Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Blaðsíða 94
94
11. mál kirkjuþings 2011
Flutt af kirkjuráði
Samþykkt þannig að lokinni umfjöllun í fjárhagsnefnd:
Þingsályktun um fasteignastefnu þjóðkirkjunnar.
I. Um fasteignir kirkjumálasjóðs
Almenn atriði
1. Til að styðja þjónustu þjóðkirkjunnar, hlutverk hennar og markmið skulu lagðar til
fasteignir þar sem nauðsyn krefur og eftir því sem fjárhagur leyfir og stefna þessi
mælir nánar fyrir um.
2. Þjóðkirkjan varðveitir auk þess tilteknar fasteignir þyki sérstök söguleg,
menningarleg eða önnur veigamikil rök hníga til þess. Kirkjuþing ákveður hvaða
fasteignir, aðrar en kirkjur, skuli varðveittar hverju sinni, á þeim grundvelli.
Ráðstöfun þeirra fasteigna kirkjunnar sem falla undir 2. lið fer eftir stefnu þessari
og gildandi réttarheimildum á hverjum tíma.
3. Við varðveislu fasteigna sinna virðir þjóðkirkjan eftir því sem við á, umhverfi,
fornminjar, sögu, náttúrufar, friðun náttúru og mannvirkja og önnur þau sérkenni
sem telja má að hafi varðveislugildi.
4. Leitast skal við að gefa almenningi kost á að njóta aðgangs að jörðum þjóð-
kirkjunnar til fræðslu og útivistar í samráði við umráðanda hverju sinni. Virða skal
rétt umráðanda til afnota og friðhelgi.
5. Við umsýslu fasteigna skal unnið á grundvelli stjórnsýslulaga og góðra stjórn-
sýsluhátta.
Fjárhagslegir þættir
6. Leitast skal við að hámarka arðsemi fasteignanna og fylgja fjárfestingarstefnu
kirkjunnar í því sambandi.
Arður af fasteignum kirkjumálasjóðs skal nýttur til styrktar þjónustu kirkjunnar.
Meta má umráðanda prestssetursjarða til tekna umsýslu og vinnuframlag vegna
hlunninda og reksturs jarðarinnar.
7. Gæta skal hagkvæmni við rekstur og umsýslu fasteigna kirkjumálasjóðs í
hvívetna. Bjóða skal verkefni út í samræmi við gildandi lög um opinber innkaup
hverju sinni svo og ef hagkvæmt þykir.
8. Öll fjármálaumsýsla vegna fasteigna kirkjumálasjóðs skal vera gagnsæ og sýnileg.
Viðhald og endurbætur
9. Fasteignir skulu almennt vera í góðu ásigkomulagi og líta vel og snyrtilega út.
Virða skal upphaflega útlitshönnun mannvirkja eftir því sem kostur er. Viðhald og
endurbætur fasteigna skulu fara eftir fyrirfram mótuðum verklagsreglum og
viðmiðum um reglubundið viðhald. Gerðar skulu framkvæmdaáætlanir til þriggja
ára og framkvæmdum forgangsraðað eftir mikilvægi.