeldi varði þar til mér var ofboðið þannig að ég varð að
leita læknis og var síðan frá kennslu meðan ég var að ná heilsu á
ný. Það þarf ansi mikið til að kennurum ofbjóði. Þeir eru flestir með
langlundar-geð, annars væru þeir ekki í þessu starfi,“ segir kennari
sem varð fyrir ofbeldi af hálfu ungs grunnskólanema. Kennarinn
segir ofbeldið kannski ekki hafa getað kallast líkamlegt en allt að því.
Viðkomandi nemandi hafi oftar en ekki slegið til sín og haft í frammi
alls konar ögranir án þess þó að líkamleg meiðsl hlytust af. „Þetta var
búið að ganga nokkuð lengi og ég hafði tilkynnt skólastjórnendum
um málið en svarið frá þeim var að sveitarfélagið hefði ekki peninga
til að kosta stuðning við þennan nemanda og þar við sat. Ég veit
að stjórnendur leituðu ítrekað til sveitarfélagsins og þeim var mjög
brugðið þegar í ljós kom hvaða afleiðingar þetta hafði á heilsufar mitt
og sýndu mér skilning.“
Læknirinn hissa - hvað er að gerast hjá kennurum?
Andlega álagið á kennarann sem fylgdi þessu hafði mjög alvarleg áhrif.
„Ég var úrvinda eftir hvern einasta skóladag. Ég átti enga orku eftir,
svaf í um tvo tíma þegar ég kom heim úr vinnunni og gerði ekkert
heima. Blóðþrýstingurinn hækkaði, ég var með bjúg og það skrítnasta
var að ég tapaði minni svo að um munaði þannig að skammtímaminni
mitt var ekki neitt. Ég gleymdi ótrúlegustu hlutum sem á ekki að vera
hægt að gleyma, ég hreinlega mundi ekki einföldustu hluti. Auðvitað
bitnaði þetta á vinnunni hjá mér og þeim nemendum sem ég var að
vinna með. Þegar svona var orðið ástatt hjá mér leitaði ég til læknis.
Hann sagði mér að taka mér frí frá kennslu til að jafna mig á þessu ef
ekki ætti að fara illa. Þetta væri alvarleg aðvörun. Reyndar spurði
læknirinn mig þegar ég kom til hans hvað væri að gerast í kennara-
stéttinni því dæmi þessu lík væru í sífellu að koma upp. Mér leið
alveg ömurlega þarna. Þegar maður getur ekki lengur sinnt starfinu
sem maður vill og á að sinna þá líður manni ömurlega. Auk þess getur
Ofbeldi nemenda í
garð kennara Reynslusaga kennara
Texti: Haraldur Bjarnason
Myndir: js
Hann sagði mér að taka mér
frí frá kennslu til að jafna mig
á þessu ef ekki ætti að fara illa.
Þetta væri alvarleg aðvörun.
fóLkIÐ