Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 11
11
ákvarðanataka of hæg. Það gengur ekki að þau kerfi og regluverk sem við búum við
séu svo þung og seinvirk sem raun ber vitni.
Við þurfum að móta skýrari stefnu og gera skipulag kirkjunnar þannig úr garði að
viðbrögð hennar verði vandaðri, markvissari og hraðari.
Við þurfum að leggja áherslu á veruleika kirkjunnar sem hreyfingu, lærisveina-
samfélag á vegferð sem stefnir ótrauð að því góða, en er ekki á flótta frá því vonda.
Mitt í öllu, í gleði okkar og raunum er Guð nærri, frelsarinn er enn að verki að mæla
sér móts við okkur í orði sínu og athöfnum kirkjunnar. Því orði megum við treysta!
Okkur er öllum þörf á að læra af frelsaranum að vera betri manneskjur og samfélag
sem hlynnir að lífinu og náunganum af virðingu og kærleika, og slíkir lærisveinar
eigum við að vera.
Það er erfitt að horfast í augu við það sem miður fór. En nú stöndum við upp, horfum
heiðarlega á störf okkar og mörkum stefnuna aftur og betur. Við skulum gera það af
metnaði og huga að því að stefna og skipulag, verklag og viðbrögð séu ætíð til
fyrirmyndar og því í stöðugri endurskoðun, starfsemi okkar vönduð, verk okkar fyrsta
flokks. Ekkert annað hæfir utan um það verkefni sem okkur er falið að vera kirkja
Jesú Krists, samfélag og skjól allra sem leita hans.
Allt of lengi hefur dimmur skuggi þessa erfiða máls hvílt yfir. Nú horfum við fram á
veginn og vinnum úr þessari sáru reynslu og leggja grunn að þeirri uppbyggingu og
viðreisn sem við þörfnumst og þráum í kirkju og samfélagi.
Guð gefi okkur öllum styrk til þess, hugrekki, visku og kærleika.