Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Blaðsíða 75
75
Nefndarálit fjárhagsnefndar
Fjárhagsnefnd hefur farið yfir ársreikninga og fjárhagsáætlanir þjóðkirkjunnar,
stofnanir hennar og sjóði. Nefndin fékk glöggt yfirlit um fjárhagsstöðu kirkjunnar,
kröfur ríkisvaldsins um hagræðingu á kostnaði vegna slæmrar stöðu ríkissjóðs og
tillögur kirkjuráðs um lækkun framlaga á ýmsum sviðum til þess að mæta hag-
ræðingarkröfu ríkisins.
Sérstaklega var farið yfir fjárhagsáætlun þjóðkirkjunnar og sjóða kirkjunnar. Nefndin
þakkar skýra framsetningu reikninga og áætlana og yfirgripsmikil yfirlit og skýringar
á öllum rekstri sem undir þjóðkirkjuna heyra. Nefndin fór yfir endurskoðunarskýrslu
Ríkisendurskoðunar, en í skýrslunni er fjallað um ársreikninga embætta, sjóða,
stofnana og fyrirtækja þjóðkirkjunnar. Nefndin hafði til umfjöllunar samantekt
ársreikninga sókna fyrir árið 2010, yfirlit unnið úr ársreikningum héraðssjóða fyrir
árið 2010 og skýrslu um úthlutanir styrkja úr Jöfnunarsjóði sókna á árunum 1995 –
2012.
Eins og Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, staðfesti í ræðu sinni við setningu
kirkjuþings 2011 hefur þjóðkirkjan sætt meiri niðurskurði en stofnanir innan-
ríkisráðuneytisins. Sóknargjöld hafa lækkað um 20% frá árinu 2008 að teknu tilliti til
úrsagna úr þjóðkirkjunni. Á sama tíma hafa greiðslur til stofnana innanríkisráðu-
neytisins hækkað vegna verðlagsbóta um 5%. Nú er svo komið að ekki er unnt að
halda úti grunnstarfi í mörgum sóknum víðsvegar um landið, þar sem rekstrar-
kostnaður og fjármagnskostnaðar hefur hækkað verulega á þessu tímabili.
Fjárhagsnefnd lýsir þungum áhyggjum af þessari þróun. Sóknargjöld eru félagsgjöld
og grundvöllur kirkjustarfsins í heimabyggð. Skorað er á ríkisstjórn og Alþingi að
beita sér fyrir því að sóknargjöldin verði leiðrétt til samræmis við þróun fjárveitinga
til stofnana innanríkisráðuneytisins þannig að sóknargjöldin verði 919 kr. á mánuði
fyrir hvern gjaldanda á árinu 2012.
Nefndin fékk á sinn fund Svein Arason, ríkisendurskoðanda, Inga K. Magnússon,
sviðsstjóra, og Kristínu Kalmansdóttur, sviðsstjóra. Þau svöruðu spurningum nefndar-
fólks um skýrslu um endurskoðun kirkjustofnana 2010 og skýrslu um Biskupsstofu,
sóknir og sjóði kirkjunnar. Einnig komu fulltrúi stjórnar Prestafélags Íslands (PÍ),
Magnús Magnússon kjaramálafulltrúi og Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari á
fund nefndarinnar. Rætt var um lækkun á skrifstofukostnaði til presta, námsleyfi,
rekstur prestssetursjarða og hlunnindi. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í
Skálholti, ásamt Þorvaldi Karli Helgasyni komu og ræddu framtíð Skálholtsskóla.
Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, kom og svaraði spurningum
nefndarmanna um áhrif niðurskurðar á starfsemi Biskupsstofu. Jón Helgi Þórarinsson,
formaður stjórnar Tónskóla þjóðkirkjunnar og Björn Steinar Sólbergsson, skólastjóri,
gerðu grein fyrir stöðu tónlistarmála þjóðkirkjunnar. Hjalti Hugason kom á fund
nefndarinnar og ræddi starfsþjálfun prests- og djáknaefna.
Fjárhagsnefnd beinir eftirfarandi til kirkjuráðs og biskups Íslands:
1. Að gerður verði formlegur samningur við ríkið um framtíðarskipan og
innheimtu sóknargjalda.
2. Að farið verði að tilmælum Ríkisendurskoðunar um að sjóðakerfi kirkjunnar
verði einfaldað og gert gegnsærra.