Skólavarðan - 01.11.2013, Page 11
9SKóLaVarðaN 2. tbl 2013
kjaramálkjara ál
Sænska ríkisstjórnin hefur lagt fjár-
magn í nýtt framgangskerfi kennara í
grunn- og framhaldsskólum og öðrum
sambærilegum skólum. Þetta nýja
kerfi tók gildi 1. júlí síðastliðinn en út-
færsla þess á að vera fullbúin árið 2016.
Möguleikarnir sem það opnar kenn-
urum eru annars vegar lektorsstöður
og hins vegar stöður sem kallast fyrsti-
kennari (förstelärare). Framgangurinn
hefur í för með sér launahækkanir sem
nema um 5000 sænskum krónum á
mánuði, um það bil hundrað þúsund
íslenskum krónum.
Lärarnas Riksförbund kynnti hug-
myndina að framgangskerfinu árið
2011 og síðan þá hefur verið unnið að
útfærslu þess. Hugmynd LR var sú að
kennari sem sækir um að fá viðurkenn-
ingu sem fyrstikennari þurfi, auk þess
að vera með full kennsluréttindi, að
hafa á sinni hendi verkefni eins og
fagstjórn, vettvangsnám kennara-
nema og leiðsögn nýrra kennara auk
hefðbundinnar kennslu. Sá sem sækir
um að fá lektorsstöðu skal hafa full
kennsluréttindi, doktorsgráðu og fasta
stöðu við skóla . Einnig á hann að hafa
umsjón með rannsóknum í skólanum
eða á vegum hans. Þessar hugmyndir
LR urðu grundvöllurinn að framgangs-
kerfinu.
Það verður hlutverk skólastjórnenda
að meta kennara til framgangs. Fjár-
magnið sem ríkisstjórnin leggur fram
nú í upphafi eru 880 milljónir skr. (um
16 milljarðar íslenskra króna) á ári og
nægir það til að 4400 kennarar, eða um
tíu prósent starfandi kennara í Svíþjóð,
hafi möguleika á framgangi.
Líkt og á Íslandi hafa kennarar í Svíþjóð
mátt þola kjaraskerðingu umfram aðrar
stéttir í sambærilegum störfum. Fram-
gangskerfið á að undirstrika mikilvægi
kennarastarfsins og sýna viðurkenn-
ingu á störfum þeirra sem leggja sig
sérstaklega fram í starfi. Nú er málum
þannig háttað innan íslenskra skóla að
eina leið kennara til framgangs felst
í því að hætta kennslu og taka að sér
stjórnunarstörf.
Byggt á grein í Skolvärlden 6. tbl. 2013.
Texti: Guðlaug Guðmundsdóttir.
Mynd: Rósa Maggý Grétarsdóttir.
Íslenskir kennarar sækja námskeið
innanlands sem utan. Kannski mætti líka
sækja fyrirmynd að framgangi í starfi til
Svíþjóðar.
Svíar setja
milljarða
í framgangskerfi kennara