Skólavarðan - 01.11.2013, Blaðsíða 15
Skólavarðan 2. tbl 2013 13
Samanburðarhópar kennara eru gjarnan ríkisstarfs-
menn með háskólapróf og starfsréttindi í tilteknum
greinum, sem bera svipaða ábyrgð í starfi.
Framhaldsskólar geta ekki fjölgað eða fækkað verk-
efnum sínum sjálfir og hafa mjög lítinn rétt til gjald-
töku fyrir þau. Þeir hafa takmörkuð tækifæri til að afla
sér tekna, litla markaðstengingu og samkeppni þeirra
á milli er ekki virk í fjárhagslegum skilningi.
Kennarar og aðrir sem vinna í framhaldsskólum eru
háðir því að grunnmat á störfum þeirra til launa og
starfskjörum byggi á ábyrgri stefnu stjórnvalda. Sú
stefna ætti að sýna í verki gildi og mikilvægi starf-
seminnar sem kennarar bera ábyrgð á og felst í því að
mennta þá sem „erfa eiga landið“.
Mat á kennarastarfinu hér á landi kemur illa út sam-
anborið við meðaltal OECD og einstök Norðurlönd.
Það blasir við að starfskjörin eru knúin fram í erfiðum
kjarasamningum.
Núverandi kjarasamningakerfi er dreifstýrt og líkt því
sem almennt gerist hjá ríkinu, að minnsta kosti á yfir-
borðinu, en áhrif þess á kjör kennara eru í raun mjög
ólík þeim sem það hefur á kjör samanburðarhópanna.
Kæ u ke na ar
Í vetur býðst félag mönnum í KÍ að nota hótelmið
til að greið fyrir gistingu á litlu hlýlegu gistiheimili
í Grjótaþorpinu.
Í boði er gisti g í eins og tveggj manna
herbergjum e a í íbúð með 2 svefnherbergjum
og möguleika á svefnplássi í stofunni.
Nánari upplýsingar á ki.is og brattagata.com
Hlakka t l að sjá ykkur
Ingunn, sí i 612 9800
Nordplus
NorræNa meNNtaáætluNiN
Styrkir til bekkjaheimsókna, kennaraskipta,
norrænna tungumálaverkefna og annarra
samstarfsverkefna á Norðurlöndum og
Eystrasaltslöndum.
Næsti umsóknarfrestur er 1. febrúar 2014
Kynnið ykkur málið á www.nordplus.is
Launakjör framhaldsskólakennara hafa dregist
verulega aftur úr samanburðarhópum.
kjaramálkjara ál