Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Blaðsíða 102
102
• að umsækjendur geri grein fyrir persónulegum upplýsingum, menntun sinni,
starfsferli, samskiptahæfileikum svo og öðru því sem þeir óska að taka fram
• að umsækjandi skuli veita aðgang að sakaskrá sinni
• hvort prestssetur fylgi embættinu
• hvenær umsóknarfrestur rennur út
• hvert senda skuli umsóknir
Ef um er að ræða embætti sóknarprests eða prests í prestakalli skal vera stutt lýsing á
prestakallinu og sóknum þess, ennfremur ákvæði um skilyrði almennra kosninga.
Jafnframt skal greina frá því að valnefnd velji þann sem skipa skal í embættið.
Ef um er að ræða embætti héraðsprests eða sérþjónustuprests skal vera stutt lýsing á
starfsumhverfinu. Jafnframt skal greina frá því að héraðsnefnd mæli með einum
umsækjanda sem skipa skal í embætti héraðsprests, en sérstaklega skipuð valnefnd
velji umsækjenda um embætti sérþjónustuprests.
Skylt er, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að upplýsingum um nöfn og
starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn.
Biskup skal gæta þess að öllum umsóknarskilyrðum sé fullnægt í samræmi við
auglýsingu um embættið og kanna sakaskrá hvers umsækjanda.
Störf valnefnda og ráðgjafa
5. gr.
Innan viku frá því að frestur til að sækja um prestsembætti rennur út, skal
Biskupsstofa senda valnefnd og ráðgjafa þær umsóknir sem borist hafa.
Óheimilt er að ráða til starfa einstakling til að sinna börnum og ungmennum undir 18
ára aldri, sem hlotið hefur refsidóm vegna brota á eftirtöldum lagabálkum:
- barnaverndarlög nr. 80/2002,
- kynferðisbrot skv. 22. kafla, önnur ofbeldisbrot skv. 23. kafla og brot gegn frjálsræði
manna skv. 24. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þó ekki minniháttar
líkamsmeiðingar samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga,
- lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sem og 173. gr. almennra hegningarlaga nr.
19/1940, þ.e. refsidóm síðustu fimm ár.
Biskup Íslands skal, áður en hann setur, skipar eða ræður einstakling sem prest
þjóðkirkjunnar, óska eftir samþykki hans, til þess að fá aðgang að upplýsingum úr
sakaskrá viðkomandi hvað varðar ofangreindar tegundir brota. Synji hlutaðeigandi um
heimild er óheimilt að setja, skipa eða ráða hann til starfa.
6. gr.
Valnefnd prestakalls velur sóknarprest og prest. Hún skal skipuð viðkomandi prófasti,
sem jafnframt er formaður nefndarinnar og níu fulltrúum prestakalls. Með
valnefndum skal starfa ráðgjafi skv. 2. grein starfsreglna þessara og skal hann sitja
alla fundi valnefndar. Hann hefur ekki atkvæðisrétt á fundum hennar, en verkefni hans
er að að veita ráðgjöf um verklag og að gæta þess að valnefnd fari að reglum.
Valnefnd er heimilt að kalla til ritara.
Fulltrúar prestakalls og jafnmargir varamenn þeirra eru valdir til setu í valnefnd til
fjögurra ára á sóknarnefndarfundi eða á sameiginlegum fundi sóknarnefnda í presta-
köllum þar sem sóknir eru fleiri en ein. Prófastur boðar til þess fundar þegar fleiri en
ein sóknarnefnd á í hlut. Það val skal fara fram að loknum fyrstu sóknarnefndar-
kosningum eftir gildistöku þessara reglna. Sé ein sókna prestakallsins fjölmennari en
hinar samanlagt skulu varamenn hennar einnig taka þátt í vali fulltrúanna. Þar sem
sóknir eru fleiri en ein í prestakalli skal taka mið af fjölda sókna og fjölda sóknarbarna