Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Blaðsíða 40
40
Starfsfólk kirkjuráðs
Hjá kirkjuráði starfa nú fjórir starfsmenn í fullu starfi. Þau eru: Framkvæmdastjóri
kirkjuráðs Guðmundur Þór Guðmundsson, lögfræðingur og Guðrún Finnbjarnardóttir
fulltrúi. Á fasteignasviði starfar Kristín Mjöll Kristinsdóttir, innanhúsarkitekt. Anna
Guðmunda Ingvarsdóttir lögfræðingur, sviðsstjóri fasteignasviðs, sagði starfi sínu
lausu í september og auglýst hefur verið eftir lögfræðingi í hennar stað. Á sviði
upplýsingatæknimála starfa Örvar Kárason verkefnisstjóri. Samtals fimm stöðugildi.
Starfshópar kirkjuráðs.
Starfshópar kirkjuráðs eiga sér samsvörun í föstum þingnefndum kirkjuþings og eru
skipaðir formanni viðkomandi þingnefndar, fulltrúa úr kirkjuráði og fulltrúa biskups
Íslands.
Skipun hópanna er sem hér segir:
1. Fjármálahópur, sem á sér samsvörun við fjárhagsnefnd kirkjuþings:
Svana Helen Björnsdóttir, varaformaður fjárhagsnefndar, fulltrúi kirkjuþings, sr. Gísli
Gunnarsson og sr. Gunnlaugur Stefánsson, fulltrúar kirkjuráðs og Sigríður Dögg
Geirsdóttir, fjármálastjóri, fulltrúi biskups Íslands. Svana tók við af Bjarna Kr.
Grímssyni, formanni fjárhagsnefndar kirkjuþings, þegar hann var skipaður formaður
fasteignanefndar þjóðkirkjunnar á starfsárinu.
2. Kirkjustarfshópur sem á sér samsvörun við allsherjarnefnd kirkjuþings:
Sr. Elínborg Gísladóttir, varaformaður allsherjarnefndar kirkjuþings, fulltrúi kirkju-
þings, Katrín Ásgrímsdóttir, fulltrúi kirkjuráðs og Þorvaldur Karl Helgason, fulltrúi
biskups.
3. Lagahópur kirkjuráðs, sem á sér samsvörun við löggjafarnefnd kirkjuþings:
Margrét Björnsdóttir, formaður löggjafarnefndar kirkjuþings, fulltrúi kirkjuþings,
Ásbjörn Jónsson, fulltrúi kirkjuráðs og Guðmundur Þór Guðmundsson, fulltrúi
biskups Íslands
III. Verkefni kirkjuráðs á starfsárinu.
Kirkjuþing 2010 var haldið í Grensáskirkju dagana 13.-19. nóvember 2010. Á þinginu
voru lögð fram 38 mál þar af voru 14 þingmannamál, kirkjuráð flutti 18 mál, biskup
Íslands tvö mál, forsætisnefnd tvö mál og innanríkisráðherra eitt mál. Eitt þingmanna-
mál var dregið til baka. Að venju voru Gerðir kirkjuþings gefnar út og þeim dreift til
þingfulltrúa, presta, formanna sóknarnefnda o. fl. Þar er finna breytingar á
starfsreglum, nýjar starfsreglur og ályktanir og samþykktir kirkjuþings. Kirkjuráð
hefur unnið að framkvæmd þeirra mála sem kirkjuráð samþykkti svo og að fleiri
málum sem berast kirkjuráði á annan hátt.
Hér verður gerð grein fyrir ályktunum og samþykktum kirkjuþings 2010.
1. mál. Starfsreglur um rannsóknarnefnd um viðbrögð og starfshætti
þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot.
Starfsreglurnar hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.
Kirkjuþing samþykkti tillögu forsætisnefndar kirkjuþings um að skipa í rannsóknar-
nefndina þau Róbert R. Spanó prófessor og forseta lagadeildar Háskóla Íslands, en
hann var formaður, dr. Berglindi Guðmundsdóttur, sálfræðing hjá Landspítala –
Háskólasjúkrahúsi og Þorgeir Inga Njálsson, dómstjóra Héraðsdóms Reykjaness.
Rannsóknarnefndin skilaði forseta kirkjuþings skýrslunni í júní sl. Í framhaldi af því
var haldið aukakirkjuþing þar sem niðurstöður nefndarinnar voru ræddar. Verður gerð
grein fyrir aukakirkjuþinginu síðar í skýrslunni.