Skólavarðan - 01.11.2013, Page 28

Skólavarðan - 01.11.2013, Page 28
26 Skólavarðan 2. tbl 2013 ráðstefnaráðstefna Níutíu fulltrúar aðildarfélaga nor- rænna kennarafélaga komu saman á ráðstefnu Samstarfsnefndar norrænu kennarasambandanna (NLS) í Nyborg í Danmörku 7. – 9. október síðastliðinn. Þar var farið yfir vítt málefnasvið, með- al annars norræna skólapólitík, stöðu kennara á nýrri öld, hlutverk trún- aðarmanna og leiðir til að efla virðingu kennarastarfsins. MiKiLVÆgT að NOrrÆN giLDi HaLDi VeLLi Ráðstefnugestir hlýddu á fyrirlestra um hugmyndafræði menntunar í Evrópu ásamt hinni samnorrænu sýn. Mikkel Mailand, lektor við Kaup- mannahafnarháskóla, greindi frá rann- sókn á fyrirkomulagi kjarasamninga á Norðurlöndunum og í Evrópu. Í máli hans kom fram að skólar á þessu svæði stæðu frammi fyrir tvíþættri kröfu, því þeir þyrftu að þola niðurskurð og hagræðingu í kjölfar kreppu á sama tíma og gerðar væru miklar kröfur um skilvirkni. Kennarastéttin eldist og dræm aðsókn er í kennaranám. Mailand fjallaði um verkbann danskra sveitarfélaga á grunnskólakennara síðastliðið vor, sem hlýtur að vekja ugg annarra stétta, þar sem farið var á snið við frjálsar kjarasamningaviðræður og lagasetningu beitt. Anders Rusk, for- maður NLS, fjallaði um styrkleika nor- rænu þjóðanna og nefndi sérstaklega áhersluna á velferð og atvinnu, gagn- kvæman skilning og virðingu. Að hans mati er lykilatriði að þessi hefðbundnu norrænu gildi haldi velli. FagMeNNSKaN Í FOrgaNg Heill dagur var tileinkaður kennurum, skólum, fagmennsku og leiðum til að styrkja kennara í starfi. Hafdís Ingvars- dóttir, prófessor við Menntavísinda- svið HÍ, hélt þá athyglisvert erindi þar sem hún sagði að besta leiðin til að efla virðingu kennarastarfsins væri að setja fagmennsku hans í forgang. Það væri best gert með því að efla kenn- aramenntun og auka möguleika til starfsþróunar. Breytingar hefðu orðið á störfum kennara eins og annarra stétta og í stað einyrkjahugsunar væri nú bæði lögð áhersla á samvinnu og samábyrgð kennara á námi nemenda sinna og sjálfræði þeirra í eigin starfi. Mikilvægt er, að mati Hafdísar, að skapa aðstæður í skólastarfinu sem styðja kennarann og veita honum tíma fyrir samvinnu, hvort sem er með nem- endum eða öðrum. Í máli hennar kom fram að hlutverk skólastjóra væri að styðja kennara í starfi þar sem áhersla væri lögð á fag- mennsku. Það er því mikilvægt að ræða við kennara um hvað þeir telja sjálfir að þeir hafi þörf fyrir og hvetja þá til starfsþróunar. Þetta felur ekki bara í sér símenntun á háskólastigi heldur einnig að samstarfsfólk vinni saman, til dæmis með því að fylgjast með kennslu hvert hjá öðru, skipuleggi starfið saman, leiðbeini hvert öðru og ræði saman um vinnu nemenda. Fagmennsku þarf að byggja upp alla starfsævina að mati Hafdísar. HLUTVerK TrúNaðar- MaNNa Hlutverk trúnaðarmanna var einnig rætt á ráðstefnunni, tengsl þeirra við stéttarfélögin og þáttur þeirra í að hvetja kennara til umræðu um starf sitt og gildi þess. Þar kom fram að ýmsir þættir hafa áhrif á kennara, t.d. sam- starfsfólk og stjórnendur, stefna stjórn- valda og síðast en ekki síst valdsvið einstaklingsins sjálfs. Því er mikilvægt að dreifa ábyrgð til trúnaðarmanna og þaðan til kennaranna sjálfra. Texti: Guðbjörg Ragnarsdóttir, varafor- maður Félags grunnskólakennara. Mynd: Rán Bjargardóttir. Mikilvægt að efla virðingu  kennarastarfsins Guðbjörg Ragnarsdóttir. ráðstefna Samstarfsnefndar norrænu kennarasambandanna í Nýborg.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.