Skólavarðan - 01.11.2010, Page 35
35
Skólavarðan 5.tbl. 2010
kennsla, heimabyggðarkennsla, safnkennsla, heimanám, námsefnis-
gerð, aga- og bekkjarstjórnun, að koma betur til móts við ákveðna
hópa nemenda (t.d. drengi, bráðgera nemendur, getulitla nemendur)
og samfella milli skólastiga. Þá höfðu margir áhuga á bæta við sig
í upplýsingatækni, svo sem með því að læra gerð námsvefja og fá
þjálfun í notkun raftöflu (Smartboard), en nokkrar slíkar eru til í
skólanum. Margir kennarar töluðu um áhuga á heimsóknum í aðra
skóla þar sem kennarar hefðu verið að fást við eftirtektarverð verk-
efni og læra af reynslu þeirra.
Mjög fjölbreytt verkefni
Í skólabyrjun haustið 2009 var þráðurinn tekinn upp að nýju. Þá full-
mótuðu kennarar hugmyndir sínar og gerðu stjórnendum stutta grein
fyrir hvað þeir hygðust fást við á skólaárinu. Alls urðu verkefnin tutt-
ugu. Upphaflega var ekki gert ráð fyrir svo mörgum verkefnum en í
stað þess að kennarar ynnu almennt í hópum kusu nokkrir að vinna
einir eða tveir og tveir saman. Þrátt fyrir að það kallaði á aðeins meira
utanumhald og væri heldur þyngra í vöfum sáu stjórnendur ekki ástæðu
til annars en að kennarar réðu þessu sjálfir. Annað hefði ekki verið í
anda þeirrar hugmyndafræði sem lögð var til grundvallar.
Verkefnin sem farið var af stað með þetta haust voru fjölbreytt.
Kennarar ræddu saman og skipulögðu hugmyndavinnu frá grunni auk
þess sem þeir kynntu sér ýmislegt sem skrifað hafði verið um svipuð
viðfangsefni og fóru í skólaheimsóknir eða á námskeið. Afraksturinn
varð eftirfarandi:
1. „Moodle“-námsvefur: Þróun námsumhverfis í „Moodle“ með það
að markmiði að vinna að nýsköpun í skólastarfi og auka fjölbreytni
í kennsluháttum og aðgengi að upplýsingum.
2. Comeniusarverkefni: Samstarfsverkefni Valhúsaskóla og
nokkurra Austur-Evrópuþjóða í lífsleikni.
3. Early Steps, snemmtæk íhlutun í lestrarkennslu: Að útbúa
handbók með lýsingu á aðferðinni „Early Steps“, námsgögnum,
kennsluáætlun og athugunarlistum.
4. Fjölbreytt námsmat í náttúru- og samfélagsfræði: Markviss
notkun verkmöppu.
5. Handbók um framkvæmd hreyfiþroskaprófs: Efnið er ætlað
elstu börnum í leikskóla og fyrsta bekk grunnskóla.
6. Ítarefni í íslensku: Ítarefni á tölvutæku formi, annars vegar til
útprentunar fyrir nemendur eða til notkunar á raftöflu (Smartboard)
og hins vegar gagnvirk verkefni.
7. Kvikmyndir og tónlist: Gagnabanki fyrir nemendur í 3.-10. bekk.
8. Lesskilningur á miðstigi: Verkefni og ráðgjöf um lestrarfræðileg
og lestrartæknileg atriði.
9. Lestrarkennsla einhverfra nemenda á yngsta- og miðstigi:
Verkefnamöppur fyrir einhverfa nemendur á yngsta og miðstigi.
Möppurnar byggjast á tölvuforritunum Clicker og Boardmaker.
10. Matsbók í stærðfræði: Bókinni er ætlað að gera vinnusemi,
virkni og niðurstöður úr könnunum o.fl. sýnilegri.
11. Námsmat í stærðfræði á miðstigi: Fjölbreytt námsmat í
stærðfræði á miðstigi (greinandi námsmat, símat, kennaramat,
nemendamat o.s.frv).
12. Námsmat: Skipuleggja fjölbreytt og einstaklingsmiðað námsmat,
eða heildrænt námsmat.
13. Námsmatsbók í íslensku fyrir 4.-5. bekk: Áhersla á gegnsæi
námsmats og samstarf heimila og skóla.
14. Nesstofa og umhverfi: Námsefni um Nesstofu, eitt elsta
steinhús á Íslandi.
15. Raftafla: Fjölbreytt notkun raftöflu (Smartboard) í kennslu.
16. Ratleikir: Fjölbreytt gagnasafn með hugmyndum sem nýtast
mismunandi aldursstigum og með tengingu við aðrar námsgreinar.
17. Safnmappa í dönsku: Skipulag og hönnun safnmöppu.
Ætluð 7. bekk.
18. Safnveita fyrir list- og verkgreinar: Ætlað kennurum og
nemendum til að safna og nýta ýmislegt sem til fellur en hefði
annars verið hent.
19. Uppbyggingarstefnan: Haldið áfram vinnu við innleiðingu
og þróun.
fRæÐIn